Sameiningin - 01.08.1909, Qupperneq 14
174
augljóst. Og einmitt fyrir þá sök liafði þetta
undr þau áhrif á liann, sem ekkert kraftaverk
Jesú liafði áðr liaft. Hér liggr lærdómrinn fyrir oss,
sem oss ríðr lífið á að skilja. Lúter sagði, að sáluhjálp-
ieg trú þyrfti að eiga þrjú lítil orð, sem liún gæti ekki
án verið. Það eru orðin eg, mér, mig. Hver einasti af
oss þarf að geta sagt um sjálfan sig: Eg hefi syndgað
móti guði, eg liefi iðrazt, eg er frelsaðr,eí7 liefi lært að
þekkja frelsara minn; fyrir mig er hann dáinn; mig
langar til að lielga lionum allt líf mitt.“ Geti lijörtu
vor ekki sagt já og amen við þessum orðum, þá erum
vér enn ekki orðnir staðfastir lærisveinar Krists.
Þótt Pétr kœmi þannig allt í einu auga á syndasekt
sjálfs sín og heilagleik frelsarans, þá getum vér með
engu móti sagt, hvort hann hafi þegar í stað sannfœrzt
um guðdóm Jesú. En líklegt er, að hann hafi þurft
lengri tíma til að skilja til fullnustu þann sannleika, sem
er dýpri, háleitari og leyndardómsfyllri en öll önnur
sannindi, sem trúin fær komið auga á. En hér kom
fram fyrsta skilyrðið fyrir því, að hann fengi komið
auga á þann dýrmæta sannleika. Kristinn maðr þarf
fyrst að þekkja spilling, sekt og eymd sjálfs sín, áðr en
hann geti lært að þekkja frelsara sinn réttilega. Því
án þess að finna sig sekan fyrir guði finnr enginn þörf
á slíkum frelsara. Og af svari Jesú sjáum vér, að hann
hrindir engum manni frá sér, sem fellr fram fyrir hon-
um auðmjúkr og iðrandi. Nei, jafnvel ekki þótt slíkr
maðr í iðrunar-örvinglan sinni biðji hann að vfirgefa
sig. Slík iðran er einmitt annað aðal-skilyrðið fyrir
því, að vér getum orðið stöðugir fylgjendr Jesú. Iðr-
anin og trúin eru tvö skaut í segulnál þess áttavita, sem
vér þurfum að nota í leitinni eftir guðs ríki. Iðranin
bendir í norðr, á ])okuþrungið og lirjóstugt ísbelti kær-
leiksleysis, syndar og efasemda, sem vér eigum að fjar-
lægjast; trúin bendir suðr, að liinu sólríka og frjósama
belti kærleikans, sem vér eigum að nálægjast. Þennan
áttavita hafði Pétr eignazt, og gat nú orðið óþreytandi
og stöðugr í leitinni.
Og hver var svo árangrinn af þessarri staðfesting