Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1921, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.04.1921, Blaðsíða 3
Máttur samvizkunnar. Fyrir tóilf árum kváðu tveir sællegir og uppstro'knir Ameríkumenn hafa setið saman í Pullman-vagiú á járn- braut einni hér í landi. Lestin þaut í gegn um smábæ, og verður þá öðrum manninum litið rrt um gluggann. “Sjáið þér kirkjuna þarna?” segir hann við félaga sinn. “Þar er versti óvinurinn, sem vér eigum. Eg segi yð- ur satt, að vér iþurfum að fcollvarpa kirkjunni hér í Bandaríkjunum, ella steypir hún vorri verzlunargrein á fáum árum.” Hinn samsinti. Menn þessir voru vín- bruggarar. Þeir vissu vel, hvar áhrif kirkjunnar lágu gagnvart vínnautninni, þótt aðrir óvinir kristindómsins hafi oftast haldið því fram, að kirkjan sé jafnan hálf- volg og sundurþyfck sjálfri sér í öllum umbótamálum. Liðin ern, sem sagt, ein tólf ár síðan atburður þessi gjörðist, og á þeim tíma hefir kirkjan aukið sjö miljón- um við meðlimatölu 'sína auk ibarna, en vínverzlunin er nú af tekin með lögum um alt rífcið. “Svo fór um sjó- ferð þá.” Þó var áfengisverziunin efcfci talin árennileg fyrir nokkrum árum. Hún var eitthvert hið öflugasta stór- veldi rangsleitninmar — gróðavænleg fram úr öllu hófi, og hafði því afar mikinn auð á valdi sínu, en studdist að öðru leyti við rammaufcin myrfcraöfl, auragirnd ann- ars vegar, en hins vegar munaðarfíkn og gjálífi. Jafn- an var hún að einhverju leyti riðin við flest það, sem óhreint var, lagabrot, stjórnmálasvik og ýfirhylmingu lasta og svívirðinga, og þótti hún hvarvetna jafn-ill við- ureignar. Varla fundust nokkrir þjóðarbrestir svo ó- svífnir, svo kærulausir um rétt og velsæmi, svo ugg- lausir um sjálfa sig eins og nautn og sala áfengisins. Bafclcusar-dýrkunin vár sannarleg ímynd liinnar mifclu hórkonu Babýlonar, sem lýst er á þessa leið í Opinber- unarbókinni: “Konan var sfcrýdd purpura og skarlati og ‘búin gulli og gimsteinum og perlum, og ha'fði í hendi sér gullbifcar, fullan viðurstygðar—”. Ifvaðan fcom nú þjóðinni kraftur sá, sem steypt gat þessari ramme'fldu norn af stóli ? Hér er talað á mann-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.