Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1917, Page 17

Sameiningin - 01.07.1917, Page 17
145 leggja aðal áherzluna á kenninguna, sem vér erum að ræða í kveld, réttlætinguna af trúnni, og með prédikun, kenlsu og samtali og á allan annan viðeigandi hátt, skulum vér leitast við af fremsta megni að vinna sálir fyrir frelsara vom Jesúm Krist. Ekkert nema Guðs náð, sem fæst fyrir Jesúm Krist getur bjargað mönnum úr greipum syndarinnar og dauðans. Ekki gáfur! Engin góðverk! Ekki trúin sjálf! Ekkert nema Guðs náð! Vinur! Ert þú réttlátur fyrir Guði? Lifir þú sönnu trúar- og bænalífi? Hefir þú gengið Jesú algjörlega á hönd og falið honum líf þitt? Hefir þú reynt hina miklu gleði, sem því er samfara að vera Guðs barn ? Ertu viss um eilífa sælu og dýrð? “ó! það slys því hnossi að hafna Hvílíkt fár á þinni braut, Ef þú blindur vilt ei varpa Von og sorg í Drottins skaut”. Ó, að kirkjufélag vort vildi nú, á þessu feraldar afmæli siðbótarinnar, vígja sig Guði á ný! ó, að vér mættum eign- ast trúna eins og Lúter eða Páll postuli! ó, að vér gætum skilið kristindóminn, bæði með höfði og hjarta, eins og Hall- grímur Pétursson! ó, að vér gætum leitt hverja synd- sjúka sál til kross Jesú Krists. ó, að starf vort mætti bless- ast og blómgast undir leiðsögn heilags anda, og bera mikinn ávöxt til eilífs lífs. “Ei oss ber heiður, heldur þér, En heiður þinn, ó Jesú, er, Að sigri haldi hjörðin sú, Er heiðrar þig með réttri trú”. Fréttir frá Japan. Eftir séra IV. Steingr. Thorláksson. II. Guðspallamaðurinn Lúkas lýsir í postulasögunni ný- ungagirni Aþenumanna á þessa leið: — “Allir Aþenumenn og aðkomnir, sem sezt hafa þar að, gáfu sér ekki tóm til annars fremur en að segja eða heyra eitthvað nýtt”. (Ps. 17, 21). pað var því létt að komast á tal við þá og fá þá til þess að hlusta á, ef um nýjungar var að ræða. Um Japansmenn má víst segja eitthvað svipað. þeir eru ný-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.