Fréttablaðið - 23.04.2011, Síða 70

Fréttablaðið - 23.04.2011, Síða 70
23. apríl 2011 LAUGARDAGUR50 PÁSKAEGGIÐ „Ég er ekki búinn að fá mér páskaegg en það stendur til. Ætli ég prófi ekki nýja páska- eggið sem er með lakkrís í. Mér er sagt að það sé rosalega gott.“ Fannar Ólafsson, fyrirliði Íslands- og bikarmeistara KR í körfubolta. „Ég veit ekki hversu langt á veg þetta er komið en það eru einhverj- ar þreifingar í gangi,“ segir Krist- ófer Dignus, handritshöfundur og einn af prímusmótorunum á bak við sjónvarpsþættina Mannasiði Gillz. Sjónvarpsstöðvar á Norður- löndunum hafa sýnt þema þátt- anna áhuga og því ekki útilokað að skandinavískar útgáfur af Agli Gillzenegger muni líta dagsins ljós í náinni framtíð. „Það er mikil „format“-menning í gangi á Norð- urlöndunum, menn spara sér tíma og fyrirhöfn með því að þurfa ekki alltaf að vera að finna upp hjólið og nýta sér sniðugar hugmyndir,“ segir Kristófer. Mannasiðirnir nutu töluverða vinsælda hjá sjónvarpsáhorfend- um og Kristófer viðurkennir að það hafi verið sérstaklega ánægjulegt fyrir sig að þættirnir brúuðu kyn- slóðabilið. Foreldrar og börn horfðu á þættina saman. Kristófer er byrjaður að skrifa handrit að næstu seríu sem verður unnin upp úr Lífsleikni, bók Gillz sem kom út fyrir síðustu jól. Krist- ófer segir þá þáttaröð verða svip- aða og Mannasiðirnir. „Við viljum hins vegar auka vægi leikna hlut- ans en minnka stúdíó-hlutann. Sem- sagt minnka vægi Gillz,“ útskýrir Kristófer en bætir því strax við að kraftajötunninn sé sjálfur sátt- ur við það. „Við viljum náttúrlega líka auka leikna hlut- ann með Gillz, þar sem hann fer yfir hlutina með rass- hausunum sínum og sýnir þeim hvernig á að gera hlut- ina.“ Ráðgert er að tökur á Lífsleikni Gillz hefj- ist í haust o g v e r ð i síðan teknir til sýningar á Stöð 2 eftir áramót. - fgg Leitað að norrænum Gillzenegger Á AÐ VERA AÐ SKRIFA Kristófer Dignus á að vera byrjaður að skrifa handritið að Lífsleikni Gillz en miðað við tölvuskjáinn gengur honum eitthvað erfiðlega að koma sér að verki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Nýr menningarþáttur í umsjá Þórhalls Gunnarssonar, fyrr- verandi dagskrárstjóra Ríkis- sjónvarpsins, lítur dagsins ljós næsta haust á RÚV. Sigrún Stef- ánsdóttir, núverandi dagskrár- stjóri, segir þáttinn eiga að fjalla um þær listgreinar sem setið hafi á hakanum hjá RÚV: myndlist, kvikmyndir og leik- hús. Í myndlistinni verður það Guðmundur Oddur eða Godd- ur sem verður Þórhalli innan handar og þær Sigríður Péturs- dóttir og Vera Sölvadóttir munu aðstoða Þórhall með kvikmynda- hlutann. Hins vegar hefur ekki verið gengið frá ráðningu í leik- húshlutann en þáttastjórnandinn Þórhallur er auðvitað menntaður leikari og mun að mestu leyti sjá um þá umfjöllun sjálfur þótt leik- húsgagnrýnandi verði vissulega fyrir hendi. RÚV var gagnrýnt í síðasta Áramótaskaupi á nokkuð eftir- minnilegan hátt þegar á það var bent á afar kurteislegan hátt að RÚV væri með kvikmyndaþátt í útvarpi en bókaþátt í sjónvarpi. „Jú, eigum við ekki bara að segja að við höfum tekið mark á gagn- rýninni? Það hefur vantað svona þátt hjá RÚV og svo sjáum við bara hvað næsta Áramótaskaup hefur fram að færa,“ segir Sig- rún. Þórhallur sjálfur hefur smám saman verið að snúa aftur í Efstaleitið eftir að hafa horf- ið skyndilega úr dagskrárstjór- astólnum fyrir tveimur árum. Hann hefur stjórnað viðtals- þættinum Návígi sem nú líður undir lok og umræðuþættinum Hvert stefnir Ísland? sem heldur áfram á dagskrá Sjónvarpsins. „Þetta er í raun ekkert flókið í mínum huga, ég ákvað að hætta á sínum tíma vegna prívat leiða, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR: VIÐ TÓKUM MARK Á GAGNRÝNI Í SKAUPINU Þórhallur Gunnarsson með nýjan menningarþátt á RÚV NÝR MENNINGARPÁFI Þórhallur Gunnarsson er nýr menn- ingarpáfi Ríkissjónvarpsins og mun fjalla jöfnum höndum um myndlist, kvikmyndagerð og leikhús ásamt þeim Sigríði Pétursdóttur, Veru Sölvadóttur og Goddi. Þórhallur segir það vera skemmtilegra að vera í dagskrárgerð en að hanga yfir excel-skjölum allan daginn. Vefsíðan Billetlugen.dk hefur verið tilnefnd til vef- verðlaunanna E-Handelsprisen í Danmörku. Fimm Íslendingar starfa hjá síðunni, þar af fjórir sem tóku þátt í uppbyggingu Midi.is hér á landi. „Við komum hingað út fyrir þremur árum og þá voru allir blótandi þáverandi miðasölukerfi Billetlu- gen,“ segir Sindri Már Finnbogason hjá Billetlu- gen. „Á þessum þremur árum erum við búnir að setja upp þetta miðasölukerfi sem er byggt á Midi. is og það endar með því að við fáum þessa tilnefn- ingu. Þetta er mjög mikill heiður og algjör snilld.“ Á meðal annarra starfsmanna síðunnar er Björn Hr. Björnsson sem forritaði ásamt Sindra Má Midi.is, sem er dótturfyrirtæki Billetlugen. Vefsíðan er tilnefnd ásamt tveimur öðrum síðum í flokki bestu síðna sem selja vörur á netinu. Verð- launin, sem eru þau stærstu í Danmörku, verða veitt 12. maí. Billetlugen selur um þrjár milljónir miða á hverju ári, þar á meðal fyrir Hróarskelduhátíðina, Tívolíið, skemmtistaðinn Vega, Parken og Danmarks Radio. Sindri Már og félagar hafa einnig opnað nýja miða- sölusíðu í Svíþjóð undir nafninu Biljettformum.se og eru að undirbúa aðra til viðbótar í Noregi sem stendur til að opna í júní. - fb Tilnefndir til danskra verðlauna TILNEFNDIR Sindri Már Finnbogason og Björn Hr. Björnsson á Parken-leikvanginum í Kaupmannahöfn. Þeir hafa verið til- nefndir til vefverðlauna. Ármúla 18 sími 511 3388 Heildsöludreifing: Satúrnus ehf. RAUMA norskt prjónagarn og prjónablöð með íslenskri þýðingu R A U M A 209R 110256-02 G rafisk design og produksjon: w w w .hatlehols.no F otograf: E lisabeth Tollisen. design b a b y www.raumaull.no Nýtt Sun 1.5. Kl. 15:00 Sindri silfurfiskur (Kúlan) Lau 30.4. Kl. 20:00 Sun 1.5. Kl. 20:00 Hedda Gabler (Kassinn) Ö Allir synir mínir (Stóra sviðið) Mið 27.4. Kl. 20:00 Lau 30.4. Kl. 20:00 Mið 4.5. Kl. 20:00 Fim 5.5. Kl. 20:00 Mið 11.5. Kl. 20:00 Fim 12.5. Kl. 20:00 Mið 18.5. Kl. 20:00Ö Sun 1.5. Kl. 14:00 Sun 1.5. Kl. 17:00 Sun 8.5. Kl. 14:00 Sun 8.5. Kl. 17:00 Sun 15.5. Kl. 14:00 Sun 22.5. Kl. 14:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fim 28.4. Kl. 20:00 5. sýn Fös 29.4. Kl. 20:00 6. sýn Fös 6.5. Kl. 20:00 7. sýn Lau 7.5. Kl. 20:00 8. sýn Fös 13.5. Kl. 20:00 Lau 14.5. Kl. 16:00 br.sýn Fim 19.5. Kl. 20:00 Fös 3.6. Kl. 20:00 Lau 4.6. Kl. 20:00 Fim 9.6. Kl. 20:00 Fös 10.6. Kl. 20:00 U Ö U Ö Ö Ö Ö Ö U U Ö Ö U Ö Ö Ö U Brák (Kúlan) Fös 13.5. Kl. 20:00 Aukasýn. Sun 15.5. Kl. 20:00 Aukasýn. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN FÁÐU BEITTUSTU BRANDARANA Í SÍMANN m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meiri Vísir. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi mér fannst ég hafa misst tengsl við allt og alla. Sjónvarpið er hins vegar alltaf skemmtilegur og skapandi miðill og ég vildi snúa aftur í sjónvarpsþáttagerð. Það var líka vilji núverandi dag- skrárstjóra og sjónvarpsstjóra. Þetta er miklu skemmtilegra en að liggja yfir excel-skjölum.“ freyrgigja@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.