Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1909, Page 30

Sameiningin - 01.08.1909, Page 30
190 við málið þar sem á því var byrjaö. Höldum áfram. ® Ýms merki eru til, sem hafa má fyrir mælikvaröa til að leggja á hring þann, sem hver þjóð út af fyrir sig fer svo lengi sem hún þreytir skeið sitt. Förum eftir þeim merkj- um, er vér berum saman Hebrea og Rómverja. „Þaö merki, sem öllum öðrum er hœgra aö átta sig á, er hið daglega líf þjóðarinnar. Um það vil eg að eins segja það, að Israel hefir stundum gleymt guöi, þar sem hins vegar Rómverjar hafa aldrei þekkt guð; þess er því enginn kostr að bera þær þjóðir saman. „Hafi mér skilizt rétt, hélt vinr þinn, eða hann, er svo var áðr, því fram gegn þér, að hjá oss væri engin skáld, engir listamenn og engir hermenn, og hugsa eg, að meö því hafi hann viljað neita því, að vér höfum átt nokkur mikilmenni; en það að eiga slíka menn er næst því, sem þegar er um getið, áreiðanlegasta merkið til að dœma þjóð- gildi eftir. Til þess að meta þessa sakargift rétt þarf undir eins í upphafi að skilgreina það, sem um er að rœða. Mikilmenni er, son minn kær! sá, sem meö lxfi sínu sýnir, að guð hefir við hann kannazt, eða jafnvel, að guö hefir kvatt hann fram. Babýlonarmenn voru sem verkfœri til þess að koma hegning fram á feðrum vorum fyrir fráfall þeirra frá guði, og þeir herleiddu þá í útlegðarvistina; Persar voru aftr á móti til þess útvaldir að koma börnum þeirra aftr til landsins helga; en meiri en sú þjóð hvor um sig voru Makedónar, sem það hlutverk fengu að láta hefnd koma fyrir þaö að Júdea og Musterið var lagt í rústir. Verðmæti hverrar þjóðarinnar um sig var í því fólgið, að hún haföi sérstaka köllun frá drottni, til að koma því til leiðar, sem hann vildi hafa fram; ög ekki rýrir það neitt vegsemd þeirra, að þetta voru heiðnar þjóðir. Þú mátt ekki gleyma þessarri skilgreining, meðan eg held áfram máli mínu. „Sú ímyndan er til, að hernaðr sé göfugasta starf, sem menn geti átt við, og því víðar sem einhver þjóð fœrir hernaðarsvið sitt út, því meiri verði frægð hennar. En þótt ímyndan þessi hafi hlotið viðrkennin<y heimsins, þá lát það þó ekki villa þig. Að vér hljótum að tilbiðja eitthvað er lögmál, sem haldast mun allt svo lengi sem nokkuð er til, sem vér fáum ekki skilið. Bœn villimanns er kvein, sem hann í hræðslu lætr til sín heyra og beinir að mættinum, en máttrinn er eini guðdómlegi eiginleikinn, sem hann getr greinilega áttað sig á; af þessu stafar trú hans á hetjur. Hvaö myndi Júpíter annað vera en rómversk hetja? Grikkir hafa sina miklu frægð sökum þess þeir voru á und- an öllum öðrum í því að meta andann meir en máttinn. Fyrir mælskumanni og heimspekingi var meiri lotning b'orin «

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.