Sameiningin - 01.07.1917, Blaðsíða 7
135
þinn —” Lengra komst hann ekki. Þá tók faðirinn
fram í fyrir konum og lokaði vörum lians með kossi.
Hann daglaunamaður! Nei. Sonur minn, sem danður
var er lifnaður aftur, og hann, sem týndur var, er fund-
inn”. Þetta er boðskapur Guðs til Lítiltrúaðs; boðskap-
ur hans frá Golgata til allra þeirra, er koma nötrandi til
lians. “Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefir svnt oss,
að vér”—þrátt fyrir syndir vorar í fjarlæga landinu—-
“skulum Guðs börn kallast”.
Þriðja skilyrðið er skírnin. Sá sem trúir og vcrður
skírður mun hólpinn verða”, segir Jesús. Skírðir í
vatni? Já. Hvort vatnið er mikið eða lítið varðar ekki,
sé það einungis útvortis merki um innvortis náð. Að
vera skírður með anda Jesú Krists er aðal-atriðið, þ. e.
með eldi, og afii, og’ lieigun, og endurnýjungn lífsins.
Skírnin sem sakramenti er upphafs-athöfn náðarlífsins
í kirkju Kirists. Hún tryggir manni sæti við kvöldmál-
tíðar-borð Drottins, svo hinn syndugi maður fái, eins og
glataði sonurinn heimkomni, klæddur fegurstri skikkju
og með innsiglis-hringinn á liönd sinni, notið veizlunnar.
Þetta eru skilyrðin þrjú, sem tryggja oss sáluhjálp-
lega náð. Þetta eru hin þrjú dýrlegu tækifæri hins líð-
anda dags. Dagurinn í gær er farinn; morgundagurinn
kemur ef til vill aldrei; dagurinn í dag er með oss. Til
hans erum vér komnir líkt og Jakob kom til Betel, flótta-
maður frá foirtíðinni. Yinalaus og, að því er liann ímynd-
aði sér, yfirgefinn af Guði, lagðist hann út af með stein
undir höfði og drejundi draum. Sæll er sá maður, sem
dreymir drauma og sér sýnir í einveru nætur! Sjá, stigi
reis þar frá jörðu og náði alt til himins; eftir stiganum
flytja englar veikar bænir hans til hæðanna og koma að
ofan með blessun Guðs til hans. Guð hefir ekki yfirgefið
hann þrátt fyrfr alt. Stigi þessi er dagurinn í dag, og
liverjum manni gefst kostur á að ganga hann upp.
Aftur heyrði eg röddu engilsins, sem bókar athafnir
mannanna, segjandi: “Eg er einnig Engill Upprisunn-
ar. Það var eg, sem vel'ti burt steininum af gröfinni í
grasgarði Jósefs, svo grátnar konur gætu séð Krist lif-
andi og grétu ekki framatr. Trúið á hann, sem í ljós leiddi
lífið og’ ódauðleikann”.
Er hér staddur einhver sá, sem ekki trúir á hann?