Fréttablaðið - 16.04.2011, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
Helgarblað
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Hrafnhildi Skúladóttur, fyrirliða Íslandsmeistara Vals í handbolta kvenna, finnst kósíhelgar heima bestar.
Þ etta verður páska- og partíhelgi,“ segir Hrafnhildur sem í kvöld mun fagna Íslands-meistaratitli Valskvenna þriðja kvöldið í röð í lokahófi á Hlíðarenda.„Það venst ótrúlega vel að vinna og stórkostlegt að hampa bikarnum, ekki síst þar sem fleiri höfðu trú á Fram-liðinu, en það hleypti nú bara enn meira kappi í okkur,“
segir Hrafnhildur, enn í sigurvímu og verðskuldaðri pásu fram yfir helgi.
„Við höfum spilað alla laugardaga í vetur og afar fátítt að ég eigi heila fríhelgi. Þegar það
gerist er draumurinn að upplifa algjöran frið, fuglasöng og notalegheit með fjölskyldunni
í sumarbústað, en gangi það ekki upp finnst mér best að vera heima í kósíheitum,“ segir
Hrafnhildur. Hún byrjaði að æfa handbolta á tólfta ári og hefur verið í landsliðinu síðastliðin
fjórtán ár, sem hún segir alltaf jafn skemmtilegt. Hún er kennari að mennt og kennir tíu ára
börnum í Hofsstaðaskóla.„Nú kallar landsliðið á mánudag þegar við förum til Tyrklands og því tek ég dálítinn páska-
snúning um helgina, en ég þjófstartaði páskunum með páskaeggi sem er langt komið vegna
Tyrklandsferðarinnar,“ segir Hrafnhildur hláturmild og maulandi páskaeggsbrot með lítilli
dóttur sinni sem er heima með hlaupabólu.
„Ég hef því miður ekki alltof mikinn tíma fyrir blessuð börnin mín, en við höldum fast við
okkar ritúal þegar kósíhelgar gefast. Hluti af því er að naglalakka táslurnar á litlu skvísunni
minni, en svo spilum við líka borðspil og erum miklar félagsverur sem njótum þess að fá
gesti og heimsækja aðra,“ segir Hrafnhildur sem á skilningsríkan eig-
inmann og dæturnar Viktoríu Dís 10 ára og Alexöndru Ósk 3 ára.
„Handboltinn nýtur fulls stuðnings á heimilinu því annars mundi
þetta aldrei ganga upp. Karlinn minn tekur mikinn þátt í þessu,
mætir á alla leiki, og telur ekki eftir sér að vera með krakkana.
Sjálfur er hann mikið fjarverandi vegna sinnar vinnu og stund-
um mætumst við í útihurðinni þegar hann
fer út og ég kem inn. Dæturnar hafa van-
ist þessu lífi frá því að þær voru nokk-
urra mánaða því þá þurfti ég fljótt að
fara utan í langar landsliðsferðir. Því
fylgir að sjálfsögðu söknuður en á sama tíma er alltaf jafn yndis-legt að koma heim á ný og það þýðir lítið að vera með sam-viskubit, enda tók ég ákvörð-un um að vera í boltanum alla leið og þá kostar það þetta.“
thordis@frettabladid.is
Þjófstartar páskunum
S.L.Á.T.U.R (samtök listrænt ágengra tónsmíða
umhverfis Reykjavík) munu láta að sér kveða á
sýningunni Hjóðheimum sem stendur yfir í Lista-
safni Íslands í dag. Tónskáldin flytja bæði fyrirlestra
um tónsmíðaaðferðir og halda tónleika þar sem
verk þeirra verða flutt. Dagskráin hefst klukkan 13
og stendur til 15.45.
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
Stuttkápur
verð frá
19,900 til
37,900 kr.
Y rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali.
Toppvörur
toppþjónusta
.
Mikið úrval af fallegum skóm og töskum
Gæði & Glæsileiki
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar H lgason hrannar@365.is 512 5441
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTA
BLAÐSINS UM MA
T ]
apríl 2011
Frjósemistákn
og vorboðar
Þríréttuð eggjamáltí
ð.
