Sameiningin - 01.04.1921, Side 1
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. í Vestrheimi
XXXVI. árg. WINNIPEG, APRÍL, 1921. Nr. 4
Kirkjuþing 1921.
Viðkomendum tilkynnist, að 37. ár.sþing Hins evam-
geliska lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi
verður, eif Guð lofar, sett í kirkju Lundar-safnaðar að
Lundar, Manitoba, fimtudag 23. Júní, 1921, kl. 4 e. li.,
og fer þá fram opiriber guðsþjónusta og altarisganga.
Er búist við að þingið standi yfir í fimm daga og verður
áætluð dags'krá þess birt síðar.
Á þinginu eiga sæti samkvæmt lögum kirkjufélagsins
prestar og aðrir embættismenn félagsins, svo og kosnir
erindrekar safnaðanna, einn fvrir liverja 100 fermdra
safnaðarlima og þar fyrir innan, fyrir meir en 100 og
alt upp að 200 tveir, fyrir meir en 200 og alt upp að 300
]>rír, fyrir meir en 300 fjórir, en fleiri en fjóra skal
enginn söfnuður senda. Skriflegt vottorð 'þurfa erind-
rekar að hafa um það, að þeir standi í ]>eim söfnuði, sem
þeir mæta fyrir, og hafi verið kosnir á lögmætum fundi
safuaðarins.
Winnipeg, 8. Apríl 1921.
Björn B. Jónsson,
Forseti kirkjufélagsins.