Fréttablaðið - 16.04.2011, Page 98
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR58 58
menning@frettabladid.is
TÖFRAFLAUTAN Í HÖRPU Íslenska óperan setur upp Töfraflautu Mozarts í haust. Þetta verður fyrsta óperuuppfærsla
óperunnar eftir að hún flytur heimkynni sín í Hörpu í næsta mánuði. Daníel Bjarnason verður hljómsveitarstjóri og Ágústa
Skúladóttir leikstýrir. Í helstu hlutverkum eru Þóra Einarsdóttir, Finnur Bjarnason, Garðar Thór Cortes, Ágúst Ólafsson, Hulda
Björk Garðarsdóttir, Jóhann Smári Sævarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Kolbeinn Jón Ketilsson.
Góðærið, hrunið og eftir-
köst þess eru undir í mynd-
listarsýningunni Koddu,
sem opnuð verður í Nýlista-
safninu og Alliance-
húsinu í dag. Ekki hefur
verið þrautalaust að setja
sýninguna upp, að sögn
Ásmundar Ásmundssonar,
eins af sýningarstjórum
sýningarinnar.
Yfir 40 listamenn taka þátt í sýn-
ingunni Koddu, sem verður opnuð í
Nýlistasafninu og Alliance-húsinu
við Grandagarð í dag. Þar rýna
listamennirnir í myndmál ríkjandi
hugmyndafræði góðærisáranna og
fram yfir hrun.
Ásmundur Ásmundsson er sýn-
ingarstjóri sýningarinnar ásamt
Tinnu Grétarsdóttur og Hann-
esi Lárussyni. Hann segir mikla
rannsóknar vinnu liggja að baki
sýningunni, sem hafa meðal ann-
ars leitt í ljós að sú hugmynda-
fræði bóluhagkerfisins hafi ekki
látið undan síga eftir hrun.
„Við rýndum í ýmsar skýrslur,
til dæmis Ímyndarskýrsluna
frægu, og Ísland 2015, sem Við-
skiptaráð og Háskólinn í Reykja-
vík unnu saman. Það held ég að sé
plagg sem er unnið eftir í öllum
ráðuneytum.“
Ein af birtingarmyndum er
samkvæmt listamönnunum kynn-
ingarátakið Inspired by Iceland,
þar sem ung stúlka gengur nakin
í heita laug um miðbik mynd-
bandsins og segir munúðarlega:
„Koddu“. Af því dregur sýningin
nafn sitt.
Sýningin fjallar einnig um
stöðu og hlutverk lista á tímum
þar sem krafan til listamanna sé
öðru fremur að vera til skrauts og
skemmtunar.
Ásmundur segir Koddu vera
fyrstu myndlistarsýninguna sem
fjalli gagngert um efnahagshrunið
og það hafi verið talsverð þrauta-
ganga að setja hana upp. Til stóð
að setja upp sýninguna í Listasafni
Árnesinga í nóvember, en safn-
stjóri rifti samningum skömmu
fyrir opnun vegna óánægju með
inntak og efnistök sýningarinnar
og Ásmundur segir að hafi verið
hrein ritskoðun.
„Við rákumst á fleiri veggi í
framhaldinu. Listasafn Íslands
svaraði ekki fyrirspurn okkar
um að setja upp sýninguna þar
og Listasafn Reykjavíkur hafði
ekki áhuga. Það gekk heldur ekki
að afla fjár hér innanlands og er
sýningin að öllu leyti fjármögnuð
erlendis frá. Það er því ljóst að það
er sáralítill áhugi hjá listastofnun-
um hér á landi sem sýningu sem
þessari, sem helgast kannski af
því að þessi sýning beinir kastljós-
inu að vissu leyti að þeim.“
bergsteinn@frettabladid.is
Sáralítið breyst eftir hrun
HRUNADANS Sýningarstjórar ásamt nokkrum listamönnum sem taka þátt í sýningunni. Frá vinsti: Ásmundur Ásmundsson, Ingvar
Högni Ragnarsson, Gunnhildur Hauksdóttir, Páll Haukur Björnsson, Hannes Lárusson og Tinna Grétarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gyrðir Elíasson, handhafi Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs, áritar smásagnasafnið Milli
trjánna í húsnæði Uppheima frá klukkan 14 til 16 í
dag. Uppheimar, Undirheimar og Bókafélagið Ugla
standa fyrir opnum kiljumarkaði í húsnæði Upp-
heima við Stórhöfða 24 frá klukkan 13 til 18 í dag. Um
100 titlar af kiljum verða til sölu á sérstöku tilboðs-
verði.