SÍÐA 4.
Lambahrygg-
vöðvi í hnetuhjúp
Páskasteik að hætti
Guðlaugs P.
Frímannssonar matr
eiðslumanns.
SÍÐA 6
16. apríl 2011
89. tölublað 11. árgangur
3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu
Matur l Allt l Allt atvinna
Rebekka í Hjaltalín
og fagottuppreisnin
Orð eru til alls fyrst
Deiluaðilar velja viðeigandi
málshætti hverjir fyrir aðra.
páskar 36
Rose
eyðilagði
ævintýrið
NBA 40
tónlist 34
Andleg auðlegð
nauðsynleg
Jenna Jensdóttir, heiðurs-
verðlaunahafi Samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins,
ræðir lífið og tilveruna.
fólk 24
FRÉTTABLAÐIÐ TÍU ÁRA Fréttablaðið fagnar tíu ára afmæli laugardaginn 23. apríl næstkomandi. Í tilefni af því efnir blaðið til afmælis-
sýningar sem verður opnuð í Perlunni í dag, þar sem stiklað verður á stóru í fréttum liðins áratugar. Fréttablaðið býður lesendum sínum að fagna með sér í
Perlunni frá klukkan 13 til 16 í dag. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
tíska 42
Hverju skilaði skýrslan?
Ár er liðið frá útgáfu skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
stjórnmál 26
spottið 16
Páskaglaðningur Icelandair American Express®
Skráðu þig á americanexpress.is
og fáðu tvöfalda Vildarpunkta Icelandair af allri veltu
frá 15. til og með 30. apríl!
Lita-
sprengja
vorsins
KJARAMÁL Óvissa ríkti enn í kjara-
viðræðum Alþýðusambandsins
(ASÍ) og Samtaka atvinnulífisins
(SA) í gærkvöld.
Kjarasamningur til þriggja
ára var sleginn út af borðinu síð-
degis í gær og ekki hafði náðst
samkomulag um gerð samninga
til styttri tíma. Fundur stóð þó
enn yfir þegar Fréttablaðið fór í
prentun.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra sagði í gærkvöld að við-
ræður hefðu strandað á sjávar-
útvegsmálum. Sátt hefði getað
náðst um öll önnur atriði.
„Það er furðulegt að LÍÚ skuli
stilla upp þessu stóra ágreinings-
máli til áratuga sem fyrirstöðu við
kjarasamninga og koma þannig í
veg fyrir þær miklu kjarabætur
sem fólust í langtímasamningum.“
Jóhanna segir mikil vonbrigði
að samningar til þriggja ára hafi
mistekist en ríkisstjórnin hafi lagt
sig alla fram til að tryggja frið og
stöðugleika á vinnumarkaðnum.
„Málið strandaði á óbilgirni LÍÚ
vegna fiskveiðistjórnunarkerfis-
ins. Það stóð ekkert annað út af,“
segir Jóhanna.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagði í gærkvöld
að niðurstaðan væri vonbrigði.
Hann sagði þungt yfir mönnum
við samningaborðið. Sjaldan hefði
sést önnur eins árás á sjávarútveg-
inn eins og í upphafsorðum sátta-
plaggs ríkisstjórnarinnar sem lagt
var fyrir samningamenn í gær.
„Það varð ljóst að málin þróuð-
ust fljótt yfir í umræður um sam-
komulag til skamms tíma,“ sagði
Vilhjálmur. „Við komumst ekkert
úr sporunum með sjávarútvegs-
málin, samgönguframkvæmdir
eða orkumál.“
SA sendi frá sér yfirlýsingu
í gærkvöld þar sem harmað er
að ríkisstjórnin skuli ekki hafa
komið til móts við atvinnurekend-
ur í málefnum sjávarútvegs. - sv
Strandaði á sjávarútveginum
Langtímasamningur SA og ASÍ er ekki lengur til umræðu. Unnið var að skammtímasamningi í gærkvöld.
Forsætisráðherra sakar LÍÚ um óbilgirni. Framkvæmdastjóri SA segir stjórnvöld hafa ráðist á sjávarútveginn.