Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1923, Síða 27

Sameiningin - 01.05.1923, Síða 27
153 viö bænum foreldranna, ef ekki þreytist höndin og hjartaö aö lyfta sér til hans. Þaö bregst aldrei, aö sonur eöa dóttir “svo margra tára” getur ekki farist. Má vera, aö tungan sé stirö, höndin köld og holdiö þakiö mold, sem þreyttist ekki aö tala um vankvæöi sín viö Guö. En óheyröar geta slikar bænir ekki verið. --------o--------- Sunnudagsskóla-lexíur. 19. LBXIA : Förin til Gadara-bygðar—'Lú'k. 8, 22-40. 'MINNIST.: Hann gckk wn kring, gjörð'i gott og græddi alla, seni af djöflinum voru undirokaðir, því aS Guð var með honum. — Post. 10, 38. i Les.: Matt. 13, 24-52 fDæmisögurnar um illgresið, mustardkorn- ið, súrdegið, fjársjóðinn, perluna, netiö. Eftir aö Jesús hafði um tímakorn hafst viö á Galíleu-ströndinni, og kent mannfjöldanum, fór hann meö lærisveinum sínum austur yfir vatnið sunnan vert, til bygðarinnar, sem ýmist var kend við Gerar eöa Gadara. í för þessari birtist Jesús eins og friöarhöföinginn fjes. 9, 6J; eíns og sá, sem er máttugur aö frelsa fjes. 63,1J og megnar aö lægja stormana, bæði í ríki náttúrunnar, og eins inni fyrir, í sálum mannanna. Jesús svaf i bátnum á leiðinni. Hann var dauðþreyttur, sem ekki var mót von, eftir alt erfiöið meðal mannfjöldans i Galíleu. Frelsarinn bar allar byrðar mannlífsins með okkur, þreyttist og þjáöist fyrir okkar skuld. (Þ.ó er það eitthvað annað en veikleiki, sem viö sjáum hér, þegar viö í anda litum frelsarann sofandi á litlum', bát úti & vatninu, 5 stormi og lífsháska. Lærisveinarnir vakna; þeir horfa i dauðans angist eftir hjálp. Frelsarinn sefur vært, í ósjónum og rokinu, þvi að hann veit, að ekkert er að óttast. Lærum af honum að vera rólegir og stiltir í öllum storimum lífsins og í sjálfum dauöan- um. Scý sem lifir í Guöi, hvílir undir vernd almættisins á öllum timum fSjá Sálm. 91; Róm. 8, 31-39.) Svefninn á bátnum sýnir okkur manneðli Jesú. En þegar hann vaknar, og lægir storminn, þá kemur guöseðliö, í ljós. Hann lætur náttúruöflin hlýða sér, sýnir, aö hann er sá, sem öllu stjórn- ar með orði máttar síns fsjá Heb. 1,3) og frelsar mennina frá dauða. Plann daufheyrist aldrei við bænum okkar, þegar við hróp- um til hans í neyðinni, jafnvel þótt neyðarópiö beri vott um ófull- komleika trúarinnar. Við lendinguna mætir honum hryggileg sjón — mann-aumingi þjakaður af herliði myrkranna, áþreifanleg mynd spillingar og syndar í algleymingi. Mannlegir kraftar ráða ekki við syndina; hún ónj'tir ölli ráð; lætur sér af engu segjast, brýtur af sér alla

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.