Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 16

Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 16
16 28. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR Ég hef alla tíð verið efins um vega- framkvæmdir fjármagnaðar með veg- tollum nema í undantekningartilfellum. Athugasemd Í grein minni um Landakots-skólann í gær er vikið að við- brögðum skólanefndar við upp- lýsingum um kynferðisglæpi þar við skólann og hún átalin fyrir að harma einungis skað- ann sem skólinn hafi orðið fyrir en gleyma fórnarlömbunum. Ég hafði þá einungis séð og heyrt fréttaflutning af yfirlýsingunni, þar sem hún var stytt og mjög úr lagi færð. Nú þegar ég hef lesið hana óstytta sé ég að orð mín voru á misskilningi byggð. Í yfirlýsingu skólanefndar segir þvert á móti: „Við vonum að fórnarlömbin fái að upplifa eitt- hvert réttlæti af hendi þeirra sem teljast ábyrgir að lokinni rannsókn opinberra aðila.“ Guðmundur Andri Thorsson Mikilvægt er að halda vel til haga málefnalegum þráðum í umræðunni um samgöngumál; flækja þeim ekki saman því það ruglar umræðuna. FÍB sjálfu sér samkvæmt Einn þráðurinn snýr að skatt- lagningu umferðarinnar, hvort halda eigi áfram að skattleggja elds neytið, aðflutningsgjöld bif- reiða og svo framvegis til að fjár- magna samgöngukerfið eða skatt- leggja notkun vegakerfisins með veggjöldum. Gjaldtaka fyrir notkun mun án vafa verða ofan á þegar fram líða stundir. Þarna stendur tæknin hins vegar í vegi enn sem komið er. Þannig hafa Evrópusam- bandsmenn ítrekað frestað breyt- ingum á skattlagningarkerfinu í þessa veru vegna tæknilegra örðug- leika. Annar þráður um ræðunnar snýr að því hvort fyrrnefndir skattar af eldsneyti og aðflutnings- gjöldum eigi allir að renna til sam- göngumála eða einnig til annarra þátta. Félag íslenskra bifreiða eigenda hefur talað fyrir sjálfbæru sam- göngukerfi á þessum nótum og hefur viljað annað tveggja: Fá meira fé til samgöngumála eða lægri bensín gjöld. Þetta kallaði hins vegar á niðurskurð í velferðar- kerfinu því mikið af samgöngu- sköttunum rennur þangað inn. Þarna er ég ósammála FÍB en þetta er hins vegar fullkomlega málefna- leg og eðlileg umræða af hálfu sam- takanna. Síðan er þriðji þráðurinn og hann snýr að því hvort ráðast eigi í flýti-stór-framkvæmdir á tiltekn- um leiðum sem yrðu fjár magnaðar með sérstökum veg tollum á þeim vegum. Fyrir þessu hafa Samtök atvinnulífsins talað en yfirleitt í felulitum. Þannig boðar SA ásamt vildarvinum til fundar nú í vikunni þar sem fjallað er „um mikilvægi þess að ráðast nú þegar í arðbærar samgöngufjárfestingar til að auka öryggi, fjölga störfum og efla hag- vöxt“. Hér vantar það inn í að ég og þú eigum að bera enn meiri álögur í umferðinni – því verið er að tala um viðbótarfjármagn upp úr okkar vösum – fyrir framkvæmdir sem ég fullyrði að eru ekki besta leiðin til að ná fyrrgreindum markmiðum um öryggi og atvinnusköpun. Vegatollum mótmælt Tugþúsundir Íslendinga hafa séð í gegnum þetta framtak vegtolla- vina og hafna áformum þeirra. Í mínum huga voru þau sett út af borðinu eftir fundi sem ég átti með sveitarstjórnar mönnum og alþingis mönnum, auk þess sem ég fékk í hendur yfir 40 þúsund undir- skriftir sem mótmæltu vegtolla- leiðinni til að fjármagna flýtifram- kvæmdir. Ég var tilbúinn að hlusta á rök SA nú í vor að þeirra kröfu í tengslum við kjarasamninga og „reyna til þrautar“. En ný rök eða nýjar upplýsingar komu ekki fram af hálfu SA. Bara krafa um að ég breytti um kúrs, ella yrði ég látinn víkja úr embætti! Ég er talsmaður þess að verja þeim milljörðum sem við ráð- stöfum til vegamála til að gera það allt í senn að bæta samgöngur, auka öryggi og skapa atvinnu í stað þess að fara þær slóðir sem eingöngu þjóna þröngum sérhagsmunum. Ég hef alla tíð verið efins um vegaframkvæmdir fjármagn- aðar með