Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1921, Síða 21

Sameiningin - 01.04.1921, Síða 21
117 fertugs og sextugs. í söfnuðum Baptista — þeim, er stærstir eru — stóS aldur prestanna svo, árið 19O4, aö tólf voru innan viö fertugt, en sextán milli fertugs og sextugs. En áriS 1920 v.ar aö eins einn innan viö fertugt, ellefu milli fertugs og fim- tugs, en seytján milli fimtugs og sextugs. Petta sýnir ljóslega, aö kirkjulýðnum, meSal Baptista aö minsta kosti, er ekki orðið svo gjarnt sem áður aö taka unga kennimenn fram yfir roskna. Einhverjir framtakssamir efnamenn kváöu hafa beöið brezka landstjórann, Ronald Stows ofursta, um leyfi til að leggja sporveg yfir O-Hufjalliö og setja upp merry-go-around á helgum stöðvum í Belhlehem. Landstjórinn gaf engan kost á sliku, sem ekki var von. Námsmeyjar á mentaskólanum í Peoria í Illinois tóku sig saman um það fyrir skemstu, að skemta sér ekki meö neinum iþeim piltum, er reykti vindlinga, enn fremur, aö taka ekki þátt í neinni dans-skemtun, þar sem leyfðir væri óhæverskir nýtízku- dansar. Piltarnir á skólanum létu ekki segja sér tvisvar, hvað gjöra skyldi, þegar þeir Iheyrðu þetta. Þ.eir höfðu með sér fund og komu sér saman um, að enginn þeirra skyldi gefa sig við nokkurri stúlku, sem gengi í stuttpilsi efta silkisokkum. Betur aö sami hugsunarháttur ríkti víöar meðal æsklýðsins. Vínbannsmenn eru fáliöaðir á Bretlandi og hafa þar á móti sér bæði almenningsálitið og öflugt auðvald. Þeir hafa orðið fyrir stööugu hnútukasti þar. Blöðin eru á móti vínbanni, hér um bil öll. Þó er það haft eftir Lloyd George forsætisráðherra, að ef Bandaríkjamönnum ’hepnist með vínbannið, þá muni Bret- ar fylgja dæmi þessa lands innan tíu ára. ----------0--------- Sléttusöfnuður í Mozart, Sask., hélt ársfund sinn 20. marz. í söfnuðinum eru nú liðugir 100 meðlimir. Sunnudagsskóla- starfið, undir umsjón hr. H. B. Grímsson hafði gengið ágæt- lega. Aðsókn góð allan þann tíma, sem skólinn stóð. Um 10 meðlimir höfðu gengið í söfnuðinn á árinu. í ýmsum störfum og ekki sízt í sambandi við samkomu þá, sem haldin var í Moz- art um kirkjuþingið, 'hafði söfnuðurinn notið mikillar og drengi- lcgrar aðstoðar fólks, sem ekki stendur í Sléttusöfnuði. — Full- trúakosning hlutu: Th. Laxdal, Th. Arnason, H. B. Grímsson. Jóhannes Thordarson og P. N. Johnson. Djáknar; Mrs. S. Bachman, Mrs. P. N. Joíhnson og Stephan Johnson.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.