Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1923, Síða 18

Sameiningin - 01.05.1923, Síða 18
144 orku til utgáfu vísindalegra rita. ÞaS er einlæg ósk vor, aS íslenzk kirkja fái eignast sem flest góS rit um málin guSlegu og eilífu, og um fram alt, aS öll sé þau samin í lotningarfullri trú á Jesúm Krist og sann-lúterskum frelsisanda. “ISLÆNDBRNB I AMERIKA.” Dansk-íslenzka fræSafélagiS í Kaupmannahöfn. hefir gefiö út rit um Vestiir-íslendinga, er samiS hefir prófessor Halldór Hermannsson í Ithaca, N. Y. Er sá merki fræSimaSur löngu orSinn þjóSkunnur af ritum sínum, sem öll bera vott um yfir- burSa þekkingu og vísindalega vandvirkni. Ritinu er skift í fimm kafla meS þessum yfirskriftum: I. Útflutningur til Ameríku og íslenzkar nýbygSir. 2. Efna- hagur, félagslíf og kirkjumál. 3. Málið, blöS og bókmentir. 4. Vilhjálmur Stefánsson. 5. ASstaSa viS ættlandiS og fram- tíöarhorfur. í fyrsta kafla er í stuttu en mjög greinilegu máli sagt frá stofnun allra aöal-nýlendanna, bæSi í Canada og Bandarikjum. Er þar landnáms-sagan sögS bæSi rétt og vel. Höf. segir, aS samkvæmt skýrslum stjórnarinnar á íslandi hafi á árunum 1873 til 1890 (^28 árj tólf þúsund manns flutt til Vesturheims. ÁreiSanlegar skýrslur ná ekki lengra. Ná- kvæmlega segir höf. aS ekki verSi sagt, hversu margir Islend- ingar sé i Ameríku, bæSi þeirra, er fæddir sé á íslandi og í Ameríku af íslenzkum foreldrum. Segir hann, aS oft sé gizkaS á um 20—30 þúsundir, en sennilegast sé talan um 20 þús. Líklegt teljum vér, aS höf. fari hér nærri réttu. Oft eru Vestur- íslendingar taldir fleiri en þeir eru í raun og veru. í W|innipeg er t. d. stundum sagt aS sé 3 þús., og.sumir segja 5 þús. íslend- inga. Sannleikurinn mun vera, aS í Winnipeg sé búsettir nú 2000Í—2500 Islendingar. í öSrum kafla ritsins er talsvert ítarlega skýrt frá kirkju- legum félagsskap Vestur-íslendinga og trúmáladeilum og sundr- ung. Er fariöi rétt meS þau mál og óvilhalt aS flestu leyti. Þó kemur þaS fyrir aS misskilningur á sér staS. Höf. segir aS íslenzkir guSfræSingar hafi ekki fengist til aS flytjast til Vest- urheims og gerast prestar hér. Satt er þaS, aö' svo var lengi framan af og meSan mest þurfti á þeim aS halda, en nú er öSru máli aö gegna og hefir veriS til fleiri ára. Háttvirtur

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.