Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1916, Síða 10

Sameiningin - 01.10.1916, Síða 10
232 fyrirgefið syndirnar. Er páfadómurinn og hin andlegu yfirráð kirkjunnar þá að eins fánýtur svikavefur úr klæði og pergamenti? Nei, þetta hvílir á ægilegum sannleikans grundvelli. Kirkja Guðs er ekkert svika-málverk; himinn og helvíti eru ekki svika-málverk. Við þetta stend eg blý- fastur, fyrst þú neyðir mig til þess. Og um leið og eg held mér við þetta, þá er eg, auvirðilegur þýzkur munkur þó eg sé, sterkari en þér allir. Eg stend einmana og vinalaus, en á bjargföstum sannleika Guðs; þér, með yðar þrílyftu hatta, úttrroðnar pyngjur og búr öll fleytifull, standið á lygi djöfulsins, og eruð samt ekki eins sterkir!—” pingið í Worms og framkoma Lúters á því hinn 17. Aprílmánaðar 1521, má skoðast sem aðal-viðburðurinn í hinni nýrri sögu Evrópu; jafnvel sem viðburðurinn, er öll síðari tíma siömenningarsaga hefir upptök sín í. Eftir endalaust þref og þjark, var þá komið svona. Hinn ungi keisari, Karl fimti, með öllum höfðingjum pýzkalands, er- indrekar páfa, yfirvöld, andleg og veraldleg, var alt þarna saman komið. Lúter átti nú að koma fram og svara fyrir sig, hvort hann vildi afturkalla orð sín eða ekki. Öll ver- aldarinnar glæsivöld sitja öðrum megin. Hinu megin stend- ur aleinn sonur hins fátæka námumanns, Hans Lúters, til þess að bera vitni sannleika Guðs. Vinir hans höfðu mint hann á dauða Húss, og ráðlagt honum að fara hvergi; en hann fór ekki að ráðum þeirra. Fjölmargir vinir hans riðu út á móti honum og vöruðu hann við með enn þá sterkari orðum; hann svaraði: “pó það væru í Worms eins margir djöflar og þaksteinar eru á húsum, myndi eg samt fara.” Um morguninn, er hann fór til þinghússins, þyrptust menn út í glugga og upp á húsþök. Sumir af þessum kölluðu til hans, og báðu hann í hátíðlegum rómi að afturkalla ekkert. “Hver sem afneitar mér fyrir mönnum”, kölluðu þeir til hans eins og til að stappa í hann guðlegu vilja-stálinu. Var ekki 'þetta líka bænarskrá vor, og bænarskrá alls heimsins, sem lá fjötraður á sál og anda, undir blýþungu fargi helblárrar martraðar og þrí-hattaðs skrýmslis, sem nefndi sig föður kristninnar og þar fram eftir götunum: “Frelsaðu oss; það liggur í valdi þínu; yfirgef oss ekki!” Lúter yfirgaf oss ekki. Ræða hans, sem stóð yfir í tvo tíma, var markverð fyrir það, hvað hún var kurteisleg, vitsmunaleg og blátt áfram; með undirgefnisanda til alls þess, sem átti heimtingu á undirgeíni, en ekki heldur til neins annars. Ritverk sín sagði hann að væru sumpart sín eigin handaverk, og sumpart dregin saman úr guðsorði. pað í þeim, sem væri sitt eigið, kvað hann undirorpið mann- legum ófullkomleika; ónærgætin reiðiyrði, misskilning og margt annað kvaðst hann manna íúsastur að kalla til baka.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.