Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 92
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR52
Hvað er það fyrsta sem þú
manst eftir? Ég og bróðir
minn að kveikja varðeld í
ruslafötu heima í stofu.
Hvar áttir þú heima þegar
þú varst lítill? Ég er fæddur
á Sauðárkróki en flutti mjög
ungur til Reykjavíkur. Ég bjó
í vesturbæ Reykjavíkur í um
tvö ár en flutti svo í Garðabæ
og bjó þar þangað til ég flutti
að heiman.
Hvar var skemmtilegast að
eiga heima? Ég kunni vel við
mig á öllum þessum stöðum.
Varstu einhvern tíma óþekkur
við mömmu þína? Ég held að
ég hafi nú verið frekar þægur
– oftast.
Hafðir þú ofan af fyrir þér
sjálfur eða varstu alltaf að
leika við einhvern? Ég var
duglegur að dunda mér
einn en lék mér líka
mikið við krakkana í
hverfinu. Ég bland-
aði þessu bara
saman.
Heldurðu enn
sambandi við
vini úr æsku?
Já, ég á enn
vini sem ég
lék mér við
sem krakki.
Hvern-
ig leikir
þóttu þér
skemmti-
legastir?
Mér fannst
skemmtilegast
að vera niðri í fjöru að reyna
að búa til fleka.
Varstu einhvern tíma feim-
inn? Já, ég hef alltaf verið
frekar feiminn.
Hvaða matur þótti þér best-
ur þegar þú varst krakki?
Lambakótelettur með öllu til-
heyrandi.
Hver er uppáhaldsbarna-
bókin? Doddi litli.
Í hvaða grunnskóla varstu?
Flataskóla í Garðabæ.
Hvenær fannst þér þú vera
orðinn fullorðinn? Mér fannst
ég fullorðinn þegar ég fékk
bílpróf.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú hefur gert? Það
skemmtilegasta sem ég geri
er að fara í tjaldútilegu
með fjölskyldunni minni.
Hefurðu leikið í barna-
leikriti eða mynd og
þá hvaða? Nei, ég hef
ekki leikið í barna-
leikriti en ég lék
örhlutverk í Algjör
Sveppi og dularfulla
hótelherbergið.
Stoppa krakkar þig
úti á götu? Já, já,
heldur betur.
Átt þú börn? Já, ég á
tvær dætur.
Ertu strangur við
þær? Nei, ég get ekki
sagt það. Þær komast
upp með voða mikið
þegar ég er nálægt.
krakkar@frettabladid.is
52
Ég var duglegur
að dunda mér
einn en lék mér líka
mikið við krakkana í
hverfinu. Ég blandaði
þessu bara saman.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
1. Um hvað var kosið í kosningunum 9. apríl?
2. Hvað heitir forseti Íslands?
3. Yfir hvaða land reið stór flóðbylgja á dögunum?
4. Hvar verður Eurovision-keppnin haldin í ár?
5. Hvað heitir forsætisráðherra Íslands?
6. Hvaða skóli sigrði í söngvakeppni framhaldsskólanna?
7. Hvað heitir forseti Bandaríkjanna?
8. Hvað heitir borgarstjórinn í Reykjavík?
9. Af hverju urðu rúmlega 100 manns strandaglópar í
Staðarskála sunnudaginn 10. apríl?
10. Af hverju lagði mikla gufu yfir Árbæjarhverfið í
vikunni?
VAR OFTAST FREKAR ÞÆG-
UR – NEMA STUNDUM
Pétur Jóhann, leikari og skemmtikraftur, var oftast þægur þegar hann var lítill.
Samt er fyrsta minningin hans tengd prakkarastriki sem hann stóð í með bróður
sínum. Þeir bræður kveiktu nefnilega varðeld í ruslafötu heima í stofu.
Af hverju dillar hundurinn
skottinu?
Af því enginn annar vill gera
það fyrir hann.
Hvernig veistu að þú átt
heimskan hund?
Hann eltir kyrrstæða bíla.
Við hvernig tónlist vilja kýr
dansa?
Alls konar múúúúsík.
Hvernig lyf gefur þú veikum
maur?
Sýklalyf.
Hvernig þekkir þú nútímalega
könguló?
Hún á ekki vef – heldur vef-
síðu.
Hvað kallar þú mús sem
getur lyft fíl?
Herra.
WWW.LAERUMSAMAN.IS er sniðug vefsíða með fræðslu-
leikjum fyrir börn á aldrinum 2 til 7 ára. Leikirnir hjálpa börnunum
að læra stafrófið, litina og margt fleira.
1. Icesave-samninginn
2. Ólafur Ragnar Grímsson
3. Japan
4. Í Þýskalandi
5. Jóhanna Sigurðardóttir
6. Tækniskólinn
7. Barack Obama
8. Jón Gnarr
9. Vegna óveðurs sem
geysaði
10. Vegna þess að það
sprakk heitavatnsrör.