Fréttablaðið - 23.04.2011, Síða 50

Fréttablaðið - 23.04.2011, Síða 50
23. apríl 2011 30 krakkar@frettabladid.is 30 23. apríl 2011 LAUGARDAGUR Ég lék Kurt í Söngvaseið í Borgarleikhúsinu. Svo hef ég leikið í nokkrum auglýsingum og stuttmyndum. Matthildur María Karlsdóttir LEIKHÚS Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is Hvað heitir þú fullu nafni? Ég heiti Jakob van Oosterhout. Af hverju ertu með erlent eftir- nafn? Af því að pabbi minn er frá Hollandi. Hefurðu verið mikið í Hollandi? Já, ég fer þangað á hverju ári og bjó þar í eitt ár. Áttu afa og ömmu þar? Já, og stóra fjölskyldu því að pabbi á fjögur systkini þar. Hvað ertu gamall? Ég verð 14 ára í júlí. Er gaman að vera í Stundinni okkar? Það er eitt af því skemmtilegra sem ég hef gert! Hvernig kom það til að þú fórst að vera þar? Ég fór í áheyrn- arprufur upp í RÚV og það endaði mjög vel! Hvað er svona gaman við að vera í Stund- inni? Að vera með skemmtilegu fólki sem er þar og að leika. Hefurðu leikið áður? Já, ég lék Kurt í Söngvaseið í Borgarleikhús- inu. Svo hef ég leikið í nokkrum auglýsingum og stuttmyndum. Ertu búinn að læra mikið af Björgvini F r a n z? Já , heilan helling. Hann er frá- bær, fyndinn og góður leikstjóri. Tek u r l a n ga n tíma að taka upp hvern þátt? Það tekur svona um fjóra klukkutíma. Hefurðu þurft að fá frí úr skól- anum til að vinna í sjónvarp- inu? Já, nokkuð oft en Hagaskóli hefur tekið því mjög vel og ég er mjög ánægður með það. Hefur allt verið tekið upp í stúdíói eða hafa verið útitökur líka? Það hefur allt verið tekið í stúdíói. Áttu systkini? Já, einn frábær- an tíu ára bróður sem heitir Tómas. Finnst honum og vinum þínum ekki skrítið að þú sért í sjón- varpinu? Nei, þeim finnst bara mjög gaman að horfa. Í hvaða bekk ertu í Haga- skóla? Ég er í átt- unda bekk. Hver eru uppá- haldsfögin þín í skólanum? Íþróttir og sam- félagsfræði. En hver eru helstu áhuga- málin þín? Leik- list, íþróttir, fjölskylda og vinir. Hefurðu eitt- hvað farið út á land? Já, við fjölskyldan ferðumst mjög mikið og göng- um mikið. Hvað ætlar þú að gera í sum- arfríinu? Ég fer með fjöl- skyldunni til Hollands og Frakklands. Svo ætlum við líka að ferðast innanlands. FÓR Í ÁHEYRNARPRUFUR SEM ENDUÐU MJÖG VEL Að leika í Stundinni okkar er eitt það skemmtilegasta sem Jakob van Oosterhout hefur gert. Hann kveðst hafa lært heilan helling af Björgvini Franz enda sé hann frábær, fyndinn og góður leikstjóri. Matthildur María Karlsdóttir, 7 ára, brá sér á dögunum á leiksýninguna Ballið á Bessastöðum sem er sýnd í Þjóð- leikhúsinu. Áður hafði hún lesið sam- nefnda sögu Gerðar Kristnýjar sem leikritið byggir á og þekkti sögu- þráðinn því vel þegar hún mætti í leikhúsið. Hvernig skyldi hún svo hafa skemmt sér? „Alveg rosalega vel,“ segir Matthildur María ánægð og finnst hafa tekist einstaklega vel að vinna leik- rit upp úr bókinni. Leikarana segir hún hafa staðið sig með eindæmum vel og tónlistin hafi bæði verið skemmtileg og góð. En stóð eitthvað sérstakt upp úr? „Mér fannst flottasta atriðið þegar Auður vinkona forsetans málaði Bessastaði bleika,“ segir hún og brosir og bætir við að sýningin hefði eiginlega ekki mátt vera betri. Á þá að gefa henni fullt hús stiga? „Algjörlega, fimm stjörn- ur!“ Spurð í lokin hvort sýningin henti krökkum á hennar aldri, svarar hún ákveðin: „Já, og meira að segja fullorðnum líka!“ Hvað kallast bíll Drakúla greifa? Blóðbíllinn. Hvað er illt og ljótt að innan en grænt að utan? Norn klædd eins og agúrka. Af hverju varð drengurinn leiður þegar hann sigraði í búningakeppninni á grímu- ballinu? Hann kom bara til að sækja systur sína. Hvað hefur sex fætur og flýgur? Norn sem gefur kettinum sínum far. Kennarinn: Af hverju stendur styttan af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli? Nemandinn: Af því hann getur ekki sest niður. Hvað hefur tólf fætur, sex augu, þrjú skott og sér ekki neitt? Þrjár blindar mýs. WWW.BUILD-IT-YOURSELF.COM Vefsíða þar sem finna má leið- beiningar um hin ýmsu verkefni. Til dæmis hvernig má teikna andlit eða byggja legóturn. www.listahatid.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA! Ballið á Bessastöðum Niðurstaða: Rosalega skemmtilegt leikrit 16 eftir Braga Halldórsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.