Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1921, Síða 13

Sameiningin - 01.04.1921, Síða 13
1 109 tekin úr ritningunni, hún verSur a5 vera sett í eitthvert sam- band við Krist. Bezt aö þaö samband sé sem beinast og sem nánast. Venjulega er þetta auövelt. Alt gamla testamentiö er undirbúningur undir komu Krists. Alt nýja testamentiö segir frá komu og fagnaöarerindi 'hans. Vandinn er vitanlega eng- inn, aö því er samband snertir, þegar lexian er úr nýja testa- mentinu. Sambandiö viö gamla testamentis lexíurnar liggur ekki eins beint við. Alt um það getur sá, er temur sér þá kenslu aðferð, aö láta bverja einustu lexíu leiöa talið aö Jesú Kristi, 1 æfinlega náö í eitthvert sam'band. Segjum t. d. aö lexían sé um Davíð og Golíat- Það eru tveir menn, sem berjast. Annar sigr- ar, en hinn fellur. Þegar lexían er útskýrð fyrir smádrengja '‘klassa” og litlu -piltarnir eru búnir að skilja alla málavöxtu, þykir þeim vænt um, að Davíð, drengurinn, er ómeiddur og sigri hrósandi, en risinn brokafulli liggur fallinn. Gæti maður þá sagt eitthvaö á þessa leið við litlu drengina: ‘‘Jæja, drengir mínir, enginn er eins mikill og góður eins og Jesús. En hvor þessara tveggja, sem þarna börðus.t, er samt ofurlitið likur Jesú? Þaö mundu allar hendur vera á lofi. Jafnvel minsti hnokkinn þættist undir eins sjá, aö það væri Davið. Kæmi þá til kasta kennarans, að sýna, eða það sem betra er, ef hægt er, láta drengina sjálf finna, að hverju leyti það sé, nefnilega, aö Davíö er auðmjúkur og hógvær, treystir Guði afdráttarlaust o. s. frv. Risinn aftur á móti hrokafuliur sjálfbyrgingur, sem treystir einungis á sjálfan sig. Út frá þessu má sVo koma með hverja góða lexíu úr kenning eða lífi Jesú sem kennaranum sýn- ist við eiga, eða góð og nauðsynleg sé fyrir litlu drengina. iÞannig má fara með bverja einustu gamla testamentis lexíu. Það má láta þær allar enda á einhverju mikilvægu úr lifi og starfi eða kenningu Jesú Krists, svo aö hann, frelsarinn sjálfur, veröi það stóra og mikla í lexíunni, hver svo sem ihún er og livar sem hún er tekin úr Guðs orði. “Þannig líta menn á oss svo sem þjóna Krists og ráðsmenn yfir leyndardómum Guðs. Hér er þess að öðru leyti krafist af ráðsmönnunum, að sérhver reynist trúr.” Þannig byrjar post- ulinn trúi og mikilvirki 4. kap. í fyrra Korintubréfinu. Látum oss, systur og bræður, reynast trú. Fyrst með því, að sneyða ekki hjá sunnudagsskólastarfinu, heldur gefa oss við því; og svo, með því, að rækja starfið eins vel og samvizkusamlega, sem oss er frekast unt. ■0-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.