Sameiningin - 01.07.1914, Síða 7
119
ba-fylkis. Hinn fyrirhugaði sjóðnr til minningar nm
dr. Jón Bjarnason, sem svo myndarlega var byrjað á af
þingmönnum sjálfnm, gefur mönnum örugga von um að
skólinn komist á fastar laggir og honum sé í framtíðinni
borgið. Séra Búnólfur Marteinssou, B.D., var endur-
kosinn skólastjóri og séra Hjörtur J. Leó, M.A., annar
kennari, fyrir komandi ár. Aðra kennara ræður for-
stöðunefnd skólans eftir þörfum. í þeirri nefnd eru:
séra N. Steingr. Þorláksson, séra Kristinn Iv. Ólafsson,
Magnús Paulson, Þorsteinn Oddsson, Halldór S. Bardal,
Jón J. Yopni, Árni Eggertsson.
6. Gamalmenna-heimili.
Það mál hafði fyrst komið fyrir kirkjuþing 1905.
Upptök þess eru hjá kvenfélagi Fyrsta lúterska safnaðar
í Winnipeg. Yerulega hafði kirkjufélagið ekki tekið
málið að sér fyrr en á kirkjuþingi í fyrra. Hafði svo
milliþinganefnd liaft málið með höndum síðasta ár.
Kom hún nú með skýrslu yfir hag* og horfur málsins.
Þingið ályktaði að stofnsetja þegar í haust heimili fyrir
íslenzk gamalmenni, í smáum stíl þó til byrjunar og í
leigðum húsakynnum, en jafnframt sé á komandi ári leit-
ast fyrir um hentugan samastað fyrir hælið, helzt hjá
smábæ einhverjum í íslenzkri bygð, þar sem unt verði
að eignast nokkrar ekrur lands. Tvö tilboð rausnarleg
um gefins land undir stofnun þessa liafa kirkjufélaginu
borist, og var fyrir þau þakkað að maklegleikum. Fram-
kvæmdarnefnd var kosin og rnálið henni falið. 1 þeirri
nefnd eru: séra N. Steingr. Þorláksson, Jónas Jóhann-
esson, Gunnlaugur Jóhannsson, Árni Eggertsson, Guðm.
P. Þórðarson.
7. Sunnudags-skólamál.
Sunnudagsskóla-starfinu var meiri gaumur gefinn
á þessu þingi, en verið hefir til margra ára, og spunnust
út af því miklar umræður um kristindómsfræðslu barna
og ungmenna alment. Forseti hafði í ársskýrslu sinni
bent á brýna þörf þess, að hvarvetna kæmust á safnaða-
skólar — daglegur skóli nokkrar vikur á ári til kristin-