Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 1

Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Helgarblað Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hrafnhildi Skúladóttur, fyrirliða Íslandsmeistara Vals í handbolta kvenna, finnst kósíhelgar heima bestar. Þ etta verður páska- og partíhelgi,“ segir Hrafnhildur sem í kvöld mun fagna Íslands-meistaratitli Valskvenna þriðja kvöldið í röð í lokahófi á Hlíðarenda.„Það venst ótrúlega vel að vinna og stórkostlegt að hampa bikarnum, ekki síst þar sem fleiri höfðu trú á Fram-liðinu, en það hleypti nú bara enn meira kappi í okkur,“ segir Hrafnhildur, enn í sigurvímu og verðskuldaðri pásu fram yfir helgi. „Við höfum spilað alla laugardaga í vetur og afar fátítt að ég eigi heila fríhelgi. Þegar það gerist er draumurinn að upplifa algjöran frið, fuglasöng og notalegheit með fjölskyldunni í sumarbústað, en gangi það ekki upp finnst mér best að vera heima í kósíheitum,“ segir Hrafnhildur. Hún byrjaði að æfa handbolta á tólfta ári og hefur verið í landsliðinu síðastliðin fjórtán ár, sem hún segir alltaf jafn skemmtilegt. Hún er kennari að mennt og kennir tíu ára börnum í Hofsstaðaskóla.„Nú kallar landsliðið á mánudag þegar við förum til Tyrklands og því tek ég dálítinn páska- snúning um helgina, en ég þjófstartaði páskunum með páskaeggi sem er langt komið vegna Tyrklandsferðarinnar,“ segir Hrafnhildur hláturmild og maulandi páskaeggsbrot með lítilli dóttur sinni sem er heima með hlaupabólu. „Ég hef því miður ekki alltof mikinn tíma fyrir blessuð börnin mín, en við höldum fast við okkar ritúal þegar kósíhelgar gefast. Hluti af því er að naglalakka táslurnar á litlu skvísunni minni, en svo spilum við líka borðspil og erum miklar félagsverur sem njótum þess að fá gesti og heimsækja aðra,“ segir Hrafnhildur sem á skilningsríkan eig- inmann og dæturnar Viktoríu Dís 10 ára og Alexöndru Ósk 3 ára. „Handboltinn nýtur fulls stuðnings á heimilinu því annars mundi þetta aldrei ganga upp. Karlinn minn tekur mikinn þátt í þessu, mætir á alla leiki, og telur ekki eftir sér að vera með krakkana. Sjálfur er hann mikið fjarverandi vegna sinnar vinnu og stund- um mætumst við í útihurðinni þegar hann fer út og ég kem inn. Dæturnar hafa van- ist þessu lífi frá því að þær voru nokk- urra mánaða því þá þurfti ég fljótt að fara utan í langar landsliðsferðir. Því fylgir að sjálfsögðu söknuður en á sama tíma er alltaf jafn yndis-legt að koma heim á ný og það þýðir lítið að vera með sam-viskubit, enda tók ég ákvörð-un um að vera í boltanum alla leið og þá kostar það þetta.“ thordis@frettabladid.is Þjófstartar páskunum S.L.Á.T.U.R (samtök listrænt ágengra tónsmíða umhverfis Reykjavík) munu láta að sér kveða á sýningunni Hjóðheimum sem stendur yfir í Lista- safni Íslands í dag. Tónskáldin flytja bæði fyrirlestra um tónsmíðaaðferðir og halda tónleika þar sem verk þeirra verða flutt. Dagskráin hefst klukkan 13 og stendur til 15.45. Mörkinni 6 - Sími 588 5518 Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16 Stuttkápur verð frá 19,900 til 37,900 kr. Y rhafnir, bolir og peysur í miklu úrvali. Toppvörur toppþjónusta . Mikið úrval af fallegum skóm og töskum Gæði & Glæsileiki FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060 Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16 Sérverslun með Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar H lgason hrannar@365.is 512 5441 matur [ SÉRBLAÐ FRÉTTA BLAÐSINS UM MA T ] apríl 2011 Frjósemistákn og vorboðar Þríréttuð eggjamáltí ð. SÍÐA 4. Lambahrygg- vöðvi í hnetuhjúp Páskasteik að hætti Guðlaugs P. Frímannssonar matr eiðslumanns. SÍÐA 6 16. apríl 2011 89. tölublað 11. árgangur 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Matur l Allt l Allt atvinna Rebekka í Hjaltalín og fagottuppreisnin Orð eru til alls fyrst Deiluaðilar velja viðeigandi málshætti hverjir fyrir aðra. páskar 36 Rose eyðilagði ævintýrið NBA 40 tónlist 34 Andleg auðlegð nauðsynleg Jenna Jensdóttir, heiðurs- verðlaunahafi Samfélags- verðlauna Fréttablaðsins, ræðir lífið og tilveruna. fólk 24 FRÉTTABLAÐIÐ TÍU ÁRA Fréttablaðið fagnar tíu ára afmæli laugardaginn 23. apríl næstkomandi. Í tilefni af því efnir blaðið til afmælis- sýningar sem verður opnuð í Perlunni í dag, þar sem stiklað verður á stóru í fréttum liðins áratugar. Fréttablaðið býður lesendum sínum að fagna með sér í Perlunni frá klukkan 13 til 16 í dag. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM tíska 42 Hverju skilaði skýrslan? Ár er liðið frá útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. stjórnmál 26 spottið 16 Páskaglaðningur Icelandair American Express® Skráðu þig á americanexpress.is og fáðu tvöfalda Vildarpunkta Icelandair af allri veltu frá 15. til og með 30. apríl! Lita- sprengja vorsins KJARAMÁL Óvissa ríkti enn í kjara- viðræðum Alþýðusambandsins (ASÍ) og Samtaka atvinnulífisins (SA) í gærkvöld. Kjarasamningur til þriggja ára var sleginn út af borðinu síð- degis í gær og ekki hafði náðst samkomulag um gerð samninga til styttri tíma. Fundur stóð þó enn yfir þegar Fréttablaðið fór í prentun. Jóhanna Sigurðardóttir forsæt- isráðherra sagði í gærkvöld að við- ræður hefðu strandað á sjávar- útvegsmálum. Sátt hefði getað náðst um öll önnur atriði. „Það er furðulegt að LÍÚ skuli stilla upp þessu stóra ágreinings- máli til áratuga sem fyrirstöðu við kjarasamninga og koma þannig í veg fyrir þær miklu kjarabætur sem fólust í langtímasamningum.“ Jóhanna segir mikil vonbrigði að samningar til þriggja ára hafi mistekist en ríkisstjórnin hafi lagt sig alla fram til að tryggja frið og stöðugleika á vinnumarkaðnum. „Málið strandaði á óbilgirni LÍÚ vegna fiskveiðistjórnunarkerfis- ins. Það stóð ekkert annað út af,“ segir Jóhanna. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, sagði í gærkvöld að niðurstaðan væri vonbrigði. Hann sagði þungt yfir mönnum við samningaborðið. Sjaldan hefði sést önnur eins árás á sjávarútveg- inn eins og í upphafsorðum sátta- plaggs ríkisstjórnarinnar sem lagt var fyrir samningamenn í gær. „Það varð ljóst að málin þróuð- ust fljótt yfir í umræður um sam- komulag til skamms tíma,“ sagði Vilhjálmur. „Við komumst ekkert úr sporunum með sjávarútvegs- málin, samgönguframkvæmdir eða orkumál.“ SA sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem harmað er að ríkisstjórnin skuli ekki hafa komið til móts við atvinnurekend- ur í málefnum sjávarútvegs. - sv Strandaði á sjávarútveginum Langtímasamningur SA og ASÍ er ekki lengur til umræðu. Unnið var að skammtímasamningi í gærkvöld. Forsætisráðherra sakar LÍÚ um óbilgirni. Framkvæmdastjóri SA segir stjórnvöld hafa ráðist á sjávarútveginn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.