Fréttablaðið - 23.04.2011, Side 56
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
56
Enn er allt á huldu um hver
hannar og hvernig brúðar-
kjóll Kate Middleton verður
er hún gengur í það heilaga
með Vilhjálmi bretaprins
29. apríl næstkomandi.
Bæði Sarah Burton, sem
hannar fyrir tískuhús Alex-
ander McQueen, og Bruce
Oldfield þykja líkleg.
Það er meðvituð ákvörðun hjá til-
vonandi prinsessunni Kate Middle-
ton að halda öllum leyndu varðandi
brúðarkjól sinn en hún vill koma í
veg fyrir að Vilhjálmur komist á
snoðir um í hvernig stíl kjóllinn
verður. Margir hafa verið nefnd-
ir í sambandi við hönnun kjóls-
ins en ljóst þykir að viðkomandi
er breskur en af nógu er að taka í
hönnuðaflóru þeirra.
Hönnuðirnir Sarah Burton, sem
hannar fyrir tískuhús Alexander
McQueen, og Bruce Oldfield þykja
líkleg til að hafa hreppt hnossið.
Burton hefur heillað tískuheiminn
eftir að hún tók við merki Alexand-
ers McQueen þegar hann lést og er
þekkt fyrir fallega kjóla úr flæð-
andi efni með töffaralegum brag.
Bruce Oldfield var hins vegar
einn af uppáhaldsfata-
hönnuðum Díönu
prinsessu og marg-
ir sem veðja á að
Middleton hafi
valið Oldfield til
að heiðra minn-
ingu hennar. Old-
field hannaði til
dæmis bláa kjólinn sem Middleton
klæddist þegar parið opinberaði
trúlofun sína en hönnuðurinn er
fjölhæfur og til að mynda með
einkennisklæðnað starfsmanna
skyndibitakeðjunnar McDonalds á
ferilskránni.
Einnig hafa nöfn á borð við
Sophie Cranston, Vivianne
Westwood, Stella McCart-
ney og Marchesa verið
nefnd í þessu samhengi.
Það er hins vegar
búið að opinbera
að Vilhjálmur
prins klæð-
ist einkennis-
búningi frá
breska flug-
hernum en
Middleton átti
þátt í velja það
fyrir hann.
Breskir
tískupennar
skiptast á að
hrósa Kate
Middleton
fyrir falleg-
an klæðaburð
og ljóst þykir að
ný tískufyrir-
mynd er að fæð-
ast í Bretlandi.
Það er því ekki
skrítið að mikil
eftirvænting
ríkir fyrir
kjólnum og
eiga marg-
ir eftir að
sitja límdir
við skjáinn
þegar hún
gengur niður
90 metra langa
kirkjugólfið í West-
minster Abbey-
kirkjunni.
alfrun@frettabladid.is
KJÓLLINN HENNAR KATE
TILVONANDI HJÓN Vilhjálmur prins klæðist einkennisbúningi frá breska
flughernum er hann gengur í það heilaga með Kate Middleton en
miklar vangaveltur eru um hvernig kjól tilvonandi prinsessa klæðist.
NORDICPHOTOS/AFP
FÁIR VITA HVER
HANNAR BRÚÐAR-
KJÓLINN Bruce
Oldfield er einn
grunaðra en hann
hannaði trúlofunar-
kjól Middleton sem
sló í gegn.
NORDICPHOTOS/AFP
Vodafone IS 3G 10:32
Dýrð í Apphæðum!
Fermingartilboð í öllum verslunum
Stórsnjallir símar á frábæru verði auk úrvals
framúrskarandi fermingargjafa.
Prófaðu nýjustu tæknina og sjáðu framtíðina með
þínum eigin augum. Láttu ekki app úr hendi sleppa.
Nokia C5- 03
3.333 kr.
á mán. í 12 mán.
Fullt verð: 39.990 kr.
200 MB
á mán. fylgir
með í 6 mán.
2 miðar
í Sambíóin
fylgja
á meðan birgðir endast
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Leikstjórinn umdeildi,
Michael Moore, heldur upp á
56 ára afmæli sitt í dag.
SARAH BURTON Nýr
hönnuður Alexander
McQueen er í upp-
áhaldi hjá Middleton
og þykir líkleg til að
vera þessa stundina
að leggja lokahönd á
brúðarkjólinn.
NORDICPHOTOS/GETTY