Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 17

Fréttablaðið - 28.06.2011, Page 17
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Guðni Páll Viktorsson heillaðist af kajakróðri fyrir rúmu ári og hefur róið nánast daglega síðan. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA E in besta aðstaða til kajakróðurs á landinu er hér á Ísafirði,“ segir Guðni Páll Viktorsson þar sem hann rennir sér yfir spegilsléttan Pollinn innst í Skutulsfirði. „Hér innst í firðinum er mikil veð- ursæld og mikið logn á sumrin, sem gerir það að verkum að við komumst alltaf á sjó þrátt fyrir snælduvitlaust veður úti á miðum,“ segir hann. Guðni Páll kynntist íþróttinni fyrir aðeins rúmu ári en hefur náð góðum tökum á henni þrátt fyrir það. „Kajakíþróttin er mjög vinsæl hér á Ísafirði og ræðararnir mjög áberandi á Pollinum. Ég heill- aðist af þessu, ákvað að kaupa mér kajak og fór á námskeið hjá Halldóri Sveinbjörnssyni og hef róið nánast daglega síðan,“ segir Guðni Páll glaðlega. En hvað er svona heillandi? „Það er frelsið, og svo kynnist maður náttúrunni á annan hátt. Ég er sjómaður á veturna og þekki því sjóinn en á kajak fær maður allt aðra sýn á hafið og ber meiri virðingu fyrir náttúruöflunum,“ útskýrir hann. Guðni Páll miðlar nú þekk- ingu sinni áfram. „Ég kenni sumarnámskeið fyrir börnin á Ísafirði og kenni þeim bæði á kajak og litla seglbáta. Hér þykir börnum sjálfsagt að leika við og í sjónum og því er nauðsynlegt að gera þau meðvituð um hvað getur gerst,“ segir Guðni Páll og telur að börnin beri meiri virðingu fyrir sjónum eftir námskeiðið og þyki sjálfsagt að klæðast björgunarvestum eftir það. solveig@frettabladid.is Hafið fær aðra vídd Náttúrulaugar eru víða um land og vinsælt að baða sig í þeim. Þessar laugar eru yfirleitt í umsjón land- eða skálavarða en sjaldnast vaktaðar sem slíkar. Börn ættu því aldrei að vera í þessum laugum nema undir stöðugri umsjón fullorðinna. Sölustaðir: 10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA Bonito ehf. Friendtex Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is Opnunartími: mánud. - föstud. kl. 11:00 - 18:00 lokað á laugardögum ÚTSALA MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUM FATNAÐI KÍKTU ÞAÐ BORGAR SIG AIR-O-SWISS Ultrasonic rakatæki • Innbyggður rakamælir • Heitur og kaldur úði • Vörn gegn bakteríumyndun • Draga úr þurrki í augum og öndunarfærum Einstök hönnun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.