Fréttablaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 20
28. JÚNÍ 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● á ferð um landið
gangi í kjölfarið en nú ríkir orðið
meira jafnvægi. Ég heyri þó oft á
munnmæli fólks að það geti ekki
hugsað sér að koma hingað, og
staðurinn hefur vissulega beðið
tjón af þeirri ógæfu sem hér varð,“
segir Keran, sem gefur gestum
Breiðavíkur nýlagaðan molasopa
allan sólarhringinn.
„Töfrar Breiðavíkur liggja í
náttúrunni, fuglalífinu og kyrrð-
inni. Þeirri upplifun verður ekki
lýst með orðum að vera kominn
svo langt frá alfaraleið og horfa á
sólina ganga í sjóinn og roðagylla
sandinn. Hér nýtur fólk óviðjafn-
anlegrar náttúru og unaðslegs at-
lætis á góðum stað, og í dag er eng-
inn á Breiðavík sem bítur,“ segir
Keran í stærsta sandkassa Íslands,
sjálfri fjörunni í Breiðavík.
„Sagan verður alltaf til staðar,
rétt eins og á Þingvöllum þar sem
fólk var dæmt til dauða og tekið
af lífi. Samt flykkist fólk þang-
að áfram á meðan það sniðgengur
Breiðavík. Hins vegar hefur komið
skýrt fram hjá þeim mönnum sem
dvöldu hér í æsku að staðurinn
var þeim afskaplega vingjarnleg-
ur og að umhverfið bætti upp ljót-
leika mannanna,“ segir Keran, sem
undanfarin ár hefur boðið Breiða-
víkurdrengjum að koma vestur um
hvítasunnuhelgina.
„Margir hafa endurnýjað kynni
sín af Breiðavík og komið aftur og
aftur. Allir eru þeir orðnir mikl-
ir vinir okkar og yndislegt fólk.
Að sjá þá fara sæla til baka gefur
okkur Birnu kraft til að takast á
við þetta og enn hef ég ekki hitt
neinn sem hefur séð eftir því að
koma, en á móti séð miklar og
góðar breytingar á mönnunum
eftir á,“ segir Keran, sem ætlar
að viðhalda sögunni sem ekki má
gleymast í samvinnu við Breiða-
víkurdrengina sjálfa.
„Það er vandmeðfarin vinna en
ég hef boðið þeim að taka frá fal-
legan reit í víkinni sem helga má
þeim sem hér dvöldu. Hugmynd-
ir eru um að gróðursetja þar tré
fyrir hvern og einn pilt, ásamt því
að setja upp minnisvarða og falleg-
an trjálund til íhugunar. Við horf-
um því fram á veginn, á bjarta
tíma og fallega vík.“ - þlg
NÍUNDI DAGUR: INGJALDUR
TUNGUFJALL
Við sváfum ágætlega en nokk-
uð hvessti um miðja nótt þannig að
tjaldið blakti og ég hafði áhyggjur
af dótinu mínu úti, en allt var í lagi
þegar við vöknuðum í morgunsól
og logni. Framundan beið okkar
það verkefni að komast á Heljar-
dalsheiði í botni Svarfaðardals.
Við gáfum okkur góðan tíma við
morgunverðinn og nutum fegurð-
arinnar og horfðum stoltir á farar-
tálmann sem við sigruðum í gær-
kvöldi. Nú var ekki síður fagurt að
horfa til Skagafjarðar yfir Elliða,
Ármannsfellið og hvassbrýndan
Ingjaldshnjúkinn (sem er við In-
gjaldsskálina í Kolbeinsdal og er
allt annar hnjúkur en fjallið Ingj-
aldur), og stundum heyrðum við og
sáum grjót hrynja úr honum niður í
Ingjaldsskálina. Þetta er morgunn
sem seint gleymist.
