Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 40

Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 40
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR40 Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu heldur aðalfund þriðjudaginn 19.apríl kl. 19.00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Þeir einir hafa kosningarétt sem hafa greitt félagsgjaldið fyrir árið 2010. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Stjórnin Aðalfundur Af hverju get ég ekki orðið bestur? Derrick Rose, 22 ára, Chicago Bulls Hinn nýi bjargvættur N Blake Griffin, 22 ára, Los Angeles Clippers ■ SNILLINGARNIR SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM – ÞESSIR HAFA SKARAÐ FRAM ÚR Í ÁR Fátt virðist geta komið í veg fyrir það að Derrick Rose verði síðar í mánuðinum valinn verðmætasti leik- maður NBA-deildarinnar þetta árið. Þar með verður hann yngsti leik- maður sögunnar til að hljóta þá nafnbót, og jafnframt sá fyrsti sem fékk ekki eitt einasta atkvæði í kjörinu árið áður. Rose var þrátt fyrir þessar staðreyndir kokhraustur í haust: „Af hverju ætti ég ekki að geta verið valinn verðmætastur?“ spurði hann í viðtali. Og svo stóð hann bara við stóru orðin – sisvona. Rose var drifkrafturinn í efsta liði deildarinnar í allan vetur og sá til þess að Bulls drægjust ekki aftur úr þegar hinir máttarstólparnir, Joachim Noah og Carlos Boozer, meiddust. Rose skoraði 25 stig að meðaltali í leik, gaf 7,7 stoðsendingar og tók 4,1 frákast. Það eru allir að tapa sér yfir hæfileikum Blakes Griffin. Sumir kalla hann mikilvægasta leikmann sem litið hefur dagsins ljós í NBA- deildinni í árafjöld, svo mjög muni hann trekkja að áhorf- endur. Griffin hefur stökkkraft á við meðalpúmu, leikur sér að því að troða í andlitið á hvaða varn- artrölli sem er og gefur glæsilegar stoðsendingar þess á milli. Og hann er á sínu fyrsta tímabili í deildinni. Það er öllum ljóst að Blake Griff- in er löngu búinn að rústa keppn- ina um nýliða ársins. Hann hefur skorað 22,4 stig í leik, tekið 12,1 frákast og gefið 3,7 stoðsending- ar. Slík tölfræði er fáheyrð hjá nýliðum í seinni tíð. Og líklega hefur aldrei verið eins gaman að halda með Clippers. Staðið við stóru orðin? Þá er loksins komið að því. Tveggja mánaða rimma allra bestu körfuboltamanna heims hefst í dag, þegar bolt- arnir taka að rúlla í úrslitakeppni NBA-deild- arinnar. Stígur Helgason hleypur á hundavaði yfir leiktíðina sem leið. L engi framan af – raun- ar alveg fram undir það síðasta – virt- ist sem liðin leiktíð í deild hinna bestu yrði fyrst og fremst væmin dæmisaga um sigur liðsheildar- innar. Tvö frábærlega mönnuð lið, Boston Celtics og San Anton- io Spurs, stungu af hvort á sinni ströndinni, lið sem þó hvorugt reyndist síðar fá einn einasta leik- mann kjörinn í byrjunarlið stjörnu- leiksins. Svo kom naggur frá Chi- cago, Derrick Rose að nafni, og eyðilagði þessa fallegu sögu. Stóru orðin Leiktíðinni var reyndar hálfpart- inn þjófstartað þremur mánuðum fyrir fyrsta leik þegar augu heims- ins beindust að sirkus LeBrons James, sem setti á svið heljarinnar sýningu og tilkynnti loks – efnis- lega – að nú hygðist besti leikmað- ur heims ganga til liðs við þann næstbesta undir merkjum Miami Heat. Ekki nóg með að fyrir væri á fleti Dwyane Wade, óhagganlegur fastamaður í liðum ársins, heldur fengu þeir líka til sín aðra stjörnu, Chris Bosh, sem fór fyrir misjöfnu liði Toronto Raptors í áraraðir við mikla eftirtekt. Það var því ekki að undra að miklar vonir væru bundnar við Miami-liðið. Aldrei fyrr höfðu þrjú stirni af þessari stærðar- gráðu sameinast undir einum hatti á hátindi ferilsins. Og ekki vantaði heldur yfirlýsingarnar. Þeir ætluðu sér titil. Hetjurnar vældu reyndar undan sjálfskap- aðri pressunni þegar á leið og sök- uðu heiminn um að vilja sér illt. Gamla brýnið Charles Barkley svaraði þeim svona: „Dwyane, þú veist að ég elska þig – en það er öllum sama um Miami Heat. Þeir einu sem hata Miami Heat eru aðdáendur Cleveland Cavaliers.