Fréttablaðið - 16.04.2011, Side 96
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR56
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Í alvöru?
Þríhyrn-
ingur?
Þetta
var alveg
klikkað!
Palli minn, ég kann
að meta að þú skulir
setja óhreina leirtauið
þitt í vaskinn.
En það væri varla mikið
meira mál að setja
það í uppþvotta -
vélina.
Hljómar
það ekki
betur?
Jú...
... ef „betur“ þýðir
milljón sinnum verra.
Ég er
risaskjaldbaka.
Á ég að færa
þér verkjatöflu?
Við eigum extra sterkar, extra extra
sterkar, fljótvirkar og extra Vááá...
Pabbi þinn er
harður af sér.
Alvöru menn
taka bara
venjulegar
töflur.
Ég er órangútan,
gáfaðastur allra
í dýraríkinu!
Þú ert nú bara
lítil skjaldbaka.
Í alvöru.
TÓMT!
Takk elskan, það
væri frábært. Tvær af
þessum
duga mér.
sterkar...
LÁRÉTT
2. ríki í Mið-Ameríku, 6. í röð, 8.
verkur, 9. fóstra, 11. guð, 12. strengja-
hljóðfæri, 14. skammt, 16. bardagi,
17. knæpa, 18. orlof, 20. persónufor-
nafn, 21. baktal.
LÓÐRÉTT
1. vag, 3. innan, 4. trjátegund, 5.
keyra, 7. klína, 10. sigað, 13. í viðbót,
15. rótartauga, 16. kraftur, 19. klaki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kúba, 6. jk, 8. tak, 9. ala,
11. ra, 12. gítar, 14. stutt, 16. at, 17.
krá, 18. frí, 20. ég, 21. last.
LÓÐRÉTT: 1. kjag, 3. út, 4. barrtré,
5. aka, 7. klístra, 10. att, 13. auk, 15.
tága, 16. afl, 19. ís.
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
ÍÍS
L
E
S
L
E
NN
SS
KK
AA
S
IA
.
S
IA
.II
SS
V
IT
5
46
39
0
4
V
IT
5
46
39
0
4.
20
11
VITA er í eigu Icelandair Group.
GROUP
Korfu er hálfmánalöguð eyja skammt undan ströndum
Epirus og skilur Korfusundið hana frá meginlandinu.
Norðurhluti eyjarinnar er víðfeðmur og fjalllendur
en að sunnan er hún hæðótt og mun mjórri. Einkennandi
gróðurfar eru ólífulundir og kýprusviðarskógar.
Mikið er um spennandi gönguleiðir á þessum fallegu
slóðum og meðal annars liggur 220 km gönguleið eftir
eyjunni endilangri.
Í ferðinni er gengið í sjö daga en síðustu þrír dagarnir
teknir rólega á ströndinni.
Gönguferð
um grísku eyjuna Korfu
Upplýsingar hjá Vita í síma 570 4453 eða
í gegnum tölvupóst: siljarun@vita.is
www.vita.is/sportlif | www.gonguhrolfur.is
Nánari upplýsingar á vitasport.is
28. maí–7. júní
265.000 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
M.v. 2 í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, gisting,matur á göngudögum,
íslensk fararstjórn og innlendur leiðsögumaður.
* Verð án Vildarpunkta: 275.000 kr.
Stundum er sagt – og það með allnokkr-um sanni – að öfgarnar mætist. Þegar
kemur að pólitík birtist þetta einkum í því
að öfgamenn til hægri og vinstri virðast
gjarnan eiga mun meira sameiginlegt en
hófsamir vinstri- og hægrimenn. Þetta eru
einkum alræðistilburðir, forræðishyggja
og andúð á mannréttindum. Því er ég að
velta þessu fyrir mér að í nýlegri atkvæða-
greiðslu á Alþingi drógu þingmenn upp
nokkuð skýra mynd af því hvernig hinu
pólitíska landslagi er háttað í þingsölum
um þessar mundir.
ÞAR var m.a. hlaupist undan merkjum
vegna afstöðu ríkisstjórnarinnar til
Evrópu sambandsins. Hún er, skilst mér,
sú að þjóðin skuli ákveða hvort landið
tilheyri ESB eða ekki. Við þetta geta
sumir ekki sætt sig og finnst það allt of
mikil þjónkun við ESB að þjóðinni, sem
treysti þeim fyrir þingsæti, skuli
treyst til að taka slíka ákvörðun.
Nú í vikunni tókst flokks-
þingi Framsóknarflokks-
ins naumlega að sigrast á
þessum lýðræðisótta með
því að samþykkja ekki að
viðræðum skyldi strax hætt.
Það var, að mínu mati, vel af
sér vikið. Það hvernig þing-
styrkur Framsóknarflokks-
ins hefur þróast undan-
farna áratugi gefur fólki þar á bæ nefnilega
litla ástæðu til að hafa neitt sérstakt dálæti
á lýðræðinu. En þennan styrk hafa sumir
greinilega ekki til að bera.
ÞESSI ríkisstjórn mun ekki taka ákvörðun
um Evrópusambandsaðild. Hún hefur ekki
vald til þess. Það vald er þjóðarinnar einn-
ar. Og þá ákvörðun mun þjóðin taka fyrr
eða síðar, hvort sem einhverjum líkar það
betur eða verr. Feli stjórnvöld henni það
ekki mun hún knýja fram rétt sinn til þess.
Hver ákvörðunin síðan verður er aukaatriði
í þessu samhengi. Nú ríður á að byggja upp
og það verður ekki gert með neinum traust-
vekjandi hætti í skugga algjörrar óvissu
um aðild – af eða á – í náinni framtíð.
ÞAÐ segir sína sögu um lýðræðisótta
Evrópusambandsandstæðinga að þeir skuli
ekki treysta þjóðinni til að hafna aðild-
inni, í ljósi þess hve augljóst skaðræði þeir
telja hana. Það segir líka sitt um trú þeirra
sem hlynntir eru aðild að þeir skuli knýja
á um að ákvörðunin verði tekin sem fyrst,
þótt skoðanakannanir gefi þeim núna litla
ástæðu til bjartsýni.
VERST að ekki skuli vera til gott orð í
íslensku um þá pólitísku hugsjón að stjórn-
völdum sé betur treystandi fyrir hagsmun-
um fólks en lýðnum. Jú, annars ... orðið er
til. Það er „fasismi“.
Faðmlag öfganna