Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1914, Qupperneq 30

Sameiningin - 01.07.1914, Qupperneq 30
142 Jónasson, því að hold og blóð hefir ekki opinberað þér þetta, heldur faöir minn á himnum. En eg segi þér: Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun eg byggja söfnuð minn, og hlið heljar skulu eigi verða honum yfirsterkari” JMatt. 16, 17- 18J. Á játningu Péturs vill hann byggja söfnuð sinn. Hvílíkur vitnisburður um gildi þeirrar játn- ingar ! Aftur og aftur lofaði hann, að vera með lærisveinum sínum eftir að hann væri skilinn frá þeim líkamlega: “Eg mun gefa yður tal- anda og vizku, og allir mótstöðumenn yðar munu ekki megna að standa á móti eða mótmæla” (%úk. 21, 15J. “Hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir i mínu nafni, þar er eg mitt á meðal þeirra” JMatt. 18, 20J. Gilcli þessarra orða geta þeir bezt gert sér grein fyrir, sem hafa persónulega reynslu fyrir því að fyrirheitið, sem í þeim felst, ekki bregst. Að skilningur lærisveinanna á nafninu, guðs sonur, þroskast, ber játning Tómasar með sér, er hann frammi fyrir hinum upprisna Jesú í lotningu og tilbeiðslu segir: “Drottinn minn og guð minn!” Og Jesús lýsir velþóknun sinni yfir þeirri játningu þannig: “Af því að þú hefir séð mig, hefir þú trúað; en sælir eru þeir, sem ekki sáu,og trúðu þó.” Hann var sakaður um, að gera sig guði jafnan fjóh. 5, 18J. Ber það vott um hvaða merkingu jafnvel óvinir hans lögðu í vitnisburð hans um sjálfan sig. Frammi fyrir ráðinu var hann spurður vand- lega:: “Ert þú þá guðs sonurinn? Og hann sagði við þá: Þér segið það, því að eg er það. En þeir sögðu: Hvað þurfum vér nú framar vitnis við, því að sjálfir höfum vér heyrt það af munni hans” (%úk. 22, 70. 71J. Og fyrir það var hann dæmdur til dauða. Tvær aðferðir hafa verið notaðar til að draga úr þessum miklu orðum frelsarans. Önnur er sú, að vefengja, að þetta séu orð hans; hin, að tæma þau merkingu sinni. 'Þannig, og þannig einungis, geta menn komist að þeirri niðurstöðu, að hann tali aldrei um sjálfan sig sem guð, eða um guðdóm sinn. ...... ....... 3. Kristur eöa Messías.—Kristur, eða Messías á hebresku (sem hvorttveggja þýðir hinn smurði) var nafn Gyðinga á hinum eftir- vænta konungi þeirra af ætt Davíðs, sem þeir vonuðu að ætti að hefja þjóðina til hinnar fornu tignar. Jesús tileinkaði sér þetta nafn (ýfóh. 4, 26; Matt. 16, 17; Mark. 14, 61. 62J, en lagði auðvitað í það meira innihald og göfugra en samtíð hans. Hann sýndi fram á, að um þá fyllri merkingu vitnaði alt lögmálið og spámennirnir, þó augu Gyð- inga væru haldin fyrir því. Gyðingar áttu von á járðneskum kon- ungi, sem myndi endurreisa veldi þeirra. En Jesús sagði: “Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Krists-nafnið táknar því verk það, er Jesús kom í heiminn til að leysa af hendi. Hann kom til að stofna guðs ríki á jörðinni, að boða guðs ríki. Jóhannes hafði á undan honum boðað, að guðs ríki væri nálægt. Og orðatiltækið var þekt meðal fólksins og vakti eftirvæntingu. En eftir því sem hann skýrði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.