Sameiningin - 01.08.1909, Blaðsíða 17
177
Góðr guð veiti oss styrk til að liefja slíka leit hjá
sjálfum oss, og til að velja þá rétt, kasta burt þýfi synd-
arinnar, yfirgefa alls og gjörast einlægir og staðfastir
lærisveinar frelsara vors.
Bréf.
Minneota, Minn., 4. Ágúst 1909.
Herra Sigurðr Sigurðsson,
forseti Garðar-safnaðar,
Garðar, N.-Dakota.
Háttvirti og kæri herra!
Áðr liefi eg bréflega viðrkennt móttöku bréfs þess
frá Garðar-söfnuði, er dags. var 12. f. m., og þér liöfðuð
undirritað ásarnt skrifara safnaðarins. Nú hefi eg
einnig veitt móttöku bréfi yðar frá 26. f. m., þar sem þér
látið mér í té afskrift af fundarsamþykkt, er gjörð var í
söfnuði yðar 32. f. m., ásamt skýrslu yðar um atkvæða-
greiðsluna.
Þrátt fvrir það, að mér er um það kunnugt, að sam-
kvæmt gildandi lögum safnaðar yðar er atkvæðagreiðsl-
an ólögmæt, læt eg yðr hér með vita, að eg tók tilkynn-
ing yðar um úrgöngu Garðar-safnaðar gilda; og hefi eg
þegar gjört skrifara kirkjufélagsáns aðvart um að
„strika nafn Garðar-safnaðar út úr bókum kirkjufélags-
ins“, samkvæmt ósk safnaðarins.
En um leið og eg læt yðr vita þetta hlýt eg að bera
fram í nafni kirkjufélagsins sterkustu mótmæli gegn
ummælum þeim í fundarsamþykkt Garðar-safnaðar, er
svo hl jóða: „Þingið synjaði þeirri málaleitan, er borin
var fram af minna hlutanum, að félagsmenn mætti flytja
og fylgja þeim skoðunum og þeirri niðrstöðu, sem kristi-
leg rannsókn ritningarinnar nú á tímum áskilr sér rétt
ti! að mega halda fram.“
Naumast get eg trúað því, að þeir, sem framan-
skráða málsgrein settu saman, eða nokkur þeirra, sem
atkvæði greiddu með ,,samþykktinni“, hafi í raun og
veru haft í huga að bera þessa fjarstœðu á þingið.