“ LeBron-lausir Kavaljerar sátu enda eftir með sárt ennið og hröpuðu niður töfluna milli ára; umturnuðust í einni hendingu úr einu besta liði deildarinnar í eitt það alslakasta. Það segir sína sögu um leikmanninn sem þeir misstu. Og þótt hér og þar örlaði á þórðar- gleði yfir því að Miami hafi ekki gjörsigrað í hverjum einasta leik verður ekki horft fram hjá því að árangurinn er býsna góður. Liðið hafnaði í öðru sæti í austurdeild- inni, fyrir ofan Boston. Það þarf varla nokkur að væla yfir því. Grænu risarnir og meiðslin Boston-menn, sem byrjuðu tíma- bilið svo firnavel og virtust á köflum ósigrandi, létu undan síga eftir áramót og höfnuðu að lokum í þriðja sæti austurdeildarinnar. Líklega hefur skortur á miðherj- um haft þar sitt að segja. Það leit ekki illa út á pappírunum að geta valið á milli hinna tröllvöxnu Sha- quilles O‘Neill og Kendricks Perk- ins, en þar sem báðir eru krónísk- ir meiðslapésar mæddi í upphafi óþyrmilega á Shaq, þangað til hann meiddist – auðvitað. Þá sneri Perkins aftur, en var af einhverj- um furðulegum ástæðum skipt rakleiðis til Oklahoma City Thun- der fyrir framherjann Jeff Green, minni spámenn og skiptimynt. Ætla mætti að þetta gæti komið í bakið á Boston-liðinu þegar það mætir rækilega betrumbættu liði New York Knicks í fyrstu umferð úrslitakeppninnar … en þó ekki. Knicks hafa nefnilega valdið tölu- verðum vonbrigðum í vetur. Þeir nældu í fyrsta stórstirnið þegar þeir fengu kraftframherjann Amar‘e Stoudemire frá Phoenix Suns í fyrrasumar og bættu um betur í febrúar þegar þeir keyptu Carmelo Anthony dýru verði (eink- um í leikmönnum talið) og fengu reynsluboltann Chauncey Billups með í kaupbæti til að stýra leikn- um. Þrátt fyrir stjörnufansinn slefuðu strákarnir úr Stóra epl- inu ekki nema í sjötta sæti austur- deildarinnar og unnu aðeins rétt ríflega helming leikja sinna. Samt áttu þeir tvo af fimm stigahæstu leikmönnum deildarinnar – eins og Miami. Þrír turnar í vestri Í vestrinu hafa þrír turnar gnæft yfir önnur lið nánast alla leiktíð- ina. Sá fyrsti heitir San Anton- io Spurs og kom nokkuð á óvart með ótrúlegri byrjun í haust sem svo lauk í raun aldrei. Hinir leik- reyndu Tim Duncan, Tony Parker og Manu Ginobili slökktu strax í öllum vangaveltum um að menn þyrftu að vera nýskriðnir úr háskóla til að geta eitthvað í körfu- bolta – og vinna jafnvel heila deild. Það hefði þó ekki tekist nema með dyggu liðsinni óvenjubreiðs hóps af frambærilegum leikmönnum að hífa liðið upp úr sjöunda sæti vesturdeildarinnar í fyrra, upp á toppinn í ár. Dallas Mavericks átti líka fljúg- andi start, með Dirk Nowitzki og Jason Kidd sem fyrr í broddi fylk- ingar, og endaði í þriðja sætinu á vesturströndinni. Viðureign þeirra við Portland Trail Blazers í fyrstu umferð úrslitanna gæti orðið með þeim allra bestu, enda hefur Port- land sýnt æði lipra tilburði, jafn- vel þótt einn þeirra besti maður, Brandon Roy, hafi að mestu verið frá vegna meiðsla. Meistarar síðasta árs, Los Ange- les Lakers, voru lengur í gang en við var búist en eftir afar dapra frammistöðu í aðdraganda stjörnu- leiksins í febrúar settu þeir í fimmta gír og unnu sautján leiki á móti einum. Þeir gáfu reynd- ar eftir í blálokin en þessi miklu sprettur skilaði Kobe Bryant og félögum öðru sætinu í vestur- deildinni. Enginn ætti að þurfa að furða sig á því ef þeir kafsigla BESTUR? LeBron James hefur verið í eldlínunni með Miami Heat síðan síðasta sumar. Tim Duncan, Tony Parker og félagar í San Antonio tróna hins vegar á toppi vesturdeildar- innar eftir frábæra leiktíð. Bæði lið hljóta að gera tilkall til meistaratitilsins, en hindranirnar sem þarf fyrst að ryðja úr vegi eru margar og fáar þeirra auðveldar. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.