Sameiningin - 01.08.1909, Side 9
ióg
ara, sem þeir áðr voru, við þær lieilögu trúarlietjur, sem
þeir urðu seinna, þá sjáum vér það mikla djúp, sem stað-
1‘est er á milli borgaralegra dyggða annars vegar og
kristindómsins liins vegar. Þennan sannleika þurfum
vér að hafa hugfastan, einmitt á vorri tíð, þegar sú anda-
stefna vill ráða lögum og lofum í kristninni, sem vill
þurrka út allan þann mismun, sem er, og á að vera, á
kristnu trúarlífi og almennri ráðvendni. Líf lærisvein-
anna á undan og eftir þessum atburði sýnir þann mis-
mun ljóslega. Áðr höfðu þeir þrælkað fyrir líkamlegu
lífi sínu; hér eftir börðust þeir fyrir liinu andlega lífi
sínu. Áðr höfðu þeir tekið örbirgðinni með nœgjusemi
og' stritinu með þolgœði; síðar tóku þeir þrautum og of-
sóknum og liörmungum með fögnuði. Aðr liöfðu þeir
dýrkað guð eftir gyðinglegum siðareglum; síðar lærðu
þeir að dýrka hann í anda og sannleika. Áðr höfðu þeir
elskað ástvini sína; síðar báru þeir í brjósti brennandi
kærleik til allra manna. Áðr var réttlæti þeirra hlýðni
við lög; síðar varð það þakkarfórn kærleikans. Áðr var
Jesús þeim mikilsvirtr spámaðr; síðar varð hann þeim
ástvinr, sem þeir elskuðu innilegar en nokkra aðra sál.
Þannig á kristin trú að breyta lífi voru, ef vér stað-
festum hjörtu vor í Kristi. Allar almennar dyggðir
vorar eiga að lyftast upp í œðra veldi. Kærleikseldr-
inn guðlegi á að bræða þær allar upp, svo að þær renni
sainan í eitt; og undralyf kristins trúarlífs á að breyta
öllum þeim málmblendingi og sora í glóandi gull. Við
þesskonar breyting verða allir varir, sem á annað borð
eru vaknaðir andlega. Þeir finna glöggt, að allar þær
dyggðir, sem þeir hugðust áðr geta hrósað sér af, voru
á undan þeirri andlegu vakning eins og blóm eða gras-
toppr, sem vex inní bjargskúta, þar sem sólskinið nær
ekki til þeirra til að gefa þeim lit og þroska.
En fiskimennirnir þrír höfðu verið annað meira en
ráðvandir almúgamenn á undan þessum atburði. Þeir
liöfðu verið lærisveinar Jesú, eins og skýrt er frá í
fyrstu fjórum kapítulum Jóhannesar guðspjalls. Þeir
liöfðu verið kvaddir til fylgdar við Jesúm. Þeir höfðu
séð hann breyta vatni í vín í Kana og lækna son kon-