Fréttablaðið - 16.04.2011, Síða 106
16. apríl 2011 LAUGARDAGUR
Vodafone IS 3G 10:32
Dýrð í Apphæðum!
Fermingartilboð í öllum verslunum
Stórsnjallir símar á frábæru verði auk úrvals
framúrskarandi fermingargjafa.
Prófaðu nýjustu tæknina og sjáðu framtíðina með
þínum eigin augum. Láttu ekki app úr hendi sleppa.
Nokia C5- 03
3.333 kr.
á mán. í 12 mán.
Fullt verð: 39.990 kr.
200 MB
á mán. fylgir
með í 6 mán.
2 miðar
í Sambíóin
fylgja
á meðan birgðir endast
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þegar Kate Middleton játaðist Vilhjálmi Bretaprins í lok síðasta árs mátti hún eiga von á að ein afleiðing þess yrði sú að
senn myndi andlit hennar prýða postulínshluti
til ýmiss brúks. Borðbúnaður skreyttur ásjónu
brúðhjónanna til minja um konunglegt brúðkaup-
ið sem fer fram þann 29. apríl næstkomandi er
fáanlegur í minnstu túristakytrum sem virðu-
legustu verslunarmiðstöðvum um allt Bretland.
Ólíklegt er þó að sú hugmynd hafi hvarflað að
brúðinni verðandi að örlög hennar yrðu að brosa
framan í heiminn af Postulíninu með stóru P. Nú
er hins vegar fáanlegt forláta klósettlok tileinkað
skötuhjúunum og deginum þeirra.
Ekki er þetta í fyrsta sinn sem klósett reynist
Kate vandræðagripur. Fundir foreldra Kate og
Elísabetar Englandsdrottningar hafa þótt takast
með afbrigðum illa og í kjölfar eins þeirra kom
upp mál sem kallað hefur verið „klósett-gate“ (e.
„toilet-gate).
„Ótrúlega miðstéttarleg“
„Hún er ágeng, heldur væmin og ótrúlega mið-
stéttarleg,“ er haft eftir ónefndum „innanbúðar-
manni“ við bresku hirðina um Carole Middleton,
móður Kate. Carole þessi er komin af mörgum
ættliðum kolanámumanna. Sjálf hefur hún notið
velgengni sem kaupsýslukona og þannig
haft burði til að koma börnum sínum
til mennta í virtustu – og dýrustu –
menntastofnunum Bretlands.
En hvorki peningar né samneyti við
aðalinn þjóna sem aðgöngumiði að
efri stéttum bresks samfélags. Öldum
saman hefur hástéttin þróað með
sér „framkomureglur“ sem þeir sem
standa utan hennar kunna ekki að
fara eftir. Ein af þessum reglum sem
hástéttinni virðist annt um – og leiddi
einmitt af sér klósett-gate – er rétt
hugtakanotkun.
Klósettskálin og hásætið
Ekki er vitað hvernig salerni bár-
ust í tal í samskiptum drottningar-
innar og Carole Middleton. Axarskaft
Carole varð hins vegar eitt umtalað-
asta hneyksli í fjölmiðlum ytra svo
vikum skipti. Glæpur Carole var að nota orðið
„toilet“ um klósett. „Loo“, „lavatory“, jafnvel
„bog“ hefðu verið góð og gild orð í samræðum
við drottninguna. En ekki „toilet“.
Carole varð víðar á í messunni. Hún tuggði
tyggjó í nærveru drottningarinnar. Hún ávarp-
aði hana með orðunum „pleased to meet you“,
eða „en ánægjulegt að hitta þig“ í staðinn fyrir
„how do you do“, eða „hvernig hafið þér það“
(gengið er út frá því að öllum sem hlotnast sá
heiður að hitta drottninguna sé það mikil
ánægja). Og svo mætti lengi telja.
Sagt er að vinir Vilhjálms skemmti
sér við að hæðast að verðandi tengda-
móður hans. Þeir hvísla gjarnan orðin
„cabin crew, doors to manual“
þegar hún mætir á svæðið og
vísa þar til þess að Carole
vann eitt sinn sem flugfreyja.
