Fréttablaðið - 28.06.2011, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
SAMGÖNGUR Töluvert dýrara er
að ferðast á milli Akureyrar og
Reykjavíkur með rútu en með
Flugfélagi Íslands. Ódýrasta
flugfargjaldið á milli bæjarfélag-
anna er 7.990 krónur en rútuferð-
in með fyrirtækinu Sterna, sem
er eina hópferðafyrirtækið sem
sinnir þessum leiðum, kostar
11.000 krónur. Flugtími á milli
er um 45 mínútur en rútuferðin
tekur um sex klukkustundir.
Rúturnar taka mest um fimm-
tíu farþega í sæti og segir Óskar
Stefánsson, framkvæmdastjóri
Sterna, að afar fátítt sé að bílarn-
ir séu fullsetnir. „Það er virkilegt
happdrætti hvort við fáum fimm-
tíu manns,“ segir hann. Meðal-
fjöldi farþega í ferðunum sé um
fimmtán.
Meðalrúta fer með um 130 lítra
af eldsneyti á leiðinni á milli
Akureyrar og Reykjavíkur, sem
gerir um 31.000 krónur fyrir
fyrirtækið. Bílstjóri fær greitt
fyrir tíu klukkustunda vinnu og
segir Óskar að þegar allt sé dreg-
ið saman sé kostnaður fyrirtæk-
isins um 100 þúsund krónur fyrir
hverja ferð.
Á síðasta ári bauð Sterna fimm-
tíu prósenta afslátt af öllum far-
gjöldum. Óskar segir það þó ekki
hafa virkað sem skyldi og hefur
ekki trú á því að hægt sé að
kaupa fólk í rúturnar með lágum
fargjöldum. Árið 2009 var rukk-
að fullt gjald og var farþegatalan
það ár hærri en í fyrra.
„Þetta virkaði ekki. Ég held að
við séum orðin svo háð einkabíl-
um og öðrum samgönguleiðum,“
segir hann. „Við ráðum ekkert
við þessa samkeppni.“
Fokker 50-vélar Flugfélags
Íslands taka fimmtíu manns í
sæti og eru það algengustu vél-
arnar sem fljúga á milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur. Leiguflug
á milli staða kostar um 350 þús-
und krónur og séu öll sæti seld
er kostnaðurinn á mann 7.000
krónur. Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
segir það færast í aukana að
stórir hópar nýti sér flugferðir
á milli staða. Árni segir þó að
eldsneytisverð bitni mikið á flug-
félögunum og sá kostnaður vegi
mjög þungt.
„Um tuttugu prósent af okkar
kostnaði eru eldsneyti og um
leið og olíuverð hækkar lendir
það alveg jafn mikið á okkur og
hinum almenna neytanda,“ segir
hann. „En við erum að reyna að
halda aftur af verðhækkunum,
sem virðist vera að bera þann
árangur að farþegum fjölgar.“ - sv
Þriðjudagur
skoðun 14
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Ferðalög innanlands
28. júní 2011
148. tölublað 11. árgangur
Ég held að við séum
orðin svo háð einka-
bílum og öðrum samgöngu-
leiðum. Við ráðum ekkert við
þessa samkeppni.
ÓSKAR STEFÁNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI STERNA
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Guðni Páll Viktorsson heillaðist af kajakróðri fyrir rúmu ári og hefur róið nánast daglega síðan.
E in besta aðstaða til kajakróðurs á landinu er hér á Ísafirði,“ segir Guðni Páll Viktorsson þar sem hann rennir sér yfir spegilsléttan Pollinn innst í Skutulsfirði. „Hér innst í firðinum er mikil veð-ursæld og mikið logn á sumrin, sem gerir það að verkum að við komumst alltaf á sjó þrátt fyrir snælduvitlaust veður úti á miðum,“ segir hann.Guðni Páll kynntist íþróttinni fyrir aðeins rúmu ári en hefur náð góðum tökum á henni þrátt fyrir það. „Kajakíþróttin er mjög vinsæl hér á Ísafirði og ræðararnir mjög áberandi á Pollinum. Ég heill-aðist af þessu, ákvað að kaupa mér kajak og fór á námskeið hjá Halldóri Sveinbjörnssyni og hef róið nánast daglega síðan,“ segir Guðni Páll glaðlega. En hvað er svona heillandi? „Það er frelsið, og svo kynnist maður náttúrunni á annan hátt. Ég er sjómaður á veturna og þekki því sjóinn en á kajak fær maður allt aðra sýn á hafið og ber meiri virðingu fyrir náttúruöflunum,“ útskýrir hann.
Guðni Páll miðlar nú þekk-ingu sinni áfram. „Ég kenni sumarnámskeið fyrir börnin á Ísafirði og kenni þeim bæði á kajak og litla seglbáta. Hér þykir börnum sjálfsagt að leika við og í sjónum og því
er nauðsynlegt að gera þau meðvituð um
hvað getur gerst,“ segir Guðni Páll og telur
að börnin beri meiri virðingu fyrir sjónum
eftir námskeiðið og þyki sjálfsagt að klæðast
björgunarvestum eftir það. solveig@frettabladid.is
Hafið fær aðra vídd
Náttúrulaugar eru víða um land og vinsælt að baða
sig í þeim. Þessar laugar eru yfirleitt í umsjón land-
eða skálavarða en sjaldnast vaktaðar sem slíkar. Börn
ættu því aldrei að vera í þessum laugum nema undir
stöðugri umsjón fullorðinna.