Þetta er kafli úr hinni nýút-
komnu bók Svarfaðardalsfjöll
eftir Bjarna E. Guðleifsson. Hún
fjallar um gönguferðir fjögurra
manna upp á tinda, eggjar og
fjallahryggi umhverfis Svarfaðar-
dal og hliðardali hans, þeirra Árna
Þorgilssonar, Grétars Grímssonar,
Þorsteins Skaftasonar og höfund-
ar. Texti bókarinnar lýsir mikil-
fenglegu landslagi og leiðum sem
lítið eða ekkert hefur verið skrifað
um áður. Hann er gæddur lífi með
frásögnum af ýmsu sem við bar á
ferðum þeirra félaga, draumum
þeirra og veruleika, fólki sem þeir
hittu, ásamt kveðskap og þjóðsög-
um sem tengjast umræddu svæði.
Þá eru 138 myndir og 18 kort bæði
til prýði og upplýsingar. Þar eru
nöfn flestra tinda og fjallaskarða
merkt inn á.
Það var hugmynd Hjartar Eld-
járns Þórarinssonar á Tjörn í
Svarfaðardal að ganga fjallahring-
inn umhverfis Svarfaðardal allan
og árið 1995 ákváðu umræddir fé-
lagar að gera þá hugmynd að veru-
leika. Það tók þá fimmtán göngu-
daga á átta árum að ljúka ætlan
sinni og höfðu þeir þá farið á 75
tinda og jafnmörg fjallaskörð.
Arkað á tinda Svarfaðardals
Mynd 76. Í morgunsólinni. Séð út Víðinesdal og Kolbeinsdal yfir Skagafjörð.
MYND/ÚR BÓKINNI SVARFAÐARDALSFJÖLL
Effitan flugnafæluúði er með mikla
virkni en á sama tíma náttúrulegur
og án DEET. Rannsóknir* sýna að
Effitan verndar í allt að 8 tíma.
Öruggt fyrir ófrískar konur og börn
frá þriggja mánaða. Einungis þarf
að passa að bera ekki efnið þar
sem hægt er að setja í augu
og munn.
Virku innihaldsefnin í Effitan
eru ma. kókosolía, Eucalyptus
Citriodora (sítrónu júkalyptus)
og citronella (grastegund
sem er notuð í ilmolíur).
Effitan er 98,88% náttúrulegur
og án allra Paraben efna.
Láttu ekki flugnabitin
eyðileggja fríið
EITUREFNALAUST
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og hjá N1.
*Rannsóknir frá Swiss tropical institute í Basel
og Dr. Dautel Institut í Berlin.
PREN
TU
N
.IS
Innflutningsaðili:
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SJÓNVARP
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Breiðavík státar af vestasta bar Evrópu, þar sem mikil stemning er að fá sér drykk í
töfrandi sólarlaginu. Þar eru einnig 70 rúm, þar af 24 herbergi með baði og dýrindis
veitingahús. Hér má sjá stoltan hóp starfsfólks með Birnu Mjöll lengst til vinstri.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● KYSSTU MIG NÚ,
LUNDI! Leiðin út að Látra-
bjargi liggur framhjá Breiðavík
og er undurfögur alla leið. Látra-
bjarg er eitt helsta aðdráttar-
afl ferðafólks um Vestfirði; það
er vestasti oddi Evrópu og eitt
mesta fuglabjarg álfunnar. Frá
austri til vesturs er Látrabjarg
fjórtán kílómetra langt og afar
þverhnípt, en hæst er það 444
metrar við háan Heiðnukinn.
Ganga með bjargbrúninni
er ævintýri líkust og fugla-
lífið ógleymanleg upplifun.
Stundum bregður fyrir hvölum
skammt frá landi og úti fyrir
Látrabjargi sjást útselir oft á
klöppum. Líklegt er að bjargið
dragi nafn sitt af því, en orðið
látur á við um staði á landi þar
sem selir kæpa.
Öldum saman var sigið í
bjargið eftir eggjum en sigi var
hætt eftir 1925 þegar fjörutíu
þúsund eggjum var safnað.
Heimild: www.nat.is
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRAMHALD AF FORSÍÐU