Fréttablaðið - 28.06.2011, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 28. júní 2011 15
Ísland ákvað að sækja um aðild að Evrópusambandinu með
ákvörðun Alþingis 16. júlí 2009.
Skýr meirihluti þjóðarinnar hefur
verið að baki umsókninni og að
leiða aðildarsamninga til lykta
svo leggja megi hann í dóm þjóð-
arinnar.
Vatnaskil
Í dag eru tímamót í aðildarferlinu
og eiginlegar samningaviðræður
að hefjast að lokinni vel heppnaðri
rýnivinnu þar sem lög og reglur
Íslands og ESB hafa verið borin
saman.
Að mínu mati leikur enginn
vafi á því að aðild Íslands getur
orðið til góðs. Þess þarf að gæta
að aðildin tryggi framtíðarhags-
muni okkar sem fullvalda og sjálf-
stæðrar þjóðar. Lífskjör og starfs-
skilyrði atvinnuveganna í víðu
samhengi vega þar þyngst. Nefna
má þætti á borð við efnahagsleg-
an stöðugleika sem skapar festu í
rekstri ríkis, sveitarfélaga, fyrir-
tækja og heimila, samkeppnis-
hæfa vexti, afnám verðtrygging-
ar, lægra verð landbúnaðarafurða
og aðgang að mörkuðum en ekki
síst það að geta tekið þátt í mótun
og setningu þeirra reglna er varða
eigin örlög.
Stöndum saman
Til þess að ná þessum mark-
miðum þarf að halda á íslensk-
um hagsmunum af festu og sam-
heldni. Veita þarf ríkisstjórn og
samninganefndinni í senn virkan
stuðning og aðhald í þessu mikil-
væga verkefni. Samninganefnd-
in er vel skipuð þrautreyndum
samningamönnum. Engin ástæða
er til að ætla annað en að hún nái
góðum árangri.
Samningsmarkmið
Já Ísland er samnefnari og félags-
skapur þess fólks sem telur hag
Íslands best borgið með þátttöku
í ESB. Þá skoðun reisir hver um
sig á eigin forsendum og setur um
leið eigin kröfur til komandi aðild-
arsamnings. Já Ísland setur engu
að síður fram nokkur atriði í fjöl-
miðlum í dag sem eru sem rauður
þráður í stuðningi aðildarsinna.
Þau er brýnt að tryggja enda
varða þau grundvallarhagsmuni
og snerta mjög fullveldi, sjálf-
stæði og sjálfræði okkar.
Fullgildir þátttakendur
Ísland verður að vera fullgildur
þátttakandi í öllum stofnunum
ESB og eiga aðild að öllum ákvörð-
unum og undirbúningi þeirra.
Þessi réttur þarf að vera tryggð-
ur en síðan er það í valdi Íslands
að vega og meta hvar það kýs að
beita sér og hagsmunir þess eru
mestir.
Myntbandalag og evra
Búa þarf þannig um hnúta að
Íslandi verði gert mögulegt að
taka upp evru svo fljótt sem verða
má. Það er grundvöllur stöðug-
leika, lægri vaxta og afnáms verð-
tryggingar. Reyna þarf til þrautar
að ná stuðningi ESB og Evrópska
seðlabankans við að flýta því að
uppfylla svokölluð Maastricht-
skilyrði, ekki síst með því að
styðja gengi krónunnar og losa
um gjaldeyrishöft.
Lægra verð landbúnaðarafurða
Matvælaverð er hátt á Íslandi,
ekki síst þeirra landbúnaðar-
afurða sem framleiddar eru hér á
landi og njóta verndar. Vöruúrval
gæti verið meira og betra ef vernd
og tollar hyrfu. Aðildarsamningur
verður að tryggja opnun markaða
og skapa þannig grundvöll fyrir
lægra verði til neytenda.
Neytendur njóti tollabandalags
Neytendur eiga að geta notið bestu
kjara í viðskiptum innan ESB.
Tryggja verður að tollabandalag-
ið nýtist íslenskum neytendum
til fulls og að vöruviðskipti verði
greið. Verðsamanburður á grund-
velli sameiginlegrar myntar leiðir
til aukinnar samkeppni og veitir
íslenskri verslun og framleiðslu
heilbrigt aðhald.
Náttúruauðlindir
Ísland er ríkt af náttúruauðlind-
um. Aðildarsamningur verður að
tryggja óskoruð yfirráð yfir auð-
lindum lands, s.s. orku, vatns- og
námaréttindum, og sama gild-
ir um auðlindir á landgrunni s.s.
mögulegar olíulindir.