Gyrðir áritar í dag
GYRÐIR ELÍASSON
Umsóknarfrestur til 1. júní 2011
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Sjóðurinn
styrkir rannsóknaverkefni einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana
og fyrirtækja.
Auglýst er eftir umsóknum í Rannsóknasjóð með umsóknarfrest til 1. júní 2011.
Veittir verða tvenns konar styrkir:
● Öndvegisstyrkir
● Verkefnastyrkir
Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára í senn. Umsækjendur, sem hlutu styrk til
verkefna árið 2011 með áætlun um framhald á árinu 2012, þurfa ekki að endurnýja
umsókn en skulu senda ársskýrslu til sjóðsins fyrir 10. janúar 2012.
Allar umsóknir og umsóknagögn skulu vera á ensku. Undanþágur eru aðeins veittar
frá þeirri reglu ef birtingar á viðkomandi fræðasviði einskorðast við íslenska útgáfu.
Í þeim tilvikum skal umsækjandi fá leiðbeiningar hjá starfsmönnum Rannís.
Allar umsóknir um öndvegisstyrki skulu vera á ensku.
Nánari upplýsingar um Rannsóknasjóð, styrkina
og umsóknareyðublöð er að finna á www.rannis.is
Rannsóknasjóður
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og
framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda-
og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s.
Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og
miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
Leikfélagið Royndin frá Nólsoy í Færeyjum
- Sjótekinn
Norræna húsið, Leikfélag Hafnarfjarðar og Gaflaraleikhúsið
kynna
Miðapantanir í síma 565-5900
og í midasala@gaflaraleikhusid.is
Ragnhildur Jóhanns og Harpa
Dögg Kjartansdóttir ræða sýningu
sína Tilbúning í Gallerí Ágúst við
Baldursgötu klukkan 14 í dag.
Sýningin var opnuð 2. apríl
síðastliðinn en þar eru til sýnis
verk sem Ragnhildur og Harpa
Dögg hafa unnið á undanförnum
árum. Harpa hefur þróað tækni
í vinnslu og framsetningu klippi-
mynda og meðal annars unnið á
notaðar og útflattar málningar-
dósir. Oft skeytir hún saman ólík-
um hlutum eða andstæðum og
geta verkin þannig orðið súrr-
ealísk og ævintýraleg. Í öðrum
verkum sínum, svo sem innsetn-
ingum, hefur Harpa notað trjá-
greinar, rafmagnssnúrur, neon-
ljós, pípulagnir fleira. Með því að
taka hluti í sundur og setja saman
aftur og nota til þess fundið efni,
á þessi nálgun Hörpu Daggar ekki
síst erindi í dag á tímum offram-
leiðslu og sóunar.
Ragnhildur Jóhanns vinnur á
mörkum ljóðlistar og myndlistar
og gjarnan með texta, bækur og
tímarit. Ragnhildur hefur sýnt
verk sín og framið gjörninga bæði
hérlendis sem erlendis.
Nýlega tók hún t.d. þátt í upp-
lestri með breska skáldinu Iain
Sinclair í Rich Mix Art Center í
London. Listakonurnar leika sér
báðar með tvívídd og þrívídd, ljóð
og ævintýri og nota gjarnan fund-
ið efni í myndverkum sínum. Verk
þeirra eru þó ólík og nálgast þær
myndlistina á sinn hvorn mátann.
Ragnhildur og Harpa
ræða Tilbúning
BÓKASKÚLPTÚR Harpa hefur
þróað tækni í vinnslu og
framsetningu klippimynda en
Ragnhildur Jóhanns vinnur á
mörkum ljóðlistar og mynd-
listar.