vegtollum nema í undantekningar tilfellum. Þegar ég kom inn í ráðuneyti samgöngumála síðastliðið haust fékk ég hins vegar slík áform í fangið og ákvað að láta reyna á vilja sveitarstjórnar manna, alþingis manna og vegnotenda almennt. Ég held að allir þeir sem ég spurði álits á fjölmennum fund- um um þetta efni geti borið vitni um að þetta gerði ég af fullum heil- indum. Niðurstaðan var hins vegar skýr og afdráttarlaus. Trúboðar gærdagsins Þessum áformum var hafnað. Fundir SA með trúboðum gærdags- ins breyta þar engu um. Tölur sýna að umferð hefur minnkað um allt land sem ræðst af hækkuðu eldsneytisverði og lægri ráðstöfunartekjum en áður. Áform um vegtolla þessu til viðbótar, þar sem oftast er hvorki um stytt- ingu að ræða né aðra gjaldfrjálsa valkosti, þóknast almenningi alls ekki eins og við höfum ítrekað séð. Hér ber okkur skylda til að hlusta á rödd þjóðarinnar. Það hef ég gert og niður staðan er í samræmi við það. Vegtollavinir enn á ferð Samgöngur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra Úthlutun óskiptra liða fjárlaga-frumvarpsins, svo kallaðra safnliða, hefur verið gagnrýnd harkalega mörg undanfarin ár. Þessir liðir eru alls um 0,3% af útgjöldum ríkisins í ár. Fjárlaga- nefnd hefur tekið við hundruðum umsókna á hverju hausti, tekið við- töl og varið löngum tíma í að ákveða úthlutun fjármuna til einstaklinga, félaga og samtaka. Á sama tíma á nefndin að fara yfir alla aðra liði fjárlaga frumvarpsins. Gagnrýnis- raddir hafa komið úr öllum stjórnmála flokkum og Hreyf- ingunni og úr öllum kjör dæmum vegna þessa. Við síðustu fjárlaga- gerð lýstu margir þingmenn óánægju sinni með fyrirkomu- lagið og þótti fjárlaga nefnd brýnt að endurskoða vinnubrögðin sem tíðkast hafa. Ákveðið var að skoða vandlega út hlutun Alþingis og ráðuneyta á safn liðunum, samtals um 1.500 milljónir króna. Þar af úthlutaði Alþingi um 800 milljón- um fyrir árið 2011. Vinnuhópur innan fjárlaga nefndar setti saman tillögur um vinnulag sem nýtast á vegna úthlutunar fyrir árið 2012 út frá eftir farandi markmiðum: 1. Að úthlutun verði gegnsærri og til þess fallin að auka traust á því hvernig fjármunum ríkisins er skipt. 2. Að efla þarfagreiningu og eftir- lit. 3. Að bæta stjórnsýslu og yfirsýn yfir einstaka málaflokka. 4. Að sjá til þess að ákvörðunartaka um umsýslu málaflokka sé fag- leg og afgreiðsla mála samræmd. 5. Að fjárlaganefnd og fag nefndir geri tillögur um umfang ein- stakra fjárlagaliða en sjóðir, félagasamtök, menningarráð landshluta, vaxtarsamningar sveitarfélaga og ráðuneyti sjái um það sértæka, þ.e. dreifingu til einstakra verkefna. Það að alþingismenn skuli velja og hafna umsóknum um styrki til einstaklinga, félaga og samtaka er vel til þess fallið að vekja tor- tryggni og hefur orðrómur um að þingmenn hygli sínu fólki verið hávær. Með þessu fyrirkomulagi er lögð gildra fyrir alþingismenn sem ætti ekki að vera til staðar. Auka þarf traust á því hvernig fjármunum ríkisins er úthlutað og hvernig þeim er varið. Til staðar eru ágætir verkferlar og farvegir fyrir safnliðina hvað þetta varðar, t.d. lögbundnir sjóðir, menningar- samningar sveitar félaga og vaxtar- samningar sem hafa einnig úthlut- að ríkisstyrkjum og ætlunin er að efla þá farvegi. Stjórnsýslulög gilda um þá en ekki um Alþingi og því felst í breytingunni aukin neyt- endavernd og möguleikar styrk- þega til að krefjast jafnræðis og röksemda fyrir úthlutun styrkj- anna. Einnig skapast góð tækifæri landshlutasamtaka til að tengja menningarmál við almenna stefnu- mótun svæðisins þar sem gert er ráð fyrir að auknu fé verði veitt til menningarsamninga við sveitar- félög og hlutverk þeirra útvíkkað. Alþingi hafi hins vegar það hlut- verk að ákveða fjármuni til hvers málaflokks fyrir sig og hafi virkt eftirlit með því að fjármununum sé varið