Fréttablaðið - 23.04.2011, Blaðsíða 8
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR
Vodafone IS 3G 10:32
App, app mín sál!
Fermingartilboð í öllum verslunum
Stórsnjallir símar á frábæru verði auk úrvals
framúrskarandi fermingargjafa.
Prófaðu nýjustu tæknina og sjáðu framtíðina með
þínum eigin augum. Láttu ekki app úr hendi sleppa.
2.499 kr.
á mán. í 12 mán.
Fullt verð: 29.990 kr.
2 miðar
í Sambíóin
fylgja
á meðan birgðir endast
200 MB
á mán. fylgir
með í 6 mán.
LG Optimus Me
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Falleg gjafavöruverslun til sölu.
Verslunin er í miðbæ
reykjavíkur.
Mikill lager fylgir og góð
sambönd erlendis.
Skemmtileg vinna við verslun
og heildsölu.
Skipti á fasteign kemur til greina.
Uppl. kolbrun@augnakonfekt.is
DÓMSMÁL Karlmaður á sextugs-
aldri hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Vesturlands til að greiða
75 þúsund krónur í sekt í ríkissjóð
fyrir að ærast í ölvunarástandi á
almannafæri, meðal annars með
því að liggja á dyrabjöllu lögreglu-
stöðvarinnar á Akranesi.
Maðurinn mætti kófdrukk-
inn á lögreglustöðina og talaði
um að berja þyrfti tiltekinn lög-
reglumann. Yfirlögregluþjónninn
spurði hann hvort hann væri að
hafa í hótunum, að því er segir í
frumskýrslu lögreglu, en maðurinn
spurði þá á móti hvort yfirlögreglu-
þjónninn teldi sig „svo vitlausan að
hafa vitni að því“. Maðurinn hafði
síðan á orði að hann væri búinn að
flæma einn lögreglumann úr liði
lögreglunnar á Akranesi og hann
ætlaði sér að losna við fleiri.
Maðurinn var beðinn um að
yfirgefa lögreglustöðina en sturl-
aðist þá og barði í rúðu af miklu
afli. Honum var þá stungið í fanga-
klefa.
Í dómskjölum kemur enn fremur
fram að maðurinn hafi neitað að
hafa haft í hótunum við lögreglu-
manninn, en sagt honum að hann
væri „skepna og sadisti“. Hann
kvaðst koma reglulega á stöðina
til að segja þeim lögreglumönnum
sem hann ætti sökótt við að þeir
væru óþverrar. - jss
Dæmdur til að greiða sekt í ríkisjóð eftir ölvunarlæti á almannafæri:
Hellti sér reglulega yfir lögregluna
AKRANES Heimsókn á lögreglustöðina
kostaði 75 þúsund krónur.
EVRÓPUMÁL Túlkaþjónusta fram-
kvæmdastjórnar ESB gerir ráð
fyrir að þurfa allt að fjörutíu
íslenskumælandi túlka til starfa í
Brussel, fast- og lausráðna.
Framkvæmdastjórnin aðstoðar
því Háskóla Íslands við að bjóða
upp á nám í ráðstefnutúlkun í vetur.
Nemar geta einnig sótt um náms-
styrki.
Yfirmaður skipulags- og ráðn-
ingasviðs þjónustunnar, David
Baker, hefur verið í Háskólanum
að hæfnisprófa fólk vegna þessa.
Þar sem tiltölulega fáir kunna
íslensku á strax að byrja að byggja
upp mannafla sem geti túlkað orð
embættis- og stjórnmálamanna á
íslensku. Baker segir að reynsla
Möltu (410.000 íbúar) sýni að ekki
sé ráð nema í tíma sé tekið, því nú
fyrst anni maltneskt skólakerfi
þessu, en Malta gekk í ESB 2004.
„Hluti af aðstoð okkar er að
senda sérstaka þjálfara í Háskóla
Íslands, kannski viku í senn, því
námið felur í sér meira en þekk-
ingu á tungumálum,“ segir Baker
og vísar þar til tækni til að bæta
minni og einbeitingu, jafnvel til
betri leikrænnar tjáningar.
Nú þegar starfa nokkrir Íslend-
ingar við að túlka á fundum samn-
inganefndar Íslands í yfirstandandi
rýniferli í Brussel. Þeir eru til stað-
ar fyrir íslenska sérfræðinga, til
dæmis í sjávarútvegsmálum, sem
vilja tala íslensku og að orð fulltrúa
ESB séu þýdd fyrir þá.
Í Evrópusambandinu eru 23 opin-
ber tungumál og á stærstu fundum
þess, til dæmis á Evrópuþinginu,
eru þau öll þýdd og túlkuð samtím-
is. Með aðild Íslands yrði íslenska
einnig opinber tunga sambandsins
en Baker segir málstefnu ESB
endurspegla kjarna pólitískrar
stefnu þess, sem birtist í slagorð-
inu: „Sameinuð í fjölbreytileika“.
Áður var franska helsta tunga
ESB en enskan fékk aukið vægi
eftir að Finnland, Svíþjóð og
Austur ríki gengu inn 1995. Full-
trúar þessara ríkja kunnu ensku
betur en frönsku. Hnignun frönsk-
unnar varð enn meira áberandi í
2004 stækkuninni, þegar A-Evrópu-
þjóðirnar gengu inn og kunnu helst
ensku og þýsku. klemens@frettabladid.is
Evrópusambandið
vantar íslenska túlka
Fulltrúi túlkaþjónustu Evrópusambandsins segir þörf fyrir allt að fjörutíu ís-
lenska túlka í Brussel. Því aðstoðar ESB Háskóla Íslands við að bjóða upp á nám
í ráðstefnutúlkun. Fulltrúar landsins í Brussel eiga að geta tjáð sig á íslensku.
DAVID BAKER Hinn breski Baker vill benda áhugamönnum um tungumál á að
fylgjast með störfum túlka ESB í beinni útsendingu Evrópuþingsins á netinu. Þar má
heyra þingmennina tala á 23 tungum samtímis. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR