Fréttablaðið - 16.04.2011, Qupperneq 34
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR34
Foreldrar
mínir vildu
ekki troða
neinu
upp á mig
þegar ég
var ung.
Ég tók þá
ákvörðun
að skírast
ekki inn í
aðventista-
kirkjuna
og það var
ekkert mál
af þeirra
hálfu.
V
ið höfum farið í þónokk-
ur tónleikaferðalög áður
en aldrei svona langt og
strangt. Þetta voru 28
tónleikar á einum mán-
uði. Við byrjuðum í Bret-
landi og fórum þaðan yfir á meginland
Evrópu, spiluðum í Hollandi, Belgíu,
Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu,
Tékklandi, Sviss og Austurríki, og
þetta var dálítið strembið en ofboðs-
lega gaman. Líklega hefðum við aldrei
getað þetta án nightliner-svefnrútunn-
ar sem við fengum á meginlandinu. Þá
var bara keyrt á næturnar og á hverj-
um degi vöknuðum við í nýrri borg,
sem var yndislegt,“ segir Rebekka
Bryndís Björnsdóttir, fagottleikari
Hjaltalín, einnar vinsælustu hljóm-
sveitar landsins sem er nýkomin til
Íslands eftir veglegt vorferðalag um
Evrópu.
Hún segir viðtökurnar almennt hafa
verið afar góðar, en þó sýnu bestar í
París, Mílanó og Prag. „Svo eigum við
einhverra hluta vegna stóran og góðan
aðdáendahóp í Þýskalandi. Reyndar
sjáum við líka á Facebook- og MyS-
pace-síðum Hjaltalín að aðdáend-
ur okkar koma alls staðar að. Það er
mjög gaman að sjá að fólk frá Ástralíu,
Mexíkó og Perú hefur mikinn áhuga á
að fá okkur til sín til að halda tónleika.
Við vitum ekki hvernig tónlistin okkar
nær svona mikilli dreifingu, en líklega
er svarið einfalt: að fólk deili því sem
því finnst gott. Kannski er eitthvað af
þessu fólki að leita að einhverju aðeins
öðruvísi en Lady Gaga. Svo hafa líka
margir óþrjótandi áhuga á Íslandi og
finnst íslensk tónlist almennt alveg
frábær. Svona Íslandsperrar. Þeir leyn-
ast víða,“ segir Rebekka og hlær.
Uppreisn gegn fjölskylduhefð
Hjaltalín var stofnuð af fjórum nem-
endum Menntaskólans við Hamrahlíð
haustið 2004. Rebekka gekk til liðs við
sveitina tveimur árum síðar, 2006, en
hún er borin og barnfæddur Keflvík-
ingur og eyddi mjög stórum hluta æsku
sinnar í að læra á hljóðfæri. Fyrst um
sinn einbeitti hún sér að píanóleik, svo
sellói, og þegar henni fór að leiðast
píanóið tók hún þá ákvörðun að fagott-
ið væri hennar hljóðfæri.
„Í og með var þetta uppreisn gegn
fjölskylduhefðinni, því þar ræður
brassið ríkjum. Bæði mamma mín
og afi eru trompetleikarar og bróð-
ir minn spilar á franskt horn, svo ég
þurfti auðvitað að velja tréblásturs-
hljóðfæri til að vera öðruvísi. Mamma
er líka aðstoðarskólastjóri við tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar og þegar ég
var lítil sá hún um lúðrasveitina, djass-
sveitina og ýmislegt fleira. Ég fór því
mjög oft í ferðalög með þessum sveit-
um og þegar ég hafði lært á fagottið
gat ég loksins spilað með þeim og orðið
að einhverju liði. Svo kom í ljós að það
vantaði bassaleikara í djasssveitina
svo ég lærði á hann líka og var þá að
spila á allt í senn bassa, fagott og selló
á tímabili,“ segir Rebekka, en hún lék
um hríð á bassa í keflvísku rokksveit-
inni Streng sem innihélt meðal ann-
arra stofnmeðlimi hljómsveitarinnar
vinsælu Valdimars, sem einnig nýtur
mikilla vinsælda nú um stundir. Að
sögn Rebekku þykir henni afar vænt
um sveitina Streng og segir stefnuna
setta á örlitla endurkomu hennar þegar
einn meðlimanna snýr aftur heim úr
námi í vor. „Kannski höldum við eina
tónleika á Paddy‘s í Keflavík,“ segir
hún.
