Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 12
28. júní 2011 ÞRIÐJUDAGUR12
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar af Nicotinell lyfjatyggigúmmíi mega aldrei
vera stærri en 25 stykki á dag. Þeir sem hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, að meðtöldu Prinzmetal afbrigði hjartaangar, alvarlega hjartsláttaróreglu eða
heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Sjúklingar með háþrýsting sem ekki hefur náðst stjórn á, stöðuga hjartaöng, sjúkdóm í heilaæðum, teppusjúkdóm í útlægum slagæðum, hjartabilun, sykursýki, ofstarfsemi skjaldkirtils eða
krómfíklaæxli, auk alvarlega skertrar nýrna- og/eða lifrarstarfsem skulu gæta varúðar við notkun á Nicotinell. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
-49%
-45%
-52%
-21%
-23%
-34%
* Meðalverð á kartoni í verslunum 10-11, Shell, N1, Olís, Hagkaup, Krónan, Samkaup og Nóatún. Könnun gerð 26. maí 2011
**Verðkönnun gerð í 14 apótekum og apótekskeðjum 5., 16.-19. og 26. maí 2011
***Í flestum tilfellum nægir að nota á bilinu 8-12 tyggjó á dag. Mest skal nota 25 stk. af 2 mg og 15 stk. af 4 mg
Verðsamanburður á Nicotinell Fruit og þremur vinsælustu tegundum sígaretta
Það er ódýrara að nota
Nicotinell Fruit heldur
en að reykja!52%SPARNAÐUR!
34%
SPARNA
ÐUR!
NEYTENDUR Neytendasamtökunum
hefur borist fjöldi kvartana undan-
farna daga vegna ófullnægjandi
verðmerkinga á kjöti í matvöru-
verslunum.
Samkeppniseftirlitið bannaði for-
verðmerkingar á kjöti fyrr á þessu
ári og hafa kvartanirnar borist í
kjölfarið á því. Verðskannar hafa
verið settir upp í verslununum,
sem sýna einingaverð hverrar vöru
fyrir sig, en neytendur hafa einn-
ig kvartað yfir þeim og þykja þeir
óþægilegir.
Neytendur eiga rétt á að sjá bæði
kílóverð og einingaverð á öllum
vörum, þar á meðal kjötvörum.
Neytendasamtökin benda á að ekk-
ert stoppi verslanir í að verðmerkja
vörurnar með verðmiðum. Ef við-
skiptavinir séu ósáttir ættu versl-
anir að bæta úr þessu sem fyrst.
Samtökin telja mjög alvarlegt
hversu illa gangi að koma verð-
merkingum í gott horf. Þess er
krafist að verslanir fari að settum
reglum varðandi verðupplýsing-
ar til neytenda og hvetja samtök-
in Neytendastofu og Samkeppnis-
eftirlitið til að fylgjast vel með því
hvernig nýjar reglur reynist og
grípa til aðgerða ef þörf krefji. - sv
Fjöldi kvartana til Neytendastofu undanfarna daga vegna merkinga á kjöti:
Óánægja með verðmerkingar
VERÐSKANNI Verið er að koma upp í
matvörubúðum verðskönnum sem sýna
einingaverð á vörum sem ekki eru for-
verðmerktar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Um 200 lítrum af
dísilolíu var stolið af kranabifreið
og skotbómulyftara við Kuldabola
í Þorlákshöfn í síðustu viku.
Sömu nótt var brotist inn í
kaffiskúr á gámasvæðinu við
höfnina. Þar var mikið rótað til,
kaffi og pappír dreift um skúrinn
og fartölvu stolið. Jafnframt var
gerð tilraun til að fara inn í gáma
á svæðinu. Þeir sem þarna voru
að verki ollu miklum skemmdum.
Lögregla biður þá sem hugsanlega
búa yfir vitneskju um þessi mál að
hafa samband í síma 480 1010.
Innbrot og þjófnaðir:
Um 200 lítrum
af olíu stolið
SVÍÞJÓÐ Ríflega tuttugu innbrot
voru framin með sérstökum
hætti í Stokkhólmi síðustu mán-
uði. Innbrotsþjófarnir höfðu stol-
ið húslyklum og komist þannig
inn í íbúðir fólks.
Lögreglan í Stokkhólmi rann-
sakar nú þjófagengi sem fara í
auknum mæli í barnaskóla og
stela þar húslyklum og farsím-
um. Með símunum komast þeir
að heimilisföngum og fara síðan
ránshendi um heimilin. Tilkynnt
hefur verið um fjörutíu tilvik þar
sem lyklum hefur verið rænt,
og hafa 22 þeirra heimila verið
rænd.
Lögreglan hvetur fólk því til
að skipta um lása um leið og
húslyklar týnast. Hægt sé að
nálgast lykla og persónuupplýs-
ingar með þessum hætti í öllum
almenningsrýmum. - þeb
Bífrænir þjófar í Stokkhólmi:
Stela húslyklum
og ræna heimili
HAAG, AP Dómarar við Alþjóða-
dómstólinn í Haag gáfu í gær
út handtökuskipun á hendur
Múammar Gaddafí, leiðtoga
Líbíu. Honum er gefið að sök að
hafa fyrirskipað morð á almenn-
um borgurum.
Alþjóðadómstóllinn segir Gad-
dafí, son hans Seif al-Islam og
yfirmann líbísku leyniþjónust-
unnar, Abdullah al-Sanoussi,
hafa staðið fyrir morðum, árás-
um og ólögmætum handtökum á
hundruðum almennra borgara á
fyrstu dögum uppreisnarinnar
gegn stjórn Gaddafís. Þá eru þeir
einnig sagðir hafa gert tilraunir
til að dylja meinta glæpi sína.
Ráðamenn í Líbíu voru ekki
lengi að hafna lögsögu Alþjóða-
dómstólsins. Þeir ásökuðu hann
um að ráðast með ósanngjörnum
hætti að Afríkubúum en skeyta
engu um þá glæpi sem NATO
fremji daglega í Afganistan, Írak
og nú Líbíu.
Anders Fogh Rasmussen, aðal-
ritari NATO, sagði ákvörðun
dómstólsins endurspegla ein-
angrun líbískra stjórnvalda.
„Verkefni NATO í Líbíu er að
vernda almenning í landinu
fyrir hersveitum Gaddafís,“
sagði Rasmussen og bætti við að
Gaddafí og hersveitir hans yrðu
að átta sig á því að tími þeirra
væri óðfluga að renna út.
Orrustuþotur á vegum NATO
hafa síðustu 100 daga gert loft-
árásir á hernaðarskotmörk í
Líbíu. Aðgerðunum hefur hins
vegar ekki tekist að veikja stöðu
Gaddafís sem leiðtoga landsins
að ráði og hafa þær sætt sívax-
andi gagnrýni á alþjóðlegum
vettvangi á síðustu vikum. - mþl
Alþjóðadómstólinn í Haag telur leiðtoga Líbíu hafa fyrirskipað morð á óbreyttum borgurum í borgarastyrjöld:
Handtökuskipun gefin út á Gaddafí
DÓMARAR Í HAAG Gaddafí er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð, árásir og
ólögmætar handtökur á almennum borgurum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STOKKIÐ YFIR BÖRN Í bænum Castrillo
de Murcia á Spáni er árlega haldin
svonefnd „barnastökkshátíð“ þar sem
maður, klæddur eins og kölski, stekkur
yfir nokkur ungbörn sem lögð hafa
verið á dýnu. NORDICPHOTOS/AFP