Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1921, Page 19

Sameiningin - 01.04.1921, Page 19
1 115 Almenn kirkjutíðindi. Látnir eru 'nýlega tveir nafnkunnir kirkjumenn í B'anda- ríkjunum. Gibbons kardínáli, sem var æðsti embættismaöur katólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum, andaöist í Baltimore í Maryland-ríki nálægt mánaðamótunum síðustu. Stórmerkur maður og vinsæll. Hann hafSi sex um áttrætt, íþegar hann lézt. — Litlu fyr ihaföi látist dr. Frank W. Gunsaulus, fyrrum lengi prestur í Central Congregational kirkju í Chicago-borg og síöan skólastjóri viö iðnfræðastofnun þá, sem auömaðurinn P. D. Armour kom á fót þar í horginni fyrir nokkrum árum. Dr. Gun- saulus var ræðusnillingur mikill og rithöfundur, nokkuö óá- kveðinn í guðfræði, en áhugamaður mikill um veraldleg umbóta- mál og þjóðkunnur á síðustu árum fyrir dugnað sinn á því sviði. Hann var nafntogaður meðal annars fyrir einhverja þá arð- mestu ræðu — í peningum reiknað — sem flutt hefir verið úr stóli í allri sögu kirkjunnar. Það var áskorun um hjálp fyrir fátæk börn borgarinar og gaf hún í aðra hönd ekki minna en tvær miljónir og átta hundruð þúsund dollara í samskotum til þeirrar starfsemi. Dr. Gunsaulus var ekki gamall maður; mun hafa verið tæpra 65 ára. Kirkjufélag Meþodista í New York ríki samþykti nýlega, eftir nokkurt vastur að því er virðist, að veita leikmönnum rétt til aö sitja á kirkjuþingum. Munu víst all-flest kirkjufélög mót- mælenda hér i álfu skipa þing sín bæði prestum og leikmönnum nú orðið; en það er fáheyrt, að leikmenn sé í meira 'hluta á kirkju- þingum, eins og jafnan á sér stað í kirkjufélaginu íslenzka. Leiklhúsum hefir verið haldið gal-opnum helga daga jafnt sem virka víðast í stórborgum Bandaríkjanna, svo sem kunnugt er. Sama mun eiga sér stað allvíða á meginlandi Norðurálfu. En með Bretum er sunnudagshelginnar aftur miklu beíur gætt; skemtanir ha'fa þar í landi verið takmarkaðar mjög á helgum alt að þessu, og leikhúsum ötlum lokað nema kvikmyndakompum. Nýlega kom þó til tals á Englandi, að opna leikhús alla daga jafnt; en leikenda-félag öflugt setti sig uppi á móti þeirri ný- breytni, enda hefir hún ekki náð fram að ganga, enn sem komið er. Leikendur í Lundúnum kappræddu máliö á opnum fundi, og báru síðan undir atkvæði tilheyrenda, og féllu þau svo, að rnikill meiri hluti var á móti sunnudags-sjónleikjum — þar á

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.