Í ljósi klósett-gate hlýtur
það að svíða Kate sárt að
andlit hennar skreyti nú
fjölda breskra klósettskála.
Einn vinsælasti brúðkaups-
minjagripurinn ber þó vott
um að mörgum þætti það
ásættanlegur fórnarkostn-
aður að verma þann stað sem
almúginn notar til að ganga
örna sinna í skiptum fyrir
hásætið. Um er að ræða postu-
línsborðbúnað með áletrun-
inni: „Þetta hefði átt að vera
ég“.
BEÐIÐ EFTIR
BRÚÐKAUPINU
Sif Sigmarsdóttir
Andlit Kate á
klósettskálum
Einfalt og tímalaust eru
orðin sem lýsa best stíl ljós-
myndarans Einars Snorra.
Með Gwen Stefani og hljóm-
sveitina R.E.M. á feril-
skránni býður Einar Snorri
Íslendingum upp á mynda-
töku gegn vægu verði
næstu daga en hann er að
sanka að sér efni í nýja
portrettbók.
„Það hefur blundað í mér lengi að
kýla á þetta verkefni, gera aðra
bók með mismunandi andlitum.
Þegar Sissa (innsk. bl. eigandi ljós-
myndaskóla Sissu) fór þess á leit
við mig að koma heim og halda
fyrirlestur fyrir nemendur skól-
ans ákvað ég að slá tvær flugur í
einu höggi. Halda fyrirlestur og
safna efni í bókina í leiðinni,“ segir
Einar Snorri en hann býr í Berlín
þar sem hann vinnur við ýmislegt
tengt kvikmyndagerð og að mis-
munandi ljósmyndaverkefnum.
Einar Snorri hefur nú þegar
gefið út tvær ljósmyndabækur
í samvinnu við félaga sinn Eið
og einna frægust er hin svokall-
aða Kaffibarsbók þar sem fasta-
gestir barsins á fyrri hluta tíunda
áratugar ins voru festir á filmu.
„Alveg síðan ég byrjaði að taka
myndir hef ég verið hrifinn af
portrettforminu. Andlit spegla
raunveruleikann og sálina. Þess
vegna finnst mér tímabært að gera
aðra bók núna og taka púlsinn á
sam félaginu á þessum skrýtnu
tímum,“ segir Einar Snorri en hann
stefnir að því að safna yfir 100
myndum í bókina og vill meina að
það skapist flott áhrif þegar mörg
andlit eru samankomin á einum
stað. Hann hvetur því sem flesta
til að koma, borga vægt verð og fá
í staðinn lítið listaverk af sjálfum
sér. „Það er vanmetið hversu dýr-
mætt það er að eiga góða mynd
af sjálfum sér. Góð minning sem
maður á alla ævi. Frekar að borga
fyrir það en að kaupa sér nýjar
gallabuxur,“ segir Einar Snorri en
áhugasamir geta sent póst á net-
fangið krunkproductions@gmail.
com og pantað sér tíma í mynda-
töku. Verðið er 25.000 krónur og
innifalið er ein útprentuð mynd
ásamt geisladiski með völdum
römmum. alfrun@frettabladid.is
Tekur púlsinn á samfélaginu
LJÓSMYNDIN ER DÝRMÆT MINNING Einar Snorri hvetur fólk frekar til að borga fyrir
góða ljósmynd af sjálfu sér en að kaupa nýjar gallabuxur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PLÖTUÐU GWEN STEFANI Í MYNDATÖKU
Einar Snorri og félagi hans Eiður voru
fengnir til að mynda hljómsveitina No
Doubt þegar hún var við það að skjótast
upp á stjörnuhimininn. Þeir félagarnir
heilluðust strax af söngkonunni Gwen
Stefani en var bannað að taka af henni
andlitsmynd einni enda átti myndatakan
að vera af allri sveitinni. „Ég var staðráð-
inn í að ná af henni einni portrettmynd
enda er hún með frábært andlit og náði
ég að taka þessa mynd á Polaroid-vél
undir þeirri yfirskrift að ég væri að prufa
ljósið. Ég er mjög ánægður með hana.“
MYND/EINARSNORRI