Fréttablaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 10
28. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR10 ÞJÓNUSTUFULLTRÚAR ÓSKAST TIL STARFA Í ÞJÓNUSTUVER MINNA BULL. MEIRA TAL. Tal leitar að þjónustufulltrúum sem vilja bætast í samheldinn hóp Talsmanna. Starf þjónustufulltrúa gengur m.a. út á að þjónusta viðskiptavini í samræmi við þjónustu- og gæðastefnu Tals, símsvörun, sölu og tæknilega aðstoð. Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2011. Vinsamlegast sendið umsókn um starf þjónustufulltrúa á atvinna@tal.is, merkt „þjónustufulltrúi“. Umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf strax. Talsmenn … … eru þjónustulundaðir og jákvæðir … hafa áhuga á tækni og nýjungum … sýna frumkvæði, metnað og hugsa í lausnum … eru snyrtilegir og stundvísir Menntun og hæfniskröfur – Hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg – Almenn tölvufærni er æskileg – Stúdentspróf eða sambærileg menntun er kostur – Reynsla af störfum í fjarskiptum er kostur STJÓRNSÝSLA Ása Ólafsdóttir hæstaréttarlögmaður kom áhyggj- um lögmanna af stöðu íslenska réttarríkisins á framfæri við stækkunar-skrifstofu Evrópusam- bandsins (ESB). Ása sat fund ytra fyrir hönd stjórnar Lögmannafélags Íslands. Í nýjasta tölublaði Lögmanna- blaðsins reifar hún þær athugasemd- ir sem hún kom á framfæri. Breyt- ing á lögum um meðferð einkamála hafi skert mjög möguleika einstak- linga til gjafsóknar. Þá gæti lækkun tímagjalds verjenda í sakamálum orðið til þess að efnameiri einstak- lingar fengju betri lögfræðiaðstoð en þeir sem minna hafa á milli hand- anna. „Öll þessi atriði eru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu og okkur þótti rétt að benda ESB á það.“ Þá segir Ása að staða fangelsis- mála sé óviðunandi, hér séu ekki sérstök gæsluvarðhaldsfangelsi og dæmi séu um einstaklinga sem vist- aðir hafi verið í venjulegum fanga- klefum allt að tólf daga í gæsluvarð- haldi, þó að slíkt sé ekki heimilt að lögum. Það geti grafið undan réttar- ríkinu. Að auki gagnrýndi Ása hugmynd- ir um hlutverk lögmanna. Færst hefði í aukana að heimiluð væri leit á skrifstofum þeirra í tengslum við rannsókn sakamála. Það gæti graf- ið undan trúnaði lögmanna og skjól- stæðinga. Þá nefndi Ása einnig áhyggjur af álagi á dómara og dóm- stóla. Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra segir gott að fá gagnrýni og það veiti tækifæri til að benda á þá vinnu sem verið sé að vinna innan ráðuneytisins. Gjafsóknarmál séu til endurskoð- unar og ekki megi skerða möguleika fólks á að leita réttar síns í dóms- kerfinu. „Ég vil þar horfa til tekju- marka fremur en rýmri heimilda fyrir þá sem hugsanlega hafa meira á milli handanna.“ Hann segir að verið sé að grípa til ýmissa ráða til að efla réttarkerfið og réttarríkið almennt. „Þannig er nú af meiri alvöru en nokkru sinni fyrr verið að skoða þann kost að setja hér upp þrjú dómstig,“ segir Ögmundur og vísar til álits nefndar um málið, sem aðgengilegt er á heimasíðu ráðu- neytisins. Ráðherra segir smíði nýs fangels- is í undirbúningi og sett hafi verið fram lagafrumvarp um breytta fullnustudóma með meiri áherslu á samfélagsþjónustu. Því miður verði að sníða sér stakk eftir vexti varð- andi skert fjárráð ríkissjóðs. kolbeinn@frettabladid.is Efnameiri fá betri lögfræði- aðstoð en aðrir landsmenn Lögmannafélag Íslands kom áhyggjum sínum af stöðu réttarríkisins á framfæri við ESB. Gagnrýnir skerta möguleika á gjafsókn og stöðu fangelsismála. Skoðað er af fullri alvöru að koma á þremur dómstigum. HÆSTIRÉTTUR Lögmannafélagið hefur meðal annars áhyggjur af því að fjölgun dóm- ara Hæstaréttar geti valdið því að dæmt sé á mismunandi hátt um svipuð sakarefni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL „Þetta tengist ber- sýnilega kynlífsvæðingu barna,“ segir Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, talskona Femín- istafélags Íslands, um nýtt nám- skeið á vegum Útlit.is, Prinsess- uskólann. Hún segir námskeiðið ala á undirgefni ungra stúlkna. Skólinn er með námskeið fyrir stúlkur niður í átta ára aldur þar sem meðal annars er kennd snyrti- mennska, fótsnyrting, borðsiðir og hárgreiðsla. Eldri hópurinn, stúlk- ur á aldrinum 13 til 15 ára, læra auk þess um kvöldförðun og hvern- ig beri að klæðast rétt. Á heimasíðu Útlits.is segir að námskeiðið sé ætlað þeim stúlkum „sem hafa áhuga á heilbrigðu líf- erni, fágaðri framkomu og snyrti- mennsku.“ Dr. Gyða Margrét Pétursdótt- ir, aðjúnkt í kynjafræði í Háskóla Íslands, segir námskeiðið vera að kenna stúlkum ákveðna tegund af undirgefni. „Skilaboðin eru: Haltu kjafti og vertu sæt,“ segir Gyða Margrét. „Þarna er verið að kenna börnum að með réttu útliti sé hægt að öðl- ast samþykki samfélagsins.“ Gyða Margrét segir að nóg sé nú þegar af slíkum skilaboðum í samfélaginu og meðvitaðir foreldr- ar eigi fullt í fangi með að draga úr áhrifum kynjaðra staðalímynda. „Þetta er ekki það sem stúlkur þurfa að kunna í lífinu. Þetta dreg- ur frekar úr þeim sjálfstraust- ið, þrátt fyrir skilaboðin um að þetta stuðli að heilbrigðu líferni,“ segir Gyða Margrét. „Einnig er áhugavert hvað þetta er skelfilega grímulaust.“ Ekki náðist í skólastjóra Prins- essuskólans við vinnslu fréttarinn- ar. - sv Talskona femínista segir Prinsessuskólann tengjast kynlífsvæðingu barna og ala á undirgefni ungra stúlkna: Hörð gagnrýni á prinsessunámskeið fyrir börn PRINSESSUSKÓLINN Kenna á stelpum niður í átta ára aldur snyrtimennsku, borðsiði og samkvæmisdansa. „Skilaboðin eru: Haltu kjafti og vertu sæt.“ DR. GYÐA MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR , AÐJÚNKT Í KYNJAFRÆÐI VIÐ HÍ KONUNGUR Á HIMNI Leysigeislar voru notaðir til að bregða mynd af Abdullah, konungi Sádi-Arabíu, upp á kvöldhimininn þegar sérsveitarmenn útskrifuðust úr námi. NORDICPHOTOS/AFP TÓKÝÓ, AP Naoto Kan, forsætis- ráðherra Japan, tilkynnti í gær að fjölga ætti ráðherraembætt- um í ríkisstjórn landsins um tvö. Nýju ráðherrarnir eiga að hafa yfirumsjón með uppbyggingunni í landinu eftir jarðskjálftann sem dundi yfir í mars. Ríkisstjórn Kans hefur sætt gagnrýni fyrir viðbrögð sín við jarðskjálftanum en fyrir utan skjálftann sjálfan skall risaflóð- bylgja á austurhluta landsins, auk þess sem lítið kjarnorkuslys varð í kjarnorkuveri í landinu. Vinsældir Kans eru litlar um þessar mundir en honum þykir hafa mistekist að leiða þjóð sína í gegnum erfiðleikana. Kan sagð- ist í gær vera tilbúinn að stíga til hliðar, en þó aðeins þegar upp- byggingin væri komin almenni- lega af stað. Alls létust 23 þúsund manns í hörmungunum. - mþl Ríkisstjórn Japan gagnrýnd: Skipa ráðherra uppbyggingar NAOTO KAN Hart er sótt að forsætis- ráðherra Japan þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Öll þessi atriði eru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu og okkur þótti rétt að benda ESB á það. ÁSA ÓLAFSDÓTTIR HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR MÓTMÆLI Í AÞENU Grikkir eru afar ósáttir við aðhaldsaðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GRIKKLAND, AP Grísk stjórnvöld bjuggu sig í gær undir tveggja sólarhringa allsherjarverkfall, sem mun lama þjóðlífið í dag og á morgun. Um fimm þúsund lögreglu- þjónar verða sendir út á götur miðborgar Aþenu í dag, þar sem verkalýðsfélög efna til mótmæla- göngu að þinghúsinu. Mótmælin beinast gegn aðhaldsaðgerðum, sem stjórn Giorgíos Papandreús reynir nú að fá þingið til að samþykkja svo tryggja megi að framhald verði á fjárhagslegum stuðn- ingi Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. - gb Allsherjarverkfall í Grikklandi: Lögreglan býr sig undir átök

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.