Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1921, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.04.1921, Blaðsíða 7
Grátur við gröf. Útdráttur úr páskarœðu eftir séra Harald Sigmar. Nóttin var naumast liðin, þegar María Magdalena og hinar konurnar komu aö gröf Jesú á p'áskadagsmorguninn. Skuggar teygöu sig yfir grafreitinn, en þó voru hinir skuggarnir dekkri, sem grúfðu yfir sál Mariu, er hún stóð viS gröfina og grét. Sár hafSi veriS söknuSur hennar, eftir aS meistarinn, sem hún elskaSi, gaf upp öndina á krossinum, en einhver huggun var þó enn í því, aS rnega sýna jarSnesku leifunum þessa kærleiks- þjónustu, sem hún og konurnar hinar voru komnar til aS fram- kvæma á þessari morgunstund, — og fá svo um leiS í síSasta sinn aS lita ásjónu ástvinarins burtsofnaSa. ÞaS er því nýtt sorgarefni, nýr sársauki, sem nistir hjarta hennar, þegar hún kemur til legstaSarins og sér, aS steininum hefir veriS velt frá, en gröfin tóm. Sársaukanum lýsir hún meS þessu látlausa svari, sem hún gefur englunum: “Af því aS búiS er aS taka hurt Drottinn minn og eg veit ekiki, hvar hann hefir veriS lagS- ur.” Hún grætur, af því hún skilur ekki þýSing þessarar opnu og tómu grafar. Hatur GySinga hafSi veitt meistaranum eftirför alla leiS aS gröfinni. Alt upphugsanlegt hafSi veriS til þess gjört, aS líkami hans yrSi ekki tekinn burt þaSan. Stórt bjarg var fyrir grafar-mynninu, innsigli stjórnarvaldanna var á gröfinni, varS- mannasveit rómversk vakti yfir henni, svo aS engu yrSi raskaS. En nú er svo komiS þessa morgunstund, aS steininum hefir verið velt burt, innsigliS er brotiS, varSsveitin flúin, hatriS yfir- bugaS og orðiS sér til minkunar. Og þó stendur María Magda- lena viS gröfina grátandi, af því aS líkami hins burtsofnaSa ást- vinar er horfinn. Menn glíma, árum og jafnvef öldum saman, viS litt þektan sannleik ýmiskonar; einn eftir annan leggur fram krafta sína til aö leiða þau eSa þau sannindin betur í ljós, svo aS þau komi mönnum aS notum. Og þó eru þau sannindi sem ekki .neitt í samanburSi viS þann sannleika, sem María Magdalena stóS andspænis, óafvitandi, þessa páskamorgun-stund. Já, þessi tóma páskagröf, ó, hve þýSing hennar er mikilvæg fyrir mannlífiS; ó, hve boSskapur hennar er víStækur, djúpur og hár! En ást- vinur frelsarans horfir á þennan fagnaSarboSa, og grætur. “Þeir hafa tekiS Drottinn úr gröfinni", segir María. Sýni- lega hefir henni ekki kómiS upprisa í hug á þeirri stund. Hún hefir alls ekki ímyndaS sér, að hann væri úr gröfinni kominn á

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.