Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1917, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.07.1917, Qupperneq 13
141 gæti réttlætt þá fyrir breytni þeirra og á þeim grundvelli haft samfélag við þá. Margir eru nú samt verri en heiðingjarnir og Gyðing- arnir í þessum efnum. Eins og bent var á áðan, álíta þeir að Guði sé ekki alvara þegar hann fordæmir syndina og að maðurinn geti átt samfélag við hann skilyrðislaust þrátt fyrir hana. Rómverska kirkjan á hinn bóginn kennir, að Guð af náð sinni veiti mönnum kraftinn til að lifa réttlátlega, og að þeir, sem bezt lifa gjöri betur en krafist er, og geti þess- vegna miðlað hinum, sem ver breyta. En í hópi allra þessara flokka eru mannssálir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti, og kveljast af efa um það, að Guð geti litið velþóknunaraugum á þá.. Maðurinn getur ekki verið sæll fyr en hann er búinn að fá vissu um eilífa og velþóknanlega sambúð hjá Guði. Maðurinn þráir að komast til Guðs, en getur það ekki vegna syndarinnar, er mergurinn málsins í því, sem nú þegar hefir verið sagt- petta tvennt gjörir réttlætinguna af trúnni nauðsyn- lega. Maðurinn gat ekki komist til Guðs, og þess vegna varð Guð að koma til mannsins. En hann varð að gjöra það án þess að skerða á nokkurn hátt eiginlegleika sína eða að saurgast sjálfur af syndinni. Hann varð að finna einhvern veg til að bjarga manninum, frelsa hann frá afleiðingum syndarinnar, sem auðvitað var eilíf tortíning og útskúfun. En hann fann veg. Hann kom til mannsins. Kærleiks- ríkt og heilagt föðurhjarta hans gat ekki þolað að mann- kynið yrði vansælt til eilífðar. Hann sendi son sinn ein- getinn í heiminn, íklæddan mannlegu holdi og með fullkomið mannlegt eðli, án þess þó að skerða guðdóm sinn á nokkurn hátt. Guð-maðurinn—ótakmörkuð vera—bauðst til að taka á sig synd mannkynisns og líða hegningu fyrir hana alla. í viðburðinum sorglega, en þó gleðiríka, á Golgata, kom fram bæði réttlæti Guðs og heilagleiki hans; og þessu tvennu var þar fullnægt til eilífðar; en í sama viðburðinum var hinn óendanlegi kærleiki hans kröftuglega auglýstur. Á þessum grundvelli býður Guð öllum mönnum uppgjöf allra saka. pað er auglýst að búið sé að borga hina miklu skuld mannkynsins. En þetta gat Drottinn ekki gjört án friðþægingarinnar, því þá hefði hann eyðilagt tvo eiginleg- leika sína—réttlætið og heilagleikann. Alt, sem einstakling-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.