Sameiningin - 01.02.1920, Síða 32
62
gáfu þeir þá atvinnu til þess að fylgja Jesú? 6. Hvor þeirra
hafði oftar orð fyrir postulunum og flutti fleiri ræður? 7.
Hvor þeirra ritaði fleiri bækur? 8. Hvenær kom veikleiki í
ljós hjá Pétri? Hvenær styrkleiki ? 9. Hvað var það, sem
gjörði hann sterkan og hugrakkan?
10. Hvenær var kirkja Krists stofnuð, og hvaða fyrirheit
frelsarans var þá uppfylt? 11. Hvernig lifðu kristnir menn í
fyrstu söfnuðum? 12. Hvernig stóð á þv(í, að Pétur og Jóhannes
i'oru handsamaðir og færðir fram fyrir dómstól Gyðinga? 13.
Hvað var aðal-efnið ií ræðu Péturs frammi fyrir þeim dóimstóli ?
14. Hví var svo hörð refsing lögð við synd Ananíasar? 15.
Hvaða áihrif höfðu ofsóknirnar á kristniboðið? 16. Á hvern hátt
var Pétri gjört það skiljanlegt, að iheiðingjar ætti aðgang að
guðlegri náð í Kristi — án þess að taka fyrst Gyðingatrú? 17.
Hvað segir Pétur uim kristilegan þroska (9. lex.) ? 18. Hvað
segir Jóhannes uppruna kærleikans og kærleiks-þroskann?
19. Hvað táknar fyrri sýnin úr Opinberunarbókinni (11. lex.) ?
20. Sú isíðari (12. lex.) ? 21. Hvor þeirra hefir haft meiri og
dýpri áhrif á 'hugi kristinna manna, pétur eða Jóhannes?
ANNAR ARSFJÓRÐUNGUR.
I. LEXÍA. — 4. APRÍL.
Kristur upprisinn. Páskalexía.— Lúk. 24, 13—31.
(Les: 32. til 35. vers.)
Minnistexti: Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga inn
í dýrð sína?--Lúk. 24 26.
1. Um hvað eru lexíurnar í þessum ársfjórðungi? pær
eru úr gamla testamentinu — helztu viðburðirnir úr sögu fsra-
els frá dómaraöldinni fram að dauða Sális konungs. Lexían
í dag er páska-lexía, og stendur því ein sér. 2. Hvenær gjörð-
ist þessi atburður? Á páskadag. 3. Hvar var þorpið Emmaus?
í suðaustur frá Jerúsalem, sextíu skeiðrúm, eða hálfa sjöundu
mílu, frá borginni. 4. Hverjir voru lærisveinarnir tveir?
peir voru ekki postular. Annar þeirra hét Kleófas (18. v.).
Hinn er ónefndur. Hvorugur þeirra var Víst hátt settur, mik-
ils metinn, eða framarlega í hópi lærisveinanna. 5. Hví voru
þeir svo daufir í bragði? peir elskuðu Jesúm, en trúðu ekki
upprisu-sögunni. 6. Hví þektu þeir ekki Jesúm, þegar hann
kom til þeirra? Augu þeirra voru haldin (16. v.), svo að þeir
þektu hann ekki. 7. Hvað þýðir það? Einhver dularfull breyt-
ing var orðim á útliti Jesú, svo að jafnvel mánustu vinir þektu
hann ekki fyr en íhann sjálfur viidi. pað var eins og hjartað