Fréttablaðið - 16.04.2011, Qupperneq 111
LAUGARDAGUR 16. apríl 2011
Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona
Karolina Klüft er ein besta frjáls-
íþróttakona sem uppi hefur verið.
Ég hef verið svo ótrúlega heppin að
fá að kynnast henni og það hefur
vakið mig til umhugsunar um hvað
það er sem aðgreinir framúrskar-
andi afreksíþróttamenn frá þeim
sem ná ekki jafn góðum árangri.
Það vakti hjá mér mikla aðdáun
þegar Klüft sagði mér frá því að hún
gengist reglulega undir það sem
hún kallaði „andlegt próf“.
Síðasta haust ákvað hún t.d.
að fara alein út í skóg og gista
í afskekktu timburhúsi. Í eyrum
margra hljómar það ekki merkilegt
en þegar maður óttast ekkert meira
en myrkrið og einmanaleikann,
eins og raunin var í hennar tilviki,
þá er heilmikil áskorun fólgin í
þessu uppátæki. Hún ein-
beitti sér að því að halda
ró sinni, hafa fulla stjórn
á huganum og leyfa ekki
þruski og dýrahljóðum
að hafa áhrif á sig. Hún
prófaði sjálfa sig, horfðist í
augu við óttann og sigraði að
lokum!
Það er þessi sigurþorsti og
óendanlegi vilji til þess að
bæta sig sífellt á öllum sviðum
sem einkennir afreksfólk!
Afreksíþróttamenn láta sér ekki
nægja að sigra andstæðinga sína
heldur verða þeir einnig að sigra
sjálfa sig. Afreksíþróttafólk nærist
á áskorunum og í augum þess er
ekkert ómögulegt. Sjálfstraustið og
trúin á eigin getu er óbilandi.
Ef íþróttamaður er ekki sann-
færður um að hann geti náð þeim
árangri sem hann hefur einseitt sér
að ná er ólíklegt að honum takist
það. Að skora á sjálfan sig, stíga
út fyrir þægindahringinn og prófa
eitthvað nýtt er því góð aðferð til
þess að auka sjálfstraustið og trúna
á eigin getu.
Ef það er eitthvað sem þú óttast
eða telur þig ekki vera færa/n um
að gera skaltu horfast í augu við
það og skora á sjálfa/n þig. Þegar
þú hefur svo sigrað áskorunina
stendur þú uppi sem sigurvegari,
uppfull/ur af sjálfstrausti og hand-
viss um að ekkert sé þér
ómögulegt!
Að skora á sjálfan sig
www.itr.is ı sími 411 5000
Afgreiðslutími um páska
Heilsulindir í Reykjavík
ER
EKKI
TILVALIÐ
AÐ SKELLA
SÉR Í SUND
UM PÁSKANA?
Lykill
að góðri
heilsu
Annar í Páskum
25. apríl
Páskadagur
24. apríl
1. maí
1. maí
Laugardagur
23. apríl
Föstud. langi
22. apríl
Skírdagur
21. apríl
ÁRBÆJARLAUG
BREIÐHOLTSLAUG
GRAFARVOGSLAUG
KLÉBERGSLAUG
LAUGARDALSLAUG
SUNDHÖLLIN
VESTURBÆJARLAUG
kl. 11-19 kl. 10-18 kl. 9-17 kl. 10-18 kl. 11-19 kl. 10-18
kl. 10-18 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 10-18 Lokað
kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað kl. 10-18 Lokað
kl. 11-17 Lokað kl. 11-17 Lokað kl. 11-17 Lokað
kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 10-18 kl. 8-22 kl. 8-22
kl. 10-18 Lokað kl. 8-16 Lokað kl. 10-18 Lokað
kl. 11-19 Lokað kl. 9-17 Lokað kl. 11-19 Lokað
FÓTBOLTI U-17 landslið kvenna í
knattspyrnu sneri aftur heim til
Íslands í gær eftir frækna för
til Póllands. Þar sigraði Ísland í
sínum riðli í undankeppni Evr-
ópumeistaramótsins og tryggði
sér þar með sæti í úrslitakeppn-
inni í Sviss í sumar. Aðeins fjögur
lið taka þátt í henni og er árangur
liðsins því stórglæsilegur.
„Þetta er frábær tilfinning og
maður trúir þessu varla,“ sagði
þjálfarinn Þorlákur Árnason.
„Þetta er það sem við stefndum
auðvitað á en þar sem aðeins fjór-
ar þjóðir komast áfram þarf allt að
ganga upp.“
Ísland spilaði í tveimur riðlum í
undankeppninni og vann þá báða.
Fyrst í Búlgaríu í haust þar sem
liðið vann hin þrjú liðin í riðlinum
samanlagt 29-1. Svo nú í Póllandi
þar sem Ísland vann aftur alla sína
leiki. Liðið mætti sterkum and-
stæðingum; Póllandi, Englandi og
Svíþjóð, og vann þá alla.
„Þetta lið er búið að vinna átta
leiki í röð. Sex í undankeppni EM
og svo tvo leiki þar á undan. Það er
búið að slá öll met sem hægt er að
slá,“ benti Þorlákur á.
Eins og ávallt vekur það athygli
þegar svo fámenn þjóð nær svona
langt á vettvangi knattspyrnunn-
ar, vinsælustu íþróttar í heimi.
„Það voru allir að klóra sér í
hausnum í Póllandi. En minni-
máttarkenndin er einfaldlega ekki
til staðar hjá leikmönnum okkar.
Þær hafa mikla trú á því sem þær
eru að gera,“ sagði Þorlákur.
Hann segir þennan góða árang-
ur því helst að þakka að leikmenn
eru að spila flestir með meistara-
flokkum sinna félaga þrátt fyrir
ungan aldur.
„Þær hafa spilað erfiða leiki
með sínum liðum og eru þar að
auki að æfa við mjög góðar aðstæð-
ur. Þar að auki er þjálfun í yngri
flokkum á Íslandi mjög góð og það
hefur verið að skila sér. Árangur
A-landsliðs kvenna skemmir held-
ur ekki fyrir og allt hefur þetta
áhrif. Stelpurnar hafa séð að allt
er hægt.“
Þar sem aðeins fjögur lið keppa í
úrslitakeppninni í sumar er byrjað
í undanúrslitum og mætir Ísland
liði Spánar sem er ríkjandi Evr-
ópumeistari í þessum aldursflokki.
Frakkland mun keppa í hinum
undanúrslitaleiknum en ekki ligg-
ur fyrir hver andstæðingur liðsins
verður þar. - esá
Ótrúlegur árangur U-17 landsliðs kvenna:
Í hópi fjögurra bestu
landsliða í Evrópu
EFNILEGAR Þorlákur Árnason hefur náð frábærum árangri með U-17 lið Íslands.
MYND/KSÍ
Minnimáttarkenndin
er einfaldlega ekki til
staðar hjá leikmönnum okkar.
Þær hafa mikla trú á því sem
þær eru að gera.
ÞORLÁKUR ÁRNASON
ÞJÁLFARI U-17 LANDSLIÐS KVENNA