Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1921, Síða 17

Sameiningin - 01.04.1921, Síða 17
113 farinn í andliti, svipmikill og undireins góömannlegur; bar alt útlit hans vott um góðan og göfugan mann. Hann var mikill maSur vexti, hár og gildur að sama skapi, vel vaxinn og karl- mannlegur og fjörmaöur mikill. Mátti svo að orði kveða, að séra Eiríkur væri allra manna íhermannlegastur á velli. f framgöngu þótti mikiö aö honum kveða; sópaSi aö honum hvar sem hann var staddur, hvort heldur á heimilinu, í kirkjunni, eða á mann- fundum. Klerkur var séra Eiríkur góSur, einn af hinum betri. Voru ræSur hans skýrar og skörulega fluttar, svo aS enginn þurfti aS dotta, sem sat undir ræSum hans. Raddmaöur var hann mikill og sketmtilegur fyrir altari. ÞaS sem :þó einkendi séra Eirík rnest, voru manndygöir hans, drenglyndi, göfugmenska og mannúS; jafn viS alla, bæði æSri og lægri; ávalt reiSubúinn aS gjöra hvers manns bón og leysa vandkvæSi manna. ÞaS bar ekki all-sjaldan viS, aS hann gat ekki gjört bónina sjálfur, en útvegaði þá hlutinn hjá öSrum, sem um var beöiS ; enda fundu menn s'kyldu sína aS neita honum ekki um neitt, sem hægt var aS veita. f framkomu var séra Eiríkur ör í lund, glaSlyndur og hinn skemtilegasti í viðræSum. HafSi hann einkennilegan málróm, harðmæltur, skýr og djarfur. Hann var algjörlega laus við stolt og yfirlæti; gjörSi engan greinarmun á mönnum; jafn ljúfur og kátur viS alla. Var það eitt meðal annars, sem jók á vinsældir hans. — Á heimilinu var séra Eiríkur gleSimaSur mikill og hibýla- prúSur, og alt af jafn, hvernig sem ástæöur hans voru. Gestrisni hans og alúö viS aSkomumenn var viS brugðiS. GjörSu þau hjónin, sem voru saman valin aS rausn og höföingsskap, alt sem auðiS var til aS láta gestum sínum líða sem bezt. Var þaS gild regla séra Eirikts, er vinir hans og kunningjar heimsóttu hann, aS hann tók reiShest sinn og reið á veg með gestum sínum langar leiðir. Var þá oft sprett úr spori. Sjálfur var hann hestamaS- ur mikill. Þegar eg les um rausn og stórmensku forfeöra vorra, þeirra er ágætastir voru og mestir höföingjar, dettur mér ávalt í hug séra Eiríkur Gislason. Þessar endurminningar geymir einn af fornvínum séra Eiriks hér fyrir vestan hafið, og álítur sá hinn sami, aS ættjöröin hafi við fráfall hans mist einn af sinum beztu sonum, sem alla sína tíð var iandi sínu og stööu til sóma. S.J. o-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.