Sameiningin - 01.10.1919, Síða 3
223
og enginn til hins nafnsins. “Hvar eru þeir níu!” Yoru
það ekki fleiri, sem koma vildu og gefa Guði dýrðina?
Og Jesús grætur yfir Jerúsalem.
En Drottinn skiftir líka liðinu. Hann kveður bæði
smáa hópa og einstaka menn í söfnuðinum til að gegna
sérstökum störfum og útbýr þá með sérstökum náðargjöf-
um eftir þörfum þeirra. Um það lesum vér í 12. kap.
fyrra Korinþubréfsins. Stundum undrast menn, að þeir
lievra nöfn sín nefnd og vita sér ætlað tiltekið starf.
“Ekki þetta”, segja þeir. “Þetta get eg ekki.” Jú,
maður getur alt, sem Guð viil að maður geri. Drottinn
er ekki ósanngjarn. Hann ætlar engum það, sem hann
er ekki fús að styrkja hann til. Og Drottinn þekkir þig
betur en þú þekkir þig sjálfur. Andi Guðs býr í hverj-
um kristnum söfnuði. Það er lieilagur andi, sem kallar.
Og þá er rödd kirkjunnar rödd Guðs. Að daufheyrast
við köllun kirkjunnar og þeirra, sem þar fara með um-
boð frá Guði, getur verið syndin stóra móti heilögum
anda.
Drottinn gengur ekki fram hjá neinum. Hann nefn-
ir nöfn allra í söfnuðinum, segir öllum fyrir verkum. Það
heyrist ekki stundum, þegar nafnakallið fer fram. Guð
talar ekki ávalt upphátt. En sálirnar, séu þær trúaðar,
lieyra. Það er ef til viil, ekki annað, sem þú átt að gera,
en það, að fara og rétta einhverjum bróður hlýja liönd
og leiða hann með þér á samkomur Guðs barna. Það er,
ef til vill, ekki annað en það, að bera sólskin inn í kirkj-
una þína, svo þeir, sem þangað koma kaldir og hraktir,
finni yl og unað. En þetta eru stór verk, guðleg verk, og
“meiri verk skuluð þér vinna” segir Kristur.
Svo eru starfsviðin sérstöku í söfnuði Drottins. Líkn-
arstörfin ganga fyrir öllu. Getur þú ekki satt þennan,
klætt hinn? Getur þú ekki vitjað þessa og leitað hins?
“Það sem þér gerðuð einum þessum—”. Nafnakall til
líknarverka: Djáknar, Dorkas, kvenfélög!
Hví eru sæti auð á söngpalli þessum? Hvar ert þú,
sem Drottinn gaf fagra söngrödd, svo þú gætir sungið um
dýrð lians í söfnuði trúaðra, svo þú gætir hjálpað til að
frambera fórnir lielgra tóna í guðsþjónustu safnaðarins?