Vildi ekki verða tónlistarmaður
Merkilegt nokk var Rebekka harð-
ákveðin í því að verða ekki tónlistar-
maður þegar hún yxi úr grasi, þrátt
fyrir þann mikla tíma sem fór í æfing-
ar og spilamennsku. Hún minnist þess
hversu gáttaður fagott-kennarinn
hennar varð þegar hún tjáði honum á
menntaskólaárum að hún stefndi ein-
ungis að því að vera áhugamaður í
faginu, þegar flestir aðrir nemendur
ólu í brjósti sér drauma um að verða
atvinnumenn og einleikarar.
„Þetta fannst honum alveg ótrúlegt.
En ég hef ætlað mér að verða svo margt
á lífsleiðinni,“ segir Rebekka aðspurð.
„Ég hef til dæmis lengi haft áhuga á
kvikmyndagerð og var mikið að búa til
alls kyns þætti þegar ég var ung. Ég
gerði meðal annars spurningaþætti og
um þrettán ára aldurinn bjuggu ég og
frænka mín til nokkra stutta þætti þar
sem við gerðum grín að viðtalsþættin-
um Maður er nefndur, sem við kölluð-
um Maður er skemmdur. Ég var spyr-
illinn og frænka mín, sem þá var bara
tólf ára, vann leiksigur sem illa mál-
aður „kynvillingur“,“ segir Rebekka og
skellir upp úr. „Þessir þættir eru ennþá
til heima hjá mömmu og pabba og væri
örugglega þess virði að draga fram ein-
hvern daginn.“
Hún segist vel geta hugsað sér að
starfa við kvikmyndagerð í framtíð-
inni og hefur þegar fengið smjörþef-
inn af bransanum, en hún starfaði sem
annar aðstoðarleikstjóri við gerð þátta-
raðanna Pressu 2 og Hlemmavídeós.
Þá sinnti Rebekka starfi verkefna-
stjóra við kynningu á Degi tónlistar-
skólanna sem haldinn var hátíðlegur
í tuttugasta sinn í febrúar síðastliðn-
um. Hún kenndi einnig um hríð við tón-
listarskóla Reykjanesbæjar og segir
almennt starf tónlistarskólanna í land-
inu standa sér afar nærri.
Spurð um deilurnar sem spruttu upp
fyrir skemmstu, varðandi fyrirhugað-
an niðurskurð á framlögum til tónlist-
arkennslu í Reykjavík, segist Rebekka
varla hafa það í sér að ræða það mál,
svo mikið hafi henni blöskrað áformin.
„Þetta er í einu orði sagt glatað. Auð-
vitað skil ég að einhvers staðar þurfi
að skera niður, en eins og hefur sýnt
sig trekk í trekk er íslensk tónlist afar
mikils virði í svo mörgum skilningi.
Það er skrýtið að ætla að gera fólki
erfiðara fyrir að sækja tónlistarnám.“
Enn um sinn er það því tónlistin
sem á hug Rebekku allan, en varðandi
helstu framtíðaráform segist hún í
raun hafa tekið þá meðvituðu ákvörð-
un að taka ekki ákvörðun.
„Einhvern tíma kemur kannski að
því að ég verð að taka einhvers konar
ákvörðun um það hvað ég ætla að verða
þegar ég verð orðin stór. Ég verð ekki
tuttugu og eitthvað alla ævi,“ segir hún
og glottir. „En sá tími er ekki kominn
enn.“
Þakklát fyrir uppeldið
Foreldrar Rebekku eru sjöunda dags
aðventistar og ólst hún því upp innan
Íslandsperrarnir leynast víða
Rebekka Bryndís Björnsdóttir, fagottleikari hinnar vinsælu hljómsveitar Hjaltalín, er nýkomin heim til Íslands eftir stærsta
hljómleikaferðalag sveitarinnar til þessa. Kjartan Guðmundsson ræddi við hana um stóran aðdáendahóp í Þýskalandi, spurninga-
og viðtalsþætti sem hún framleiddi sem barn og þá meðvituðu ákvörðun að taka enga ákvörðun um framtíðina.
