Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 13

Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. júní 2011 13 FRÉTTASKÝRING Hvernig standa tillögur mannrétt- indaráðs um samskipti kirkju og skóla eftir umsagnaferli? Breytingartillögur mannréttinda- ráðs Reykjavíkurborgar varðandi samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög hafa nú fengið umfjöllun hjá velferðarráði, menntaráði og íþrótta- og tómstundaráði borgar- innar. Ráðin fengu tillögurnar á sín borð í lok síðasta árs en Mannrétt- indaskrifstofa Reykjavíkur hefur umsjón með endanlegum tillögum, sem bíða afgreiðslu borgarráðs. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á tillögum mannrétt- indaráðs frá því að þær voru fyrst lagðar fram. Eftir umsagnarferli ráðanna þriggja hafa enn fleiri aðlaganir verið gerðar. Anna Kristinsdóttir, mannrétt- indastjóri Reykjavíkurborgar, telur ólíklegt að borgarráð muni gera enn frekari breytingar á til- lögunum. „Mér finnst það nokkuð langsótt, þar sem málið hefur nú lokið öllu sínu umsagnarferli,“ segir Anna. „Svo verður það okkar hlutverk hjá Mannréttindaskrifstofu að sjá til þess að reglunum verði fylgt eftir, verði þær samþykktar.“ Anna segir það afar mikilvægt fyrir stjórnendur leik- og grunn- skóla að setja reglur sem þessar. Mannréttindaskrifstofa fái mikið af fyrirspurnum og athugasemdum um þessi mál, bæði frá starfsfólki skólanna og foreldrum. „Þetta er á báða bóga. Það er ekki eintóm sæla og ánægja með það að verið sé að koma með trú- mál inn í skólana. Það er líka erf- itt fyrir þá stjórnendur sem hafa ákveðið að hleypa prestum ekki inn í starfið og það er meðal ann- ars vegna þess sem það er mik- ilvægt að setja skýr- ar reglur.“ Í mann- réttinda- stefnu Reykja- víkur, sem samþykkt var árið 2006, er meðal annars kveðið á um að íbúum verði ekki mismunað eftir lífs- og trúarskoðunum. Mannréttindaráð segir í tillögu sinni að lagt sé til að reglurnar verði samþykkt- ar í ljósi niður- stöðu skýrslu frá árinu 2007 þar sem fram kom að móta þyrfti skýr- ar starfsregl- ur um samskipti trúar- og lífsskoð- unarhópa og skóla Reykjavíkurborg- ar. sunna@frettabladid.is Tillögur liggja fyrir borgarráði Umsagnarferli um tillögur mannréttindaráðs Reykjavíkur um samskipti trúfélaga og skóla er lokið. Endanlegar tillögur bíða nú afgreiðslu borgarráðs. Ólíklegt er talið að borgarráð geri frekari breytingar. Mannréttindaskrifstofa mun framfylgja nýjum reglum. LEIKSKÓLI Í tillögum mannréttindaráðs segir að fulltrúar trúarhópa megi ekki heimsækja skóla á skólatíma komi þeir í trúarlegum tilgangi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Verðkönnunin var gerð í eftirtöldum apótekum daganna 5., 16.-19. og 26. maí: Lyfja, Apótekið, Lyf og heilsa, Apótekarinn, Skipholtsapótek, Lyfjaval, Lyfjaver, Garðs Apótek, Rima Apótek, Urðarapótek, Apótek Hafnarfjarðar, Reykjavíkur Apótek, Apótek Vesturlands og Akureyrar Apótek. Ath. að röðin á apótekunum er ekki sú sama og kemur fyrir í töflunum fyrir ofan. Samanlagt ná þessi apótek yfir 90% af markaðnum. Nicotinell Fruit - ódýrara! Verðkönnun á Nicotinell Fruit og Nicorette Fruitmint í maí 2011 Nicotinell Nicotinell Í þessari könnun voru verð pr. pakka og tyggjó borin saman og mismunurinn er sýndur sem prósentutala. Nicotinell Fruit var ódýrara í öllum 14 apótekunum þar sem verðkönnunin var gerð. Það er alveg sama hvernig verðin voru borin saman, pr. pakka eða pr. tyggjó, Nicotinell Fruit var alltaf ódýrara. 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Mörgum þóttu tillögur meiri-hluta mannréttindaráðs um sam-starf kirkju og skóla bæði óljósar og róttækar. Biskup Íslands gagn-rýndi fyrstu tillögurnar harðlega í predikun sinni í Hallgrímskirkju í október og sagði þær skefjalausa fordóma og sýna andúð á kristni og þjóðkirkjunni. Hann sagði að gengi tillagan eftir myndi hún stuðla að fáfræði, fordómum og andlegri örbirgð. Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs, undraðist við-brögð biskups og svaraði því að meiningin með tillögunum hefði ekki verið að ráðast á kirkjuna heldur væri í meginatriðum verið að setja hömlur á trúboð í leik- og grunnskólum. Þar ætti það ekki heima. Í upprunalegum tillögum ráðs-ins kemur meðal annars fram að heimsóknir barna í kirkjur á skóla-tíma skuli banna, sömuleiðis heim-sóknir presta og annarra fulltrúa trúar- og lífsskoðanahópa í skól-ana. Sálmasöngur og listsköpun í trúarlegum tilgangi skuli sett af. Háværar raddir brutust fram í samfélaginu í kjölfarið og þótti fólki mörgum spurningum ósvar-að, þá helst varðandi undirbúning vegna kristi séð, þegar texti upphaflegu tillög-unnar og þeirrar endurskoðuðu er borinn saman, en að meirihluti mannréttindaráðs hafi mildað til-lögurnar talsvert.Samkvæmt nýrri námskrá fyrir fræðslu þjóðkirkjunnar, sem lögð verður fram fyrir kirkjuþing í þessum mánuði, er fjallað um leikskóla og sagt að markmið upp-eldisstarfs í leikskólum landsins skuli meðal annars taka mót sitt af kristinni arfleið. „Æskilegt er því að auka sam-starf kirkjunnar og leikskólans,“ segir í námskránni. Í kafla um grunnskóla segir einnig að hin kristna arfleifð skuli hafa mótandi áhrif á starf í skólum og nauðsyn-legt sé að auka samstarf kirkju og skóla. „ … enda nær skólinn til flestra barna sem skírð eru,“ segir í námskránni.Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í mannréttindaráði eru ósammála tillögum meirihluta Besta flokks-ins, Samfylkingar og Vinstri grænna. Sjálfstæðisflokkur bók-aði á fundi ráðsins á miðvikudag að andstöðu við framkomna til-lögu og að engin ástæða væri til þess að senda hana til umsagn-ar til annarra ráða. Samráð ogsamstarf við f l Meirihlutinn mildar tillögur Mannréttindaráð hefur mildað tillögur sínar um samskipti kirkju og skóla og hörfað frá algeru banni við kirkjuferðum og heimsóknum presta í skóla í þágu áfallahjálpar. Kirkjan vill efla samstarfið enn frekar. FRÉTTASKÝRING Hvernig ætlar Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar að koma til móts við gagnrýnisraddir? Tillögur mannréttindaráðs – hvað er breytt? Ekki heimilt skv. gömlu tillögunni Endurbætt tillaga Heimsóknir presta Heimsóknir í kirkjur Áfallahjálp presta Sálmasöngur og listsköpun í trúarlegum tilgangi Heimilar í fræðandi tilgangi og að frumkvæði skólans.Ekki heimilar í leikskólum. Á grunnskólastigi skulu heimsóknir eiga sér stað undir handleiðslu kennara og sem liður í fræðslu. Heimil við sérstakar kringumstæður, að frumkvæði skólans og samráð skal haft við foreldra. Helgistund- ir vegna áfalla skulu fara fram utan skólatíma. Sígildir söngvar d GRAFARVOGSKIRKJA Formaður mannréttindaráðs segir engar efnislegar breytingar hafa verið gerðar á tillögum um samskipti kirkju og skóla en orðalag hafi verið skerpt. r - GLE eldur um þágu S/AFP 1. Heimsóknir fulltrúa trúarhópa í trúarlegum tilgangi á skólatíma eru óheimilar. Þá er dreifing boðandi efnis innan skóla einnig óheimil. Skóla- stjórnendur grunnskóla geta boðið fulltrúum að heimsækja kennslu- stundir í trúarbragðafræði eða lífsleikni sem lið í fræðslu samkvæmt námsefni, og skal heimsóknin fara fram undir handleiðslu kennara og vera innan ramma námsefnisins. 2. Heimsóknir í kirkjur og aðrar trúarstofnanir á skólatíma grunnskóla skulu eiga sér stað undir handleiðslu kennara sem liður í fræðslu. Þar sem ekki er sérstaklega getið um heimsóknir leikskólabarna í tillögunum sem lið í fræðslu í námskrá leikskóla er talið eðlilegt að miða fjölda heimsókna við námskrá grunnskóla. Þá verði þess gætt að nemendur fylgist einungis með en séu ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum. 3. Óbreytt frá síðustu breytingum. 4. Óbreytt frá síðustu breytingum. Síðustu tillögur eftir umsagnir ráða 1. Heimsóknir presta og annarra fulltrúa trúarsamtaka heimilar í fræðandi tilgangi og að frumkvæði skólans. 2. Heimsóknir í kirkju óheimilar í leikskólum. Á grunnskólastigi skulu heim- sóknir eiga sér stað undir handleiðslu kennara og sem liður í fræðslu. 3. Áfallahjálp presta verður heimil við sérstakar kringumstæður, að frum- kvæði skólans og samráð skal haft við foreldra. Helgistundir vegna áfalla skulu fara fram utan skólatíma. 4. Sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem teljast hluti af gamal- grónum hátíðum og frídögum þjóðarinnar halda sínum sessi í árstíðar- bundnu starfi. Aðrar tillögur 1. Heimsóknir presta og annarra fulltrúa trúarhópa í leik- og grunnskóla eru óheimilar. 2. Heimsóknir nemenda í kirkjur og aðrar trúarstofnanir á skólatíma eru óheimilar. 3. Áfallahjálp frá prestum eða öðrum fulltrúum kirkjunnar er óheimil. 4. Sálmasöngur og listsköpun í trúarlegum tilgangi er óheimil. Fyrstu tillögur Tillögur tekið talsverðum breytingum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.