Fréttablaðið - 03.05.2011, Blaðsíða 8
3. maí 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
4
8
5
Við erum með réttu
leiðina fyrir þig
Komdu til okkar eða hafðu samband og við aðstoðum þig við að finna hagstæðustu leiðina.
3 vinir og 300 SMS
Hringdu á 0 kr. í 3 vini óháð kerfi*
og sendu 300 SMS á alla hina
Eitt mínútuverð
í alla innanlands
1.390 kr. mánaðargjald
*600 mín./ 300 SMS á mán.
300 MB á mán. fylgir til áramóta.
Ódýrari mínútur
Hringdu á 0 kr. í 1 GSM vin hjá
Símanum*
Aðeins 11,9 kr. mín.
í alla innanlands
590 kr. mánaðargjald
*1.000 mín./ 500 SMS á mán.
6 vinir óháð kerfi
Hringdu á 0 kr. í 6 vini
óháð kerfi*
Eitt mínútuverð
í alla innanlands
2.190 kr. mánaðargjald
– Veldu áskrift eða Frelsi
*Áskrift 1.000 mín./ 500 SMS á mán.
Frelsi 60 mín./60 SMS á dag.
1000 mínútur
Hringdu á 0 kr. í alla GSM og
heimasíma á Íslandi*
Frábær leið fyrir þá sem nota
GSM símann mikið
7.990 kr. mánaðargjald
*1.000 mín./ 500 SMS á mán.
Ring
Fyrirframgreidd þjónusta
– fyrir þá sem vilja afgreiða
sig sjálfir
0 kr. innan Ring
990 kr. mánaðargjald
eða
0 kr. innan kerfis Símans
1.990 kr. mánaðargjald*
*1.500 mín./ SMS á mán.
siminn.is
Greidd eru mánaðargjöld og upphafsgjöld skv. verðskrá. Ekki eru greidd upphafsgjöld af símtölum í vinanúmer. Nánar á siminn.is
VIÐSKIPTI Mesti vöxtur útflutnings-
tekna í skapandi greinum hér á landi
hefur verið í útgáfu tölvuleikja.
Heildarverðmæti hafa sexfaldast á
árunum 2005 til 2009, úr 1,9 millj-
örðum króna í 13,2 milljarða. Nær
öll velta í útgáfu á tölvuleikjum hér
á landi telst til útflutnings.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
um hagræn áhrif skapandi greina
á Íslandi. Að skýrslunni stóðu dr.
Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lekt-
or við viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands og forstöðumaður Rann-
sóknarmiðstöðva skapandi greina,
og Tómas Young, verkefnastjóri hjá
Útón. Fimm ráðuneyti og Íslands-
stofa komu einnig að rannsókninni,
sem nær yfir árin 2005 til 2009.
Notast var við gögn frá Hagstofu
Íslands, Fjársýslu ríkisins og Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga.
Skapandi greinar veltu í heild 189
milljörðum hér á landi árið 2009.
Hlutur hins opinbera af heildar-
veltu greinanna er um 12,5 prósent
og voru ársverkin, eða störfin sem
greinarnar sköpuðu, 9.371 talsins.
Útflutningstekjur skapandi
greina voru um 24 milljarðar árið
2009 eða um þrjú prósent af heild-
arútflutningi þjóðarinnar. Til sam-
anburðar má geta þess að útflutn-
ingstekjur landbúnaðarvara voru
um 1,5 prósent af heildarútflutningi.
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri tölvuleikjaframleið-
andans CCP, segir þróun í útflutn-
ingi tölvuleikja hraðari hér á landi
heldur en erlendis, en útflutning-
ur CCP nam 7,5 milljörðum króna
árið 2009, sem gerir um 60 prósent
af heildarútflutningsverðmætum
íslenskra tölvuleikja.
Vöxturinn mestur í
sölu á tölvuleikjum
Skapandi greinar eru um 3 prósent af heildarútflutningi landsins og veltu alls
um 189 milljörðum hér á landi árið 2009. Heildarverðmæti á útflutningi tölvu-
leikja sexfaldaðist á árunum 2005 til 2009, úr tveim milljörðum í rúma þrettán.
15
12
9
6
3
0
2005 2006 2007 2008 2009
■ Útgáfa tölvuleikja
■ Framleiðsla á kvikmyndum, mynd-
böndum og sjónvarpsefni
■ Smásala á fatnaði í sérverslunum
■ Önnur prentun
■ Hljóðupptaka og tónlistarútgáfa
Útflutningur skapandi greina eftir atvinnugreinaflokkum
M
illj
ar
ða
r
Hugmyndin um skapandi greinar (e.
Creative industry) var fyrst notuð í Ástr-
alíu árið 1996 í tengslum við opinbera
stefnumótun. Eftir að Verkamanna-
flokkurinn komst til valda í Bretlandi
árið 1998 tók hann að líta á skapandi
greinar sem hluta af atvinnulífinu og
mikilvægan þátt í þjóðarframleiðslu.
Var það einkum gert í ljósi vaxandi
mikilvægis stafrænna miðla, tölvuforrita
og tölvuleikja, að því er kemur fram í
skýrslunni.
Þeir flokkar innan FCS-rammans
sem notaður var til þess að skilgreina
skapandi greinar hér á landi eru eftir-
farandi:
■ Menningar- og náttúruarfleifð
■ Sviðslistir og hátíðarhöld
■ Sjónræn list og handverk
■ Bækur og fjölmiðlun
■ Hljóð, mynd og gagnvirkir
miðlar
■ Hönnun og skapandi
þjónustugreinar
■ Óáþreifanleg menningararfleifð.
Nýtt af nálinni
Hilmar segir skrásetningu sem
sé í skýrslunni vera nauðsynlega til
þess að sýna fram á tækifærin sem
fram undan eru innan þeirra fyrir-
tækja sem starfa í skapandi grein-
um. Mikið hafi vantað upp á að það
markaðsumhverfi sé skráð af sama
krafti og almennur vöruútflutning-
ur og framleiðsla.
Þetta er í fyrsta sinn sem umfang
skapandi greina á Íslandi hefur
verið kortlagt. Markmið kortlagn-
ingarinnar er að gefa vísbendingu
um hagrænt umfang greinaflokks-
ins í landinu. Skýrslan verður kynnt
í heild sinni á málstofu í Háskóla
Íslands í dag klukkan 12.
sunna@frettabladid.is
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín