Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1916, Side 8

Sameiningin - 01.10.1916, Side 8
230 tal gert honum gott? Ferðinni hans um heiminn var heit- ið til himins, áfangastaðar, er honum var alt í öllu, að ör- fáum árum liðnum myndi hann hafa komizt þangað eða mist þess staðar að eilífu! Vér skulum alveg, að eg held, leiða hest okkar frá þeirri vandræða-tilgátu, að það hafi verið auvirðilegur nábúa-kritur, milli Ágústínusar-munks- ins og Dominíkusar-munksins, sem fyrst bálaði hugmóð Lúters og hratt mótmælenda-stefnunni af stað. petta eitt viljum vér segja við þá, sem slíku halda fram, ef annars nú orðið nokkrir slíkir eru til: Reynið fyrst af öllu að komast í það hugarástand, sem nauðsynlegt er til þess að geta fært orð og athafnir Lúters og hans líka, öðru vísi en til verra vegar; þá, en ekki fyr, munum vér ræða þetta við yður. Munkurinn Tetzel var sendur út af örkinni til kaup- ferða, af Leó páfa hinum tíunda—sem þurfti að ná í pen- inga með hægu móti, og annars virðist heiðingi verið hafa fremur en kristinn maður, ef hann á annað borð var nokkuð í nokkru—, og kom munkur þessi til Vittenbergs og hóf þar óþokka-verzlun sína. Safnaðarmenn Lúters keyptu syndalausnar-miða; og við skriftir í kirkjunni bar fólk það blákalt fram, að það væri þegar búið að fá fyrir- gefningu syndanna. Ef Lúter átti nú ekki að svíkjast köllun sinni og reynast gunga og hugleysingi í þeim verka- hring, er honum var trúað fyrir og engum öðrum, varð hann nú að hefjast handa gegn syndalausnar-sölunni, og lýsa yfir því í heyranda hljóði, að hún væri að eins auvirði- leg uppgerðar-látalæti, að hún gæti ekki afleyst syndir nokkurs manns. petta var byrjun siðbótarinnar. Oss öll- um, er kunn saga hennar; frá því að athæfi Tetzel munks var fyrst mótmælt í heyranda hljóði, hinn síðasta dag Októbermánaöar 1517, og síðan gegnum deilur á deilur ofan; vaxandi meir og meir, stígandi hærra og hærra, þang- að til hún var orðin að því ógnar alheims-flóði, er ekkert fékk viðnám veitt. Hin insta þrá Lúters var að fá bót ráðna á þessu tjóni, sem öðrum; honum var enn þá fjarri skapi að koma af stað sundrung í kirkjunni, eða að rísa upp á móti páfanum, föður kristninnar. — Hinn snotri, heiðni páfi skeytti nú ekki mikið um Lúter og kenningar hans; en vildi samt að þaggað yrði niður í honum; og, að þremur árum liðnum, eftir að ýms mýkri meðul höfðu reynd verið, ásetti hann sér að reyna eldinn. Hann dæmdi ritverk Lúters til að brennast í eldi af böðlinum, og Lúter sjálfan til þess að verða bundinn viðjum og sendur til Rómaborgar, — líklega til sömu afdrifa. pannig losuðu þeir sig við Húss, við Jeróm, öldina áður. Býsna stuttorð röksemdafærsla þetta með eldinum. Veslings Húss. Hann

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.