Fiskimiðin við Ísland eru ein
mikilvægasta auðlind okkar og
undirstaða mikilvægrar atvinnu-
greinar. Hér verður að búa svo um
hnúta að efnahagslegur afrakst-
ur auðlindarinnar verði tengdur
órjúfanlegum böndum við Ísland.
Samningurinn verður að tryggja
að veiðar fari að ráðum vísinda-
manna þannig að fiskstofnar skað-
ist ekki og að erlendar útgerðir fái
ekki meiri rétt á Íslandsmiðum en
nú er.
Landbúnaður og byggðaþróun
Mikilvægt er að ná því fram
að reglur ESB um norðurslóða-
landbúnað gildi hér og sérstaða
íslensks landbúnaðar verði viður-
kennd. Gildir það um takmörkuð
landgæði, veðurfar og einangrun
íslenskra húsdýrastofna. Samn-
ingar verða að fela í sér að hefð-
bundinn landbúnaður geti þrifist
áfram.
Ekki er síður mikilvægt að
Ísland njóti til hins ítrasta góðs
af verkefnum og reglum sem lúta
að því að efla byggðaþróun og
atvinnulíf í dreifðari byggðum.
Markviss uppbygging og nýsköp-
un í atvinnumálum sem er ekki
bundin við landbúnað eða sjávar-
útveg er afar brýn til þess að
styðja við mannlíf og atvinnulíf
utan höfuðborgarsvæðisins.
Íslenska
Tungumálið er okkur mikilvægt,
enda tengt menningu og sjálfs-
vitund okkar órjúfanlegum bönd-
um. Alþjóðavæðing og aukin sam-
skipti við önnur málsamfélög gera
brýnna en nokkru sinni að gæta
tungunnar. Við gerum þá ský-
lausu kröfu að íslenska verði eitt
af opinberum tungumálum ESB.
Ekki skylda til hernaðar
Séð verði til þess að Ísland haldi
sérstöðu sinni sem land án hers
og herskyldu. Íslenskir borgarar
verði aldrei skyldaðir til herþjón-
ustu, komi einhvern tíma til þess
að ESB ríkin komi sér upp sam-
eiginlegum her af einhverju tagi.
Það þarf að gera þrátt fyrir að fátt
bendi til þess að slíkt sé í bígerð.
Hér má enginn vafi vera.
Já Ísland
Aðild Íslands að Evrópusamband-
inu er stórt skref í sögu okkar.
Ákvörðun um aðild ber því að
taka á grundvelli framtíðarhags-
muna og að vel ígrunduðu máli. Í
því ljósi á að ganga til samninga
við ESB og í því sama ljósi á hver
og einn að meta afstöðu sína til
aðildarsamningsins þegar þar
að kemur. Það er ekki tilviljun
að Já Ísland er heitið á sameigin-
legum vettvangi okkar Evrópu-
sinna. Það undirstrikar að hags-
munir Íslands eru okkur efst í
huga þegar við komumst að þeirri
niðurstöðu að leiðir Íslands og
ESB eigi og geti legið vel saman.
Það er grundvallaratriði að ná
aðildarsamningi sem tryggir
þessa hagsmuni.
Íslenskir hagsmunir og ESB
ESB-aðild
Jón Steindór
Valdimarsson
lögfræðingur og virkur í
starfi Já Ísland
Fiskimiðin við Ísland eru ein mikil-
vægasta auðlind okkar og undirstaða
mikilvægrar atvinnugreinar. Hér verður
að búa svo um hnúta að efnahagslegur afrakstur
auðlindarinnar verði tengdur órjúfanlegum böndum
við Ísland.
FRUMKVÖÐLASETRIÐ Á ÁSBRÚ býður frum kvöðl-
um og fyrir tækj um með nýsköp un ar verkefni sem
þarfn ast stærra rýmis að leigja frábæra SMIÐJU -
AÐSTÖÐU í ELDEY á hag stæðu verði.
Í frumkvöðlasetrinu gefst skapandi einstaklingum
og fyrir tækjum tækifæri á að fá stuðning, fræðslu
og ráðgjöf við að hrinda hug myndum sínum í fram-
kvæmd, og um leið tækifæri til að efla tengs lanet
sitt og finna mögu lega samstarf saðila.
Fyrirtæki sem þegar hafa smiðjuaðstöðu í Eldey eru
m.a. Mýr Design, Leikfanga smiðjan Dunamis, HBT
og Valorka.
Nánari upplýsingar um Frumkvöðlasetrið á Ásbrú
er að finna á asbru.is/nyskopun
Ásbrú í Reykjanesbæ er samfélag frumkvöðla,
fræða og atvinnulífs.
Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Stórar hugmyndir
þurfa mikið pláss
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-S
ÍA