ÞETTA VENJULEGA Rebekka ólst upp í Keflavík en býr nú í Þingholtunum ásamt unnusta sínum. Hún segir Hjaltalín vera að færast í eilítið dekkri og dimmari áttir í sínum
tónsmíðum en umfjöllunarefni textanna séu þó svipuð: vangaveltur um ástina og lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Meðlimir Hjaltalín eru sjö talsins, sem gerir sveitina að
einni þeirri fjölmennustu í hér-
lendum poppbransa. Rebekka
segir fullkomið lýðræði ríkja inn-
anborðs, sem lýsi sér meðal ann-
ars í því að ekkert hafi slest upp á
vinskapinn á nýliðnu hljómleika-
ferðalagi, en meðlimirnir séu þó
afar ólíkir hver öðrum. „Við erum
með allan skalann. Það er slaka
megachill-týpan, skipulags með
allt á hreinu-gæinn og allt þar á
milli. Ég veit ekki hvaða týpa ég
er. Það er erfitt að meta sjálfan
sig,“ segir Rebekka.
Fullkomið lýðræði
aðventistakirkjunnar svokölluðu,
þótt sjálf kalli hún sig ekki sjöunda
dags aðventista. Spurð um daglegt líf
innan safnaðarins segir Rebekka það
að mestu leyti snúast um það hvernig
meðlimirnir lifi lífi sínu, komi fram
við annað fólk og þar fram eftir göt-
unum.
„Foreldrar mínir vildu ekki troða
neinu upp á mig þegar ég var ung. Ég
tók þá ákvörðun að skírast ekki inn í
aðventistakirkjuna og það var ekkert
mál af þeirra hálfu. Fólk innan safn-
aðarins er auðvitað mis-strangtrúað.
Mikið er lagt upp úr næringarfræði
og því að hugsa vel um líkamann. Til
dæmis reykja foreldrar mínir hvorki
né drekka og borða ekki svínakjöt og
skelfisk, svo dæmi sé tekið, því það er
ekki hreint kjöt að þeirra mati. Sjálf
er ég nýbyrjuð að smakka skelfisk, því
ég ólst upp við að borða hann ekki, og
panta mér ekki rétti með svínakjöti
á veitingastöðum. En ef við komum
á tónleikastað og einungis eru í boði
svínaréttir, þá borða ég þá. Það er
mjög margt í lífsreglum sjöunda dags
aðventista sem ég er þakklát fyrir að
hafa alist upp við, þótt ég fylgi því ekki
bókstaflega. Ég held að það sé alls ekki
galið líferni sem fylgir því að vera í
söfnuðinum,“ segir Rebekka.
Dekkri og þyngri Hjaltalín
Í aðdraganda nýliðins tónleikaferða-
lags skelltu Hjaltalín-liðar sér í hljóð-
verið Sundlaugina í Mosfellsbæ, þar
sem sveitin vann að nýju efni. Sveitin
hefur hug á að eyða meiri tíma í stúd-
íói í sumar við upptökur á lögum sem
verða á þriðju plötu Hjaltalín, sem
kemur til með að fylgja eftir hinni
margrómuðu Terminal frá árinu 2009.
Aðspurð segir Rebekka ekki enn ljóst
hvenær nýja platan lítur dagsins ljós.
„Nýju lögin sem við prufukeyrðum
á hljómleikaferðalaginu eru dálítið
dekkri og þyngri en áður, sem ég fíla
mjög vel. Það má því segja að við séum
að stefna í örlítið aðra átt í tónsmíðum
og stemningu, en umfjöllunarefni text-
anna verða líklega svipuð. Vangavelt-
ur um lífið og ástina. Þetta venjulega,“
segir Rebekka að lokum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA