Fréttablaðið - 10.06.2011, Síða 51
FÖSTUDAGUR 10. júní 2011 35
SKRÁÐU ÞIG Á OFFICE1.IS
Í tilefni 10 ára afmælis okkar
ætlum við gefa einni mömmu
10.000 KR. GJAFABRÉF
Á HVERJUM DEGI - ALLT ÁRIÐ.
FY
R
IR
S
K
ÓL
A O
G FJÖLSKYLDUR Í 10 ÁR
2001 - 2011
Skeifan 550-4110 | Smáralind 550-4140 | Hafnarfjörður 550-4120 | Selfoss 550-4190 | Egilsstaðir 550-4160
KÖRFUBOLTI Bandarísku körfu-
boltamönnunum Justin Shouse
og Darrell Flake var í fyrradag
úthlutað íslenskum ríkisborgara-
rétti hjá allsherjanefnd Alþingis.
Þeir Shouse og Flake eiga báðir
að baki farsælan feril í íslensku
úrvalsdeildinni og hefur Shouse
verið í hópi bestu leikmanna
deildarinnar undanfarin ár. Nú
gætu þeir hjálpað íslenska lands-
liðinu og samkvæmt reglum FIFA
má velja þá strax í landsliðið.
„Það eru breyttar reglur frá
því sem var. Nú þarf reyndar
að sinna pappírsvinnu til FIBA
Europe en leikmenn eru lög-
legir um leið og þeir samþykkja
umsóknina. Það þarf ekki að vera
ríkisborgari í tvö eða þrjú ár eins
og var áður,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
KKÍ.
Aðeins má vera með einn leik-
mann af erlendum uppruna í
mótum á vegum FIBA og það
sama gildir á Norðurlanda-
mótum.
„Þetta er atriði sem við munum
skoða en þeir eru báðir í Banda-
ríkjunum og við erum því ekki
að hlaupa upp til handa og fóta
núna,“ sagði Friðrik Ingi. Nýi
landsliðsþjálfarinn Peter Öqvist
tilkynnti í vikunni 22 manna hóp
fyrir Norðurlandamótið í sumar
og þar er enginn leikmaður af
erlendum uppruna. - óój
Shouse orðinn Íslendingur:
Má spila strax
með landsliðinu
JUSTIN SHOUSE Hefur spilað á Íslandi
síðan 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Pepsi-deild kvenna
Valur-Þór/KA 6-1
1-0 Hallbera Guðný Gísladóttir (33.), 2-0 Dagný
Brynjarsdóttir (38.), 3-0 Hallbera (41.), 3-1
Mateja Zver (57.), 4-1 Caitlin Miskel (64.), 5-1
Dagný (74.), 6-1 Rakel Logadóttir (84.)
STAÐAN Í DEILDINNI
ÍBV 4 4 0 0 14-0 12
Valur 4 3 1 0 10-3 10
Stjarnan 4 3 0 1 10-3 9
Þór/KA 4 2 0 2 6-13 6
KR 4 1 2 1 4-4 5
Breiðablik 4 1 1 2 7-6 4
Fylkir 4 1 1 2 5-8 4
Afturelding 4 1 1 2 4-8 4
Þróttur R. 4 0 2 2 2-8 2
Grindavík 4 0 0 4 2-11 0
1. deild karla
HK-Víkingur Ó. 0-2
0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (60.), 0-2
Hilmar Þór Hilmarsson (85.). Upplýsingar um
markaskorara af fótbolti.net.
STAÐAN Í DEILDINNI
ÍA 5 4 1 0 13-2 13
Haukar 5 3 1 1 8-4 10
Þróttur R. 5 3 1 1 7-4 10
Selfoss 5 2 1 2 11-8 7
KA 5 2 1 2 7-6 7
Fjölnir 5 2 1 2 8-8 7
ÍR 5 2 1 2 6-9 7
Víkingur Ó. 6 1 3 2 5-6 6
Grótta 5 1 3 1 3-5 6
BÍ/Bolungarvík 5 2 0 3 6-11 6
Leiknir R. 5 0 4 1 3-5 4
HK 6 0 1 5 7-16 1
NÆSTU LEIKIR
KA-Fjölnir Í kvöld kl. 18.15
ÍA-ÍR Í kvöld kl. 20.00
Grótta-Haukar Í kvöld kl. 20.00
Þróttur R.-Selfoss Í kvöld kl. 20.00
Leiknir-BÍ/Bolungarvík á morgun kl. 13.00
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Hallbera Guðný Gísladóttir og Dagný
Brynjarsdóttir opnuðu báðar markareikning
sinn í Pepsi-deild kvenna með því að skora tvö
mörk hvor í 6-1 stórsigri Vals á Þór/KA í loka-
leik 4. umferðar Pepsi-deildar kvenna í gær-
kvöldi.
Hallbera skoraði tvö glæsimörk beint úr
aukaspyrnu með aðeins átta mínútna millibili
í fyrri hálfleik en Dagný, sem átti frábæran
leik á miðjunni, skoraði mark í hvorum hálf-
leiknum.
„Ég er búin að vera rög við að skjóta en lét
loksins vaða í dag og þá skoraði ég. Þetta eru
fyrstu tvö mörkin mín í mótinu þannig að loks-
ins komu þau,“ sagði Dagný í viðtali við Sporttv
eftir leikinn. „Við misstum Dóru og Kötu af
miðjunni fyrir tímabilið og það hefur verið erf-
itt að púsla miðjunni saman. Mér finnst þetta
loksins vera að koma núna,“ sagði Dagný, en
hún og hin fimmtán ára Hildur Antons dóttir
réðu ríkjum á miðjunni í gær.
Hin mörk Valsliðsins skoruðu þær Caitlin
Miskel og Rakel Logadóttir. Mateja Zver
minnkaði muninn fyrir Þór/KA. Með sigrin-
um komust Valskonur upp fyrir Stjörnuna og
í annað sæti deildarinnar en nýliðar ÍBV eru
með tveggja stiga forskot á toppnum. Vals konur
spiluðu frábærlega í gær og sýndu að þær eru
búnar að hrista af sér slenið eftir rólega byrjun
í deildinni. Þór/KA-liðið tapaði hins vegar öðru
sinni stórt í sumar, en ÍBV vann þær 5-0 fyrir
norðan í fyrstu umferðinni. - óój
Valskonur unnu 6-1 stórsigur á Þór/KA í Pepsi-deild kvenna á Vodafone-vellinum í gærkvöldi:
Hallbera með tvö mörk beint úr aukaspyrnum
STERKAR Rakel Hönnudóttir í baráttu við Hildi Antons-
dóttur og Thelmu Einarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN