Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1920, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.02.1920, Blaðsíða 13
43 tveim árum að raimsaka trúarástandið í umdærni sínu. Kvaddi hannn nokkra menn í nefnd til þess að komast eftir, hvað helzt væri að í kirkjunni. Nefndin hélt sér að rannsókn og íhugun málsins í lieilt ár, og hefir nú lagt fram ávöxt iðju sinnar í bæklingi, sem heitir The Teaching Function of the Ghurch (Fræðslu-starf kirkj- unnar). Þar er aðal áhersla lögð á þetta sama mein,. ''pekkingarleysið. Það er kirkjunni lífsnauðsyn, segir nefndin, að láta nú sem stendur öll önnur störf þoka fyrir þessu mikilvæga hlutverki, að uppfræða fólkið í meginatriðum kristinnar trúar. Þar dugar ekki sunnu- dagsskólinn einn—. Kennimaðurinn þarf að eiga mik- ilvægan þátt í starfinu. Kæðumar þurfa að uppfræða kristinn lýð, ekki í vísindum, stjórnmálum, mannfræði eða öðru slíku, heldur í kristindómi. Það verk hefir ekki farið þjónum kirkjunnar svo vel úr hendi, sem askilegt. hefði verið, nú síðustu tíð. Hver skyldi nú vera orsökin ? Nóg er viðleitnin,. ekki vantar það Það h'efir víst aldrei verið unnið meira að kennslustörfum innan kirkjunnar, heldur en einmitt: nú. Sunnudagssólar eru sérstakt einkenni vorrar t.'ðar, og á þeim vinnur heill herskari kirkjufólks, s m í einlægni hjartans reynir að gera skyldu sína. Hróp- legt vanþakklæti væri það, að kenna þeim lýð um mis— tökin. Orsökin mun liggja annarstaðar- Sterk öfl utan og innan kirkjunnar liafa á síðari tímum róið að því öllum árum, að gera innihald trúarinnar eins óá- kveðið eins og mögulegt var. Guðfræðin úthrópuð sýnkt, og heilagt; fræðakerfi trúarinnar véfengt; eða sem enn var verra, látið liggja isem mest í þagnargildi. Mönnum hefir verið talin trú urn það, að kristnin væri þá hreinust og bezt, þegar greinargjörð og sundurliðun kæmi þar hvergi nærri. Mikill hluti kristninnar, leikmenn og kennimenn jafnt, hafa komist undir áhrif þessarar kenningar að meira eða minna levti. Afleiðingin hefir svo orðið sú að kristindómurinn er orðin í liugum fjöldans að þoku- kendri draumsjón, eða, sundurlausum lífsreglum. Sam- hengið, grundvöllinn, skipulagið, vantar. Menn liafa verið hræddir á fræðigreinum sögulegrar kristni, þang-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.