Fréttablaðið - 16.04.2011, Side 88
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
MARGRÉT ÞÓRHILDUR DANADROTTN-
ING er 71 árs.
„Sífellt bætist í sjóð þeirra minninga sem við
viljum geyma og eru okkur styrkur.“
Ari Kristinsson kvikmyndagerðar-
maður fagnar sextugsafmæli sínu
í dag með fjölskyldu og vinum. „Ég
hætti við að halda upp á fimmtugs-
afmælið og ákvað að bíða með veislu
þar til næst,“ segir hann glaðlega en
kveðst ekki taka séns á að fresta því
í önnur tíu ár.
Fáir hafa starfað við kvikmynda-
gerð hér á landi í á fjórða áratug en
því getur Ari státað af. Eftir hann eru
myndirnar um Pappírspésa, Stikkfrí
og Duggholufólkið en auk þess hefur
hann lagt hönd að tugum mynda. „Ég
hef unnið við flest störf innan þessa
geira en mest sem kvikmyndatöku-
maður og leikstjóri,“ segir Ari sem
telur myndlistarmenntun hafa nýst
sér vel í faginu. „Ég kom heim frá
námi í Bandaríkjunum á föstudegi og
þá lágu fyrir mér skilaboð um hvort
ég gæti mætt í vinnu á mánudeginum
sem aðstoðarkvikmyndatökumaður í
Jóni Oddi og Jóni Bjarna og strax eftir
að því lauk hitti ég Friðrik Þór og við
fórum að mynda Eldsmiðinn,“ lýsir
hann. „Síðan hefur alltaf verið nýtt
verkefni innan sjóndeildarhringsins.“
Ari ólst upp í Kópavogi frá eins árs
aldri. „Afi átti sumarbústaðalóðir
í Kópavogi og gaf pabba og mömmu
eina þegar þau giftu sig. Í stað þess
að byggja sumarbústað byggðu þau sér
íbúðarhús sem stendur á horni Háveg-
ar og Meltraðar. Þar var lítil byggð til
að byrja með og gaman að leika sér,
mikið af drullupollum og svona,“ rifj-
ar Ari upp sem er fyrir löngu fluttur.
„Ég giftist konu í Hafnarfirði og hún
ákvað að þar skyldum við búa,“ segir
hann kíminn. „Við keyptum meira að
segja húsið sem hún fæddist í.“
Máltækið segir að oft velti lítil þúfa
þungu hlassi. Það má heimfæra upp á
kvikmyndagerð Ara því hún hófst með
aðstoð við tökur á myndinni Lítil þúfa
í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar.
Síðan hefur eitt verkefnið tekið við af
öðru og það nýjasta er Tími nornar-
innar, sjónvarpsþættirnir á RÚV sem
ljúka göngu sinni annað kvöld. En hvað
finnst Ara standa upp úr á ferlinum?
„Ég met alltaf Börn náttúrunnar mik-
ils. Hún náði svo miklum alþjóðlegum
árangri og var útnefnd til Óskarsverð-
launa. Skemmtilegast var samt að taka
Með allt á hreinu. Þá eltum við hljóm-
sveitina þangað sem hún var að spila
og vorum í stanslausu stuði.“
Íslensk kvikmyndagerð er í fjár-
hagsvanda um þessar mundir og Ari
segir nauðsynlegt að rétta þann kúrs
af ef ekki eigi illa að fara. Hann er
formaður Sambands íslenskra kvik-
myndaframleiðenda og kveðst vona að
honum auðnist sem fyrst að gera nýtt
samkomulag við ríkið um endurfjár-
mögnun greinarinnar. „Það væri besta
afmælisgjöf sem ég gæti fengið,“ segir
hann. „Svo ég gæti horft – ekki bara
yfir 30 ár til baka heldur líka fram á
veginn.“ gun@frettabladid.is
ARI KRISTINSSON KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR: ER SEXTUGUR Í DAG
Alltaf verið nýtt verkefni
innan sjóndeildarhringsins
ARI KRISTINSSON „Skemmtilegast var að taka myndina Með allt á hreinu. Þá eltum við hljóm-
sveitina þangað sem hún var að spila og vorum í stanslausu stuði.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
71
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Lissý Björk Jónsdóttir
Hlíðarhjalla 61, Kópavogi,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 10. apríl.
Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju miðviku-
daginn 20. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á að láta krabbameinslækningadeild
11-E njóta þess, sími 543-1159.
Jón Viðar Matthíasson Helga Harðardóttir
Hörður Már Jónsson Elfa Björg Aradóttir
Viðar Jónsson Mardís Heimisdóttir
Björk Jónsdóttir
Arnar Jónsson
Aldís Helga og Hjördís Svava Harðardætur
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi
Sigurður Einar Jónsson
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
10. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Jarðsett var í Garðakirkjugarði. Sérstakar þakkir
til starfsfólks á hjarta- og krabbameinsdeild LSH fyrir
einstaka umönnun og hlýju.
Hjördís Guðmundsdóttir
Viðar Sigurðsson Halldóra Halldórsdóttir
Jón Rúnar Sigurðsson Tove Rödne
Guðrún Björg Sigurðardóttir Ágúst Pedersen
afa- og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Guðmundur Björn
Sveinsson
Kirkjuteig 13, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum Landakoti föstudaginn
25. mars. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 19. apríl kl. 15.00.
Esther Ósk Karlsdóttir
Sævar Sveinn Guðmundsson
Elísabet Anna Guðmundsdóttir Bengt Wallin
Auður Björk Guðmundsdóttir
Siegfried Gudmundsson
Sabina Gudmundsson
Sarah Gudmundsson
Belinda Wallin-Tolf Nicklas Tolf
Isabelle og Patrica
Nathalie Wallin
Ozzy Wallin
Philip Wallin
Arthúr Sveinsson
Már Sveinsson Margrét Björnsdóttir
Sveina M. Sveinsdóttir Runólfur Sölvason
Linda M. Runólfsdóttir
Birgir Þór Runólfsson
Jón Guðmann Jónsson Karítas Sól Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar og afi
Richard Sigurbaldursson
Hann kom hingað þann 17.12.1934.
Hann var hérna, en nú er hann farinn.
Hann fór þann 30.03.2011.
Við þökkum þér alla örvun og innblástur í lífinu.
Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki lungnadeildar
Landspítalans.
Sigríður Hulda Richardsdóttir
Guðný Björk Richardsdóttir
Jóhann Davíð Richardsson
Richard Oddur Hauksson
Jóhann Þór Stefánsson
Kristín Margrét Guðmundsdóttir
Bragi Haukur Jóhannsson
Andrea Rán Jóhannsdóttir
Dagný Dimmblá Jóhannsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Jónas Guðberg
Ragnarsson
hafnsögumaður, Aratúni 16, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju miðvikudaginn
20. apríl, kl. 15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Ljósið í síma 561 3770
eða líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Marsibil Katrín Guðmundsdóttir
Ragnar Jónasson Sólveig Einarsdóttir
Ólafur Jónasson
Guðmundur Einisson Valgerður Gísladóttir
Óðinn Einisson Laufey E. Gunnarsdóttir
Björk Einisdóttir Valtýr E. Valtýsson
barna- og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og veittu
okkur ómetanlegan stuðning á erfiðum
tímum við andlát og útför
okkar ástkæra
Jens Óla Kristjánssonar
Urðargili 17, Akureyri.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Anna Guðrún Ásgeirsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Ingimarsdóttir
andaðist á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, föstu-
daginn 8. apríl. Útför hennar verður gerð frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 18. apríl kl. 10.30.
Margrét Jóhannsdóttir
Ásgeir Sverrisson Helga Sigurðardóttir
barnabörn og langömmustelpurnar.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug vegna and-
láts elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa
Guðbjarts Á.
Kristinssonar
múrara Dalseli 20, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ fyrir hlýju og góða umönnun.
Helga Pétursdóttir
Guðrún Guðbjartsdóttir Guðjón Þ. Sigfússon
Kristinn H. Guðbjartsson Laufey Ó. Hilmarsdóttir
Álfheiður J. Guðbjartsdóttir Olaf Sveinsson
og barnabörn