eins og ætlast er til. Heildarútgjöld ríkisins eru um 500 milljarðar króna og með því að gera þær breytingar á vinnu- lagi og verkaskiptingu sem til standa fær fjárlaganefnd betri tíma til að fara vandlega yfir þær víðtæku heimildir sem færðar eru framkvæmdar valdinu með fjár- lögum ár hvert. Þar vaka þingmenn yfir hags munum kjördæma sinna líkt og landsins í heild. Úthlutun ríkisstyrkja og hlutverk fjárlaganefndar Stjórnmál Oddný G. Harðardóttir formaður fjárlaganefndar | | AFMÆLISTILB OÐ TAKMARKAÐ MAGN Ferðabox ÞÚ SPARAR 10.000 14.000 14.000 10.000 12.000 Nú eru nærri þrjú ár frá hruni – meira en tvö og hálft ár frá því að ríkisstjórn VG og Samfylkingar tók við stjórnartaumum og sagðist ætla að breyta öllu til hins betra. Hver er staðan í raun? Viðskiptablaðið hefur verið að birta fréttir af Húsasmiðjunni sem ríkisbankinn – Landsbankinn – tók yfir og seldi síðan lífeyris sjóðunum. Maður skyldi ætla að í þessu tilfelli „færi allt á besta veg“ hins nýja Íslands. Opinberir og hálf opinberir aðilar sjá um „skuldahreinsun“ og endurreisn. En hver er raunin? Skuldir lækkaðar úr 16,8 millj- örðum 2008 í 3,9 milljarða við síð- ustu áramót. Starfslokagreiðslur til fyrrverandi stjórnenda eru eins og úr bóluhagkerfi 2007 – 55 millj- ónir fyrir það eitt að hætta störf- um! Laun núverandi stjórnenda og stjórna nema tugum milljóna króna og hækka um 30% milli ára! Samt tapar fyrirtækið peningum á rekstr- inum og horfur eru slæmar! Hvað skýrir tugmilljóna króna starfsloka- samninga og stórhækkuð laun? Hvað er breytt – ekkert? Þetta gengur auð- vitað ekki. Hvernig eiga núverandi sam- keppnisaðilar sem og ný fyrirtæki að geta keppt við slíkan aðila? Aðila sem hefur fengið afskriftir til hægri og vinstri. Aðila sem býr við pils- faldakapítalisma dauðans. Fyrst hjá ríkisbankanum og síðan lífeyris- sjóðunum. Var þetta það sem VG og Samfylking lofuðu vorið 2009? Er það vegna þessa og sambærilegra dæma sem þau sitja á ráðherra- stólunum og vilja ekki sleppa? Hvenær kemur sá dagur að þeir sem stjórna bera ábyrgð? Hve- nær kemur sá dagur að viðskipta- siðferðið verður eins hjá siðuðum vestrænum þjóðum, t.d. Norður- löndunum? Hvenær munu heimilin og venjuleg fyrirtæki fá sambæri- lega eða kannski væri betra að segja eðlilega fyrirgreiðslu hjá bönkum og yfirvöldum? Það er ljóst að ríkis- væðing fyrirtækja er ekki leiðin. Það er hins vegar öllum jafnljóst að skýrar afmarkaðar leikreglur þar sem allir sitja við sama borð ásamt öflugum eftirlitsaðilum er rétta leið- in fram á við. Pólitísk stýring við- skiptalífs á að heyra fortíðinni til. Staðreyndirnar tala sínu máli, því miður er Húsasmiðjan ekki eina dæmið. Það er hins vegar staðreynd að langflestir Íslendingar telja þetta ekki vera hina réttu leið að nýju og réttlátara Íslandi. Þær hug- myndir snúast um að allir sitji við sama borð. Ákvarðanir stjórnvalda og opinberra sem hálfopinberra aðila séu gegnsæar og á grundvelli almenns jafnræðis fólks og fyrir- tækja. Almenn niðurfærsla skulda – svo- kölluð 20% leið – sem Framsóknar- flokkurinn kynnti í febrúar 2009 var slík jafnræðis- og gegnsæisleið. Hefðu ríkisstjórnarflokkarnir borið gæfu til að hlusta – þá væri staðan önnur og betri hjá samfélaginu. Þá biðu ekki 2.000 fjölskyldur eftir úrlausnum umboðsmanns skuld- ara né heldur þúsundir fyrirtækja hjá bönkunum í svokallaðri „beinu braut“. Almenn niðurfærsla er engin töfralausn – eftir sem áður þyrftu ýmsir á sértækum lausnum að halda og einnig yrðu sumir gjaldþrota. En aðalatriðið er að allir sætu við sama borð þar sem markmiðið um réttlæti og sanngirni réði ríkjum. Það var og er hugmyndin um nýtt og réttlátara Ísland. Er þetta nýja Ísland? Fjármál Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framsóknarflokks

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.