Fréttablaðið - 23.04.2011, Qupperneq 2
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR2
LÍF OG FJÖR Mikil fjöldi er saman-
kominn á Aldrei fór ég suður. Helgi
Björns tróð upp við góðan orðstír á
fimmtudeginum. MYND/GÚSTI.IS
LÖGREGLUMÁL „Ég veit að bærinn
er stútfullur af fólki, það koma
að minnsta kosti þúsund manns
með Flugfélaginu,“ segir Jón Þór
Þorleifsson, rokkstjóri Aldrei fór
ég suður – rokkhátíðar alþýð-
unnar á Ísafirði. Þetta er í átt-
unda sinn sem hátíðin er haldin.
Hátíðin sjálf hófst í gærkvöldi en
í fyrrakvöld hófst upphitunin.
Að sögn lögreglunnar á Ísafirði
má gera ráð fyrir að íbúafjöldinn
í bænum hafi tvöfaldast, um fjög-
ur þúsund manns komi yfir hátíð-
irnar. Einn gisti fangageymslur
vegna ölvunarláta en lítið var um
læti þrátt fyrir mikinn mann-
fjölda. - kh
Fjör á Aldrei fór ég suður:
Talið að íbúa-
fjöldi tvöfaldist
STJÓRNMÁL Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, hefur staðfest
ný heildarlög um fjölmiðla. Alþingi
afgreiddi þau með 30 atkvæðum
gegn 15. apríl og fékk forsetinn þau
þá til staðfestingar.
Staðfesting forsetans var til-
kynnt í stjórnartíðindum fimm
dögum síðar, 20. apríl.
Undirskriftasöfnun var hafin
þar sem forsetinn var hvattur til
að synja fjölmiðlalögunum stað-
festingar, líkt og hann gerði með
umdeildan forvera þeirra árið 2004.
Um fjögur þúsund manns höfðu
lagt nafn sitt við söfnunina, sem
nokkur fjölmiðlafyrirtæki stóðu
meðal annars fyrir.
Nýju lögin hafa mælst misvel
fyrir, og hlaut frumvarpið nokkra
gagnrýni í umsögnum. Blaða-
mannafélag Íslands hefur til dæmis
bent á að lögin geti verið íþyngjandi
fyrir starfsemi fjölmiðla.
Helsta nýmælið í lögunum er
stofnun fjölmiðlanefndar, sem
hefur það hlutverk að fylgjast
með íslenskum fjölmiðlum og efni
þeirra. Hún hefur jafnframt nokkr-
ar valdheimildir, getur gert húsleit-
ir vegna gruns um brot á lögunum
og krafið fjölmiðla um gögn. - sh
Um fjögur þúsund manns skrifuðu undir áskorun um þjóðaratkvæðagreiðslu:
Forseti staðfesti fjölmiðlalögin
FORSETINN ÁKVEÐINN Ólafur Ragnar
Grímsson skrifaði undir lögin fyrr í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓLK Sænskur maður, John Kullvik,
bað kærustu sinnar, Elinar Hedl-
und, í köfun í Silfru á Þingvöllum
í gær. Parið er í fríi hér á landi og
dvelur nú í Reykjavík.
Héðinn Ólafsson er eigandi köf-
unarskólans Kafarinn.is og var með
parinu á Þingvöllum ásamt nafna
sínum Héðni Þorkelssyni sem kaf-
aði með parinu. „Hann sagði okkur
áður en farið var í seinni köfunina
þeirra að hann ætlaði að gera
þetta,“ segir Héðinn. „Við vorum
með myndavélina og hann vildi láta
taka myndir af þessu. Við vissum
þetta samt ekkert fyrr en þá. Þetta
er nú í fyrsta skipti sem við lendum
í því að einhver beri upp bónorð
þarna niðri.“
Héðinn og félagar fara reglulega
með ferðamenn í köfunarferðir.
Héðinn segir að fólk láti sér detta
ýmislegt í hug til að gera neðan-
sjávar. Hann viti þó ekki til þess að
bónorð hafi áður verið borið upp við
þessar aðstæður á Íslandi.
Bónorðið var óhefðbundið að því
leyti að hvorki er hægt að tala né
setja upp hringa neðansjávar. John
bað Elinar því með því að skrifa
bónorðið niður á spjald. Hann
spurði Elinu einfaldlega hvort hún
vildi giftast sér. Elín svaraði ját-
andi á spjaldið. Trúlofunin var svo
innsigluð með kossi þegar köfun-
inni lauk. „Þau voru hæstánægð
með þetta allt saman,“ segir Héðinn
kafari. thorunn@frettabladid.is
Bað kærustunnar
á bólakafi í Silfru
Svíinn John Kullvik bað kærustunnar Elinar Hedlund í köfunarleiðangri í
Silfru í gær. Bónorðið var skrifað á spjald og svarið var játandi. Líklega fyrsta
neðansjávarbónorðið á Íslandi, segir kafarinn sem skipulagði ferðina.
BÓNORÐIÐ RITAÐ John skrifaði bón sína á spjald sem hann hafði með sér. Hér sýnir hann kærustunni það sem þar stóð.
MYND/HÉÐINN ÞORKELSSON
MEÐ SPJALDIÐ GÓÐA John og Elin með
spjaldið góða að lokinni köfuninni í
Silfru. MYND/HÉÐINN ÞORKELSSON
Konan sem lést í umferðar-
slysinu á móts við bæinn Jörfa
í Víðidal í Húnaþingi vestra að
kvöldi þriðjudagsins 19. apríl,
hét Steinunn Guðmundsdóttir.
Hún var búsett að Jörfa.
Steinunn var fædd 20. júlí
1942. Steinunn lætur eftir sig
eiginmann og þrjá uppkomna
syni.
Lést í bílslysi
SÝRLAND Að minnsta kosti sextíu
manns voru drepnir í mótmælum
í Sýrlandi í gær.
Mótmælendur segja að dagur-
inn hafi verið sá blóðugasti hing-
að til í fimm vikna mótmælum
gegn forsetanum í landinu. Að
minnsta kosti 220 hafa látist í
mótmælunum undanfarnar vikur,
að sögn Amnesty International.
Mótmælendur komu saman
eftir föstudagsbænir og skutu
öryggissveitir á þá.
Ríkisfréttastofan sagði aðeins
að notað hefði verið táragas og
vatn til þess að brjóta mótmælin
á bak aftur.
Mannfallið varð í höfuðborg-
inni Damaskus, í borginni Homs
og bænum Ezra. Tugir þúsunda
mótmælenda mótmæltu um land-
ið allt í gær.
Í sameiginlegri yfirlýsingu frá
aðgerðarsinnum sem skipulagt
hafa mótmælin var þess kraf-
ist að komið yrði á lýðræðislegu
stjórnmálakerfi í landinu.
Aðeins degi fyrr hafði neyðar-
lögum verið aflétt í landinu.
- þeb
Skotið var á mótmælendur eftir föstudagsbænir víðs vegar um landið:
Blóðugasti dagurinn í Sýrlandi
MÓTMÆLT EFTIR BÆNIR Mótmælendur komu saman í borginni Banías í gær. Þar
skutu öryggissveitir á mótmælendur og særðu að minnsta kosti tíu manns.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRAKKLAND Franska óeirðalögregl-
an er ósátt við áform um að banna
þeim að drekka áfengi með hádeg-
ismatnum. Innanríkisráðuneytið
áformar þessar breytingar eftir að
embættismenn reiddust við að sjá
óeirðalögreglumenn drekka bjór
á meðan þeir höfðu eftirlit með
mótmælum í fyrra.
Yfirmenn í óeirðalögreglunni
hafa skrifað innanríkisráðherr-
anum bréf þar sem þeir verja rétt
lögreglumanna til þess að fá sér
vínglas eða bjór með mat eins og
aðrir Frakkar geri í vinnunni. - þeb
Óeirðalögregla í Frakklandi:
Vilja fá að
drekka áfram
Kemur næst út á þriðjudag
Fréttablaðið kemur næst út á þriðju-
dag. Afgreiðsla blaðsins er lokuð þar
til á þriðjudagsmorgun.
Þjónustuver 365 er opið frá 10 til
22 alla daga nema páskadag, en þá
er opið frá 10 til 16.
FRÉTTABLAÐIÐ
STJÓRNMÁL Það er Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra
algerlega að meinalausu að falla
frá breytingu
á upplýsinga-
lögum þess
efnis að 110 ára
leynd geti ríkt
yfir skjölum.
Þetta segir hún
í aðsendri grein
í Fréttablaðinu
í dag.
Jóhanna
segir að málið
sé stormur í vatnsglasi. Þjóð-
skjalavörður myndi ekki vera
einráður um að ákveða að skjöl
yrðu leynileg í 110 ár, mögulegt
væri að kæra til úrskurðarnefnd-
ar um upplýsingamál og bera
undir dómstóla. Tryggt ætti að
vera að 110 ára leynd yrði ekki
nema í algjörum undantekningar-
tilvikum. - þeb / sjá síðu 12
110 ára leynd yfir skjölum:
Gæti fallið frá
breytingum
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Minni grásleppuveiði
Grásleppuvertíðin hefur til þessa
skilað um 3.900 tunnum af hrognum
en um 5.300 tunnur voru komnar á
land á sama tíma í fyrra, að því er Örn
Pálsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda, sagði í
samtali við nýjustu Fiskifréttir sem
koma út í dag. Hér er um 26% sam-
drátt að ræða milli ára.
SJÁVARÚTVEGUR
Hannes, ertu með vonda
matarlist?
„Nei, ég er með mjög góða list en
er óglatt þessa dagana.“
Styr hefur staðið um sýningu í Nýlista-
safninu, þar sem meðal annars mátti
sjá eintak af bókinni Flora Islandica eftir
Eggert Pétursson, útataða í matarleifum.
Hannes Lárusson er sýningarstjóri.
SPURNING DAGSINS