Sölustaðir:
10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1,
Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin,
Fiskbúðin Freyja, Melabúðin.
ÍSLENSK FÆÐUBÓTBITAFISKUR-næring fyrir líkama og sál
AIR-O-SWISSUltrasonic rakatæki
• Innbyggður rakamælir• Heitur og kaldur úði• Vörn gegn bakteríumyndun• Draga úr þurrki í augum og öndunarfærum
Einstök hönnun
Á ferð um landiðÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
Flugið ódýrara en rútuferð
Mun dýrara er að ferðast með rútu á milli Akureyrar og Reykjavíkur en með flugi. Rútuferðin kostar
11.000 en ódýrasta flugfargjaldið er 7.990. Talsmaður hópferðafyrirtækis segir markaðinn óviðráðanlegan.
Akureyri - Reykjavík
Ferð með áætlunarflugi Krónur
Flugtími 40 til 45 mínútur
Forgangur 15.620
Ferðasæti 13.060
Sparsæti 11.180
Bónussæti 9.980
Nettilboð 7.990
Ferð með rútu Krónur
Ferðatími um sex klukkustundir
Almennt verð 11.000
Námsmenn (vetur) 5.500
Fáránlega sætur
María Mjöll Björnsdóttir
er einn mesti Justin Bieber
aðdáandi landsins.
fólk 30
AÐILDARVIÐRÆÐUR HAFNAR Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra dró enga dul á að
Íslendingar yrðu Evrópusambandinu erfiðir þegar kæmi að sjávarútvegsmálum við upphaf aðildarviðræðna í gær.
Hann ræddi við fjölmiðlamenn ásamt Janos Martonyi, utanríkisráðherra Ungverjalands, og Stefan Füle, stækk-
unarstjóra ESB (til hægri), í Brussel í gær. Sjá síðu 4 NORDICPHOTOS/AFP
FÓLK Trausti Salvar Kristjánsson,
knattspyrnuáhugamaður vinnur
nú að heimildarmynd um Guðjón
Þórðarson knattspyrnuþjálfara.
Trausti hefur
fylgst með
vinnu Guðjóns
við þjálfun BÍ/
Bolungarvíkur
síðan í vor.
Ferill Guð-
jóns er bæði
langur og
áhugaverður,
svo Trausti
ætti að hafa úr
nægu að moða: „Hann er nátt-
úrulega mjög umdeild persóna og
þjálfari. Þetta er því ekki bara
heimildarmynd um knattspyrnu-
þjálfarann Guðjón Þórðarson
heldur einnig um pabbann, eigin-
manninn og manneskjuna sjálfa,“
segir Trausti Salvar. - fgg / sjá síðu 30
Ný heimildarmynd í vinnslu:
Kortleggur feril
Gauja Þórðar
GUÐJÓN
ÞÓRÐARSON
HEILSA Ísland er meðal fjögurra þjóða Evrópu þar
sem dánartíðni af völdum fíkniefna er hvað hæst,
að því er fram kemur í árlegri skýrslu Fíkniefna- og
glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni í
heiminum sem gerð var opinber í lok síðustu viku.
Þar kemur fram að í löndunum fjórum verði yfir
hundrað fíkniefnatengd dauðsföll á hverja milljón
íbúa á ári. Meðaldánartíðni vegna fíkniefna í Evr-
ópu á hverja milljón íbúa er 46 til 48 á ári. Hinar
þrjár Evrópuþjóðirnar þar sem dánartíðni er yfir
hundrað á hverja milljón íbúa eru Úkraína, Írland
og Lúxemborg. Tölurnar byggja á gögnum frá árinu
2009 sem Fíkniefna- og glæpaskrifstofa Sameinuðu
þjóðanna hefur aflað hér á landi.
Þórarinn Tyrfingsson, framkvæmdastjóri með-
ferðarsviðs á Vogi, hafði ekki kynnt sér niðurstöður
skýrslunnar þegar haft var samband við hann en
sagði þó að þær kæmu sér á óvart. - mmf / sjá Allt
Árleg skýrsla Fíkniefna- og glæpaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna kynnnt:
Dánartíðni hér með því hæsta
HVASSAST V-TIL Í dag verður
úrkoma á A- og N-verðu landinu.
Víðast hvar 5-10 m/s en hvassara
allra vestast og austast. Hiti 5-16
stig, hlýjst S-til.
VEÐUR 4
5
14
10
6
7
Íslenskir hagsmunir
og ESB
Aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu er stórt skref í
sögu landsins að mati Jóns
Steindórs Valdimarssonar.
í dag 15
Kajakróður vinsæll
á Ísafirði
Guðni Páll Viktorsson rær
daglega kajak á Skutulsfirði.
allt 1
Biðin lengist enn
Fram er enn að bíða eftir
fyrsta sigrinum í Pepsi-deild
karla í sumar.
sport 26