Fréttablaðið - 16.04.2011, Side 4

Fréttablaðið - 16.04.2011, Side 4
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR4 Í frásögn af sýknudómi Hæstaréttar yfir manni sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn syni sínum, sem birt var í Fréttablaðinu í gær, var ranglega sagt að sæðisblettir sem fundust á laki í rúmi drengsins væru frá manninum komnir. Hið rétta er að þeir voru frá drengnum komnir. Fréttablaðið biður hlutaðeigandi afsökunar á þessum mistökum. LEIÐRÉTTING HEILBRIGÐISMÁL „Á hverju ári þurf- um við að vísa um það bil tvö þúsund manns frá um lengri eða skemmri tíma vegna heilsufars, sögu um veikindi, lyfja notkunar, aðgerða, ferðalaga, bólu setninga og fleira,“ segir Sveinn Guð- mundsson, yfirlæknir í Blóð- bankanum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðu- neytinu er lagt fyrir Landspítal- ann að reka blóðbanka sem hafi gæðakerfi í samræmi við leið- beiningar sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. „Fyllsta örygg- is skal ávallt gætt við vinnslu með blóð til að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma í sam- ræmi við leiðbeiningar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar,“ segir enn fremur í reglugerðinni. Sveinn segir skimun gegn lifrar bólgu hafa byrjað árið 1971, fyrir HIV árið 1985 og fyrir lifrar- bólgu C (HCV) 1992. „Við þekkjum ekki til neins tilfellis á síðustu tíu árum þar sem einstaklingur hefur fengið veirusmit vegna blóðhluta,“ svarar Sveinn aðspurður. Eins og sagði í Fréttablaðinu á fimmtudag er körlum sem haft hafa samfarir við aðra karla vísað frá vegna ótta við sjúkdóma sem smitast með blóði. Ýmsir aðrir eru taldir til áhættuhópa. Fórnarlömb nauðgana og þeir sem fengið skart- gripagötun eða verið til heimils á sama stað og einhver með lifrar- bólgusmit mega til dæmis ekki gefa blóð í hálft ár á eftir. Þá eru sérstakar reglur varð- andi fólk sem fætt er utan Íslands. Það má gefa blóð þegar það hefur verið hér í minnst þrjá mánuði og er frá Ástralíu, Bandaríkjunum, Evrópu, Kanada eða Nýja-Sjá- landi. Um fólk af öðru þjóðerni gildir sex mánaða regla. Allir blóðþegar verða þó að geta lesið og skilið íslensku. „Ef tjáskipta- örðugleikar eru til staðar skal vísa blóðgjafa frá,“ segir í reglum Blóðbankans. Þeir sem stunda vændi mega ekki gefa blóð. Sá sem haft hefur mök við þann sem stundar vændi má ekki gefa blóð í eitt ár á eftir. Sumir sjúkdómar sem fólk hefur og lyf sem það tekur við þeim koma í veg fyrir að það sé gjald- gengt sem blóðgjafar. Alnæmi, HIV og krónískur astmi og hjart- sláttartruflanir eru þar á meðal. Einnig geðveiki, gigtsótt, langvinn áfengissýki, efnaskiptasjúkdómar, lifrar-, nýrna- og lungnasjúkdóm- ar og krabbamein. Og ef fólk hefur verið bitið af öðrum manni má það ekki gefa blóð næstu sex mánuði. gar@frettabladid.is Fórnarlömb nauðgana gefi öðrum ekki blóð Ströngum reglum er fylgt í Blóðbankanum til að hindra að smitað blóð berist þaðan í sjúklinga sem þurfa blóðgjöf. Vændiskonur og fólk sem hefur verið nauðgað má ekki gefa blóð. Heldur ekki þeir sem hvorki lesa né skilja íslensku. 1. Sá sem fengið hefur vefjaígræðslu úr dýri eða heilavef úr mönnum. 2. Sá sem hefur heyrt um Creutzfeldt-Jakob sjúkdóm eða aðra smitandi heilahrörnunarsjúkdóma í ætt sinni. 3. Sá sem er smitaður af eða gæti hafa smitast af lifrarbólgu- eða alnæmisveiru. 4. Sá sem einhvern tíma hefur sprautað sig einu sinni eða oftar með fíkniefnum, vefaukandi sterum, hormónum eða öðrum lyfjum án fyrirmæla læknis. 5. Karlmaður sem haft hefur samfarir við sama kyn. 6. Sá sem stundað hefur vændi. 7. Sá sem deilir rúmi með þeim sem falla undir liði 3 til 6. Heimild: Blóðbankinn. Þeir sem ekki mega gefa blóð 1. Fengið skartgripagötun. 2. Verið í speglun með sveigjanlegum tækjum. 3. Verið í nálastungumeðferð hjá öðrum en lækni, hjúkrunarfræðingi, ljósmóður eða sjúkraþjálfara. 4. Fengið húðflúr eða aðra stungu í húð, til dæmis rafhára eyðing og förðun. 5. Fengið blóð eða vefjaígræðslu frá mönnum. 6. Stungið sig með notaðri nál eða fengið á sig líkamsvessa frá einstaklingi í áhættuhópi. 7. Deilt heimili með einstaklingi sem er smitaður af lifrarbólgu- veiru. 8. Karlmaður sem haft hefur samfarir við sama kyn. 9. Stundað vændi. Heimild: Blóðbankinn. Frestun blóðgjafar í minnst sex mánuði Í Fréttablaðinu á fimmtudag kom fram að áhorf á sjónvarpsþáttinn Steindann okkar hefði verið nærri 25 prósentum samkvæmt bráðabirgða- tölum frá Stöð 2. Tölurnar reyndust ekki réttar því áhorfið var tæp sextán prósent í aldurshópnum 12 til 49 ára þegar niðurstöðurnar voru skoðaðar á vef Capacent Gallup. AKRANES Níu og hálfs mánaðar framleiðslustöðvun í Sements- verksmiðjunni á Akranesi lýkur í dag. Þetta kemur fram á heima- síðu verkalýðsfélags Akraness. Framleiða á 25 þúsund tonn af sementi, meðal annars fyrir Búðarhálsvirkjun. „Þetta eru gríðarlega jákvæð tíðindi,“ segir á heimasíðunni. Í fyrra voru framleidd á Íslandi tæplega 38 þúsund tonn af sem- enti og flutt inn um 28 þúsund tonn. „Verkalýðsfélag Akraness skorar á íslenska ríkið sem og alla verktaka að styðja við íslenska framleiðslu með því að kaupa íslenskt sement,“ segir Verkalýðs- félagið. - gar Löngu stoppi lýkur í dag: Framleiðir sement að nýju SEMENTSVERKSMIÐJAN Á AKRANESI Framleiðir meðal annars fyrir Búðarháls- virkjun. EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra sækir nú vorfund fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) þar sem hann mun meðal annars, að því er fram kemur í tilkynningu, skýra frá niður- stöðu Icesave- kosningarinn- ar um síðustu helgi og áhrif- um hennar. Fundurinn er haldinn í Washington-borg og mun ráðherra þar hitta helstu stjórnendur AGS sem og fulltrúa ríkja og ríkisstjórna sem sæti eiga í sjóðnum. Ráðherra mun einnig gera grein fyrir framgangi efnahags- áætlunar AGS í samvinnu við íslensk stjórnvöld. - þj Eftirköst Icesave-höfnunar: Steingrímur til fundar við AGS STEINGRÍMUR J SIGFÚSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 19° 17° 17° 11° 19° 17° 10° 10° 21° 18° 20° 11° 31° 15° 18° 17° 12°Á MORGUN 5-10 m/s MÁNUDAGUR 3-8 m/s, en 10-15 suðaustast 4 3 1 3 3 5 10 6 56 -1 9 9 10 7 13 8 8 7 10 12 11 4 2 3 6 4 3 2 6 8 7 FÍNT EYSTRA Það verður ágætt veður á Norðaustur- og Austurlandi í dag á morgun, yfi r- leitt bjart veður og 6-10 stiga hiti yfi r hádaginn. Dregur úr vindi á land- inu á morgun en úrkomusamt um vestanvert landið og síðan sunnan til annað kvöld. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður UMHVERFISMÁL Forsvarsmenn Becromal á Íslandi, sem rekur aflþynnuverksmiðju í Krossa- nesi við Akureyri, segjast munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda umhverf- ið og mæta þeim kröfum sem Íslendingar gera í þeim efnum. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær vegna umfjöllunar um ítrekuð brot þess á reglum, með því að sleppa vítissódamenguðu vatni í Eyjafjörð. Fyrirtækið hefur ákveðið að vinna að úrbótum í mengunar- vörnum, uppfæra eftirlitskerfi og breyta fyrirkomulagi við skýrslugerð og tilkynningar. - sh Bregðast við mengun: Becromal heitir bót og betrun HEILBRIGÐISMÁL Búið er að loka lyflækningadeildum á Landspít- alanum í Fossvogi og Sjúkrahús- inu á Akureyri vegna nóróveiru- sýkingar. Alls hafa tíu manns, sex sjúklingar og fjórir starfsmenn, greinst með sýkinguna á spítalan- um á Akureyri, þar sem einnig var skipt upp hand- og bæklunardeild til að varna frekara smiti. Viku- dagur greindi frá málinu. Á Landspítalanum eru um átta sjúklingar og átta starfsmenn sýktir af nóróveiru. Ólafur Guð- laugsson, yfirlæknir sýkinga- varnadeildar, segir veiruna koma reglulega upp á veturna en þó sé ekki algengt að loka þurfi heilu deildunum til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu. Nóróveira er viðvarandi yfir vetrarmánuðina hér á landi og orðin mjög algeng orsök fyrir sýk- ingum í meltingarvegi. Algeng- ustu einkenni eru uppköst, ógleði og niðurgangur. Ása Atladóttir, hjúkrunarfræðingur á sóttvarna- sviði landlæknisembættisins, segir mikilvægustu vörnina gegn sýkingunni vera handþvott og almennt hreinlæti. „Sýkingin er mjög smitandi og þar sem er mjög stutt á milli fólks berst hún auðveldlega á milli,“ segir Ása. „Ein sýkt manneskja getur komið af stað faraldri.“ - sv Búið að loka deildum á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna nóróveiru: Sjúklingar og starfsmenn sýktir DEILDIN ER LOKUÐ! Lungna- og lyflækn- ingadeild á Landspítalanum er nú lokuð vegna nóróveirusýkingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÍBIA, AP Hersveitir hliðhollar Muammar Gaddafi, leiðtoga Líbíu, gerðu í gær innrás í borg- ina Misrata í vesturhluta lands- ins. Er borgin síðasta stóra borg- in í höndum uppreisnarmanna í vesturhlutanum. Flugárásir hersveita NATO á hersveitir Gaddafi hafa ekki þótt skila tilætluðum árángri en yfir- maður heraflans í Líbíu hefur óskað eftir fleiri orrustuflugvél- um. Barack Obama Bandaríkja- forseti segir pattstöðu komna upp í landinu. - mþl Áframhaldandi bardagar: Pattstaða kom- in upp í Líbíu GENGIÐ 15.04.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 217,2144 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 112,83 113,37 184,49 185,39 162,89 163,81 21,837 21,965 20,817 20,939 18,152 18,258 1,3519 1,3599 180,14 181,22 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is FYLGIR MEÐ BLAÐINU Í DAG! Sérblað með sumarstörfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. NÁNARI UPPLÝSINGAR: VMST.IS
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.