Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1923, Side 24

Sameiningin - 01.05.1923, Side 24
150 Gat Ágústínus komist um borS á skip, sem flutti hann til ítalíu, án þess að móöir hans vissi. Harmþrungin sneri Monika aftur til Tagaste, þar sem 'hún aö uppteknum hætti baröist fyrir lífi og velferö sonar síns. En Monika gerði meira en aS biöja fyrir velferö sonar síns. Óvissan og biöin var henni óbærileg. Og þrátt fyrir þúsund þrautir og erfiðleika, sem lágu á vegi hennar, hóf hún ferö sína til Rómaborgar til fundar viö Ágústínus. Þegar þangaö kom, biðu hennar ný vonbrigÖi, því Ágústínus var þá farinn úr Róma- borg og kominn til Milan, sem er bær meir en 300 mílur í norö- vestur þaöan. Milan var þá biskupssetur og var hinn nafnkunni Ambrosius þar þá biskup. tlann tók Ágústínusi með opnum örmum, og reyndist honum sannur hollvættur í ihvívetna. Stuttu seinna náði Monika til Milan, og varð mikill fagnaðar- fundur meö þeim mæðginum. Ávextirnir af umhyggju og áminningu Moniku fóru nú að koma í lós hjá Ágústínusi. Hann var búinn aö afla sér ágætrar þekkingar í veraldlegum efnum, og 'skaraöi í því fram úr flest- um samtíðarmönnum sínum, og oröstýr hans fór vaxandi meö degi hverjum. En samt var hann ekki alls kostar ánægöur. í hjarta hans kváðu við raddir, er gerðust æ hátalaðri og vildu ekki láta þaggast á neinn hátt. Ekki bætti það heldur, að hann sókti iðulega pródikanir Ambrosíusar biskups. Þessar radd- ir voru þau frækorn, sem móðirin haföi sáð í hjarta barnsins, og sem æ síðan hafði verið vökvað með bænum hennar og tárum. Ágústínusi varö brátt ljóst af ræðum Abrosíusar, að vitnis- burður hinna heiönu fræöa um kristna trú var algerlega ósannur, 0g margt það, sem henni var borið á brýn var eintómur hleypi- dómur af óhreinum hvötum. Hann þorði ekki enn sem komiS var, að reiða sig á kenningu kristinnnar trúar, en þaðan af síður vogaði hann að treysta áreiðanleik hinna heiðnu fræða. Varð honum þetta til sárasta vonleysis og hugarangurs. Honum fanst hann standa á næfurþunnum ís, sem var að svigna og brotni undir fótum honum. Lífs tilveran sýndist tómleg og tilgangs- laus og án skipulags. Leitaði þessi hugsun svo fast á hann, að það gekkj sturlun næst. í þennan mund kom Monika til Milan. Varð Ágústínus fegnari en frá megi segja, að tala við hana um raunir sínar. Reyndi Monika að hughreysta hann og leiðbeina honum alt hvað hún kunni, og þótt henni virtist að for- tölur sínar ekki hefði mikil áhrif að sinni, lét hún ekki hugfail- ast, og treysti þvi, að Guð mundi opna hjarta sonar síns fyrir Ijósi kristindómsins og fól honum það mál af öllu